Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1990, Page 17

Æskan - 01.06.1990, Page 17
"WWSWii Atli Eðvaldsson: „Mikilvægast erað stunda íþróttina afheilum hug. “ hann alltaf með Val. Meðan við áttum heima í Pýskalandi hélt hann með þýska liðinu og nú sér hann ekkert nema FH - eftir að hafa æft með þeim í eina viku! Sif er að byrja að æfa knatt- spyrnu. Pau ráða sjálf í hvaða íþróttir þau fara og ég vona bara að þau fái sem mest út úr þeim. íþróttir halda krökkum frá götunni. Pað eru margar hættur á götunni núna. Pegar ég var að alast upp var mesta hættan sú að stíga á nagla en núna er mikil hætta og mun meiri en fyrr, alls staðar. Pað er því mik- ilvægara nú en nokkru sinni fyrir börn að stunda félagsstörf. Ef börn gera það eru þau hólpin.“ - Ertu feginn aö uera kominn heim til íslands? „Já. Tíu ár eru langur tími. Eg hef verið á ferðalögum í tíu ár eins og ég sagði áðan. I æfingabúðunum var mað- ur vakinn fyrir klukkan sjö á morgnana og Iátinn fara beint út að hlaupa í 45 mínútur, 9-10 kílómetra. Eftir morgun- mat var farið aftur á æfingu og æft í tvo klukkutíma. Pá var hlaupið og gerðar alls konar æfingar. Síðan var matur og eftir hádegismatinn fengum við tveggja tíma hlé. Pá tóku aftur við tveggja klukkustunda langar æfingar. Eftir kvöldmat, sem var etinn klukkan átta, var ekkert annað að gera en fara að sofa. Við urðum að vera farnir að sofa um klukkan tíu. Svona var þetta í tvær til fjórar vikur fyrir keppnistímabilið og á milli leikja.“ - Soo að þaö er ekki auöuelt aö uera atuinnumaöur í knattspyrnu? „Nei, það er mjög erfitt. Allir fá mikið „sjokk“ - áfall -þegar ferillinn hefst. Pað tekur um þrjú ár að aðlagast þessu lífi og atvinnumannaferillinn er stuttur, kannski frá nokkrum vikum upp í 10- 14 ár ef maður er heppinn. I öllum öðr- um störfum getur maður setið og átt slæman dag án þess að það sé alvar- legt en í atvinnumennsku er heimurinn harðari. Ef maður sýnir einhvern smá veikleika þá bíða tíu manns eftir því að ýta manni burtu úr stöðunni sem maður er í. Pað er ægilega erfitt. En þrátt fyrir það: Pví ákveðnari sem maður er í því að gera hlutina því meira getur hann.“ - Langaöi þig aldrei til aö gefast upp, pakka niöur og fara heim? „Jú, jú. Stundum velti ég því fyrir mér hvað ég væri að gera í þessu! En þetta var líka gaman. Pað er gaman að æfa og það er gaman að keppa. Pað mikil- vægasta er að stunda íþróttina af heil- um hug.“ L Æskan 17

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.