Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.06.1990, Qupperneq 23

Æskan - 01.06.1990, Qupperneq 23
Barnastúkur eru líka í Afríku HöW Matthíasdóttir skrifar: efur Þú heyrt talað um barna- u u? svo er jangar mjg a5 9ja þér frá barnastúkum sem terfa á íslandi. ,.arnastúkur eru nokkurs konar f^rlr ððrn °9 un9l*n9a °9 voru ^ r fyrstu stofnaðar fyrir meira en núrað árum. í barnastúkum er lo gegn notkun tóbaks, áfengis ^9 annarra fíkniefna. Enginn félagi í ^arnastúku má nota þessi efni enda s,'st hú sjálfsagt að þau eru mjög f 3 *e9 fyrir líkama og heilsu. Á s- Urn í barnastúkum eru stundum auk fræðslumyndir um Þessi mál f hess sem félagarnir sjálfir flytja æðsluefni. Mjöll Matthíasdóttir Ferðalag barnastúkna á Norðurlandi En nú vilt þú sennilega fá að vita hvar þessar barnastúkur eru. Þær starfa t.d. í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, á Akureyri og víðar um landið. Of langt yrði að telja þær hér. Pað er best að þú aflir þér upp- lýsinga um það hvort barnastúka starfar í nágrenni við þig. Flestar barnastúkur halda fundi reglulega yfir vetrartímann, oft hálfsmánaðarlega. Auk þess er oft farið í ferðalög, stundum bæði vor og haust. En það er fleira gert í bamastúk- um en að fræða um fíkniefni. Krakkarnir í stúkunni sjá um að stjórna fundum en til að leiðbeina þeim eru einn eða fleiri fullorðnir sem kallast gæslumenn. Pú getur því lært hvernig á að stjórna fund- um og skrifa fundargerð, eða hvern- ig á að flytja ræðu. Allt þetta getur verið gagnlegt að kunna síðar á ævinni. Þú færð líka æfingu í að koma fram því að félagarnir í stúk- unni flytja sjálfir ýmiss konar skemmtiefni á fundum. Lesnar eru upp sögur, brandarar og ljóð og stundum eru sett upp leikrit. En veistu að barnastúkur eru ekki bara á íslandi? Þær starfa líka í öðrum löndum, meira að segja í Af- ríku. í nokkur skipti hafa krakkar frá Islandi farið á barnastúkumót á Norðurlöndunum, gist í tjaldbúðum og kynnst jafnöldrum sínum sem líka vilja vera lausir við fíkniefni. í byrjun júlí í sumar var haldið al- heimsmót í Kaupmannahöfn. Þang- að fór hópur unglinga frá íslandi. (- Ef til vill fáum við að heyra ferða- sögu þeirra seinna ...) Jæja, þá veist þú ýmislegt um barnastúkur. En lang besta ráðið til að kynnast þeim er að koma á fund í einhverri þeirra í haust og sjá það sem fram fer. Öllum er frjálst að koma á fundi og kynna sér starfið. Ef þú hefur ekki tök á að fara á fund eða engin barnastúka starfar þar sem þú átt heima getur þú samt starfað að þessum málum og fylgt kjörorðinu „Heilbrigð lífsgleði - hollar venjur". Notaðu ekki áfengi, tóbak og vímuefni og mundu að bjór er líka áfengi. Það er auðvelt að lifa heilbrigðu lífi en miklu erfiðara að snúa til baka þegar farið er að nota vanabindandi efni. Með ósk um að þér gangi uel! /tfjoiiiia ttkla.sdóttír' (Mjöll er kertnari að mennt. Hún var í vor kjörin stórgœslumaður unglingastarfs IOGT, þ.e. formaður landssambands barnastúkna) Æskan 23

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.