Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 7
Kyndill
^rui Stlórnarskráin
Agústsson. Og ihðldið
Stjórnarskrárbreytingin, sem samþykkt var á síðasta
alþingi, er sérstakt gleðiefni öllu ungu fólk'i' í landinu.
Með henni er stigið merkilegt spor í áttina að full-
komnu stjórnarfarslegu jafnrétti æskulýðs og fátækr-
ar alþýðu við aðra borgara þjóðfélagsins, þar sem í
henni felst rýmkun á kosningaraldri niður í 21 ár og
réttindamissir vegna fátæktar og erfiðra lífskjara er
felldur burt.
En þessi réttarbót hefir ekki náðst baráttulaust, ekki
fremur en aðrar umbætur, er miðað hafa til stuðnings
hinum umkomuminni þjóðfélagsþegnum. Er nú vel til
fallið að líta um öxl og skyggnast eftir því, hvar í fylk-
ingu þeir menn hafa staðið, sem drýgstan hlut eiga' í að
þessi málalok hafa náðst.
Mér er það glöggt í minni, þegar formaður Alþýðu-
flokksins, Jón Baldvinsson, flutti fyrstur manna þessar
réttindakröfur æsku og alþýðu á alþingi. Ærið kaldar
voru þær viðtökur, sem málið fékk hjá íhaldinu. Ekki
var það þó drepið hljóðalaust. Ihaldsmönnunum —
sumir þeirra eru nú æðstu menn Sjálfstæðisflokksins
svonefnda — þótti sér ekki annað sæma en lýsa yfir
1
1