Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 43
Samfylkingarhugur kommúnista
Kyndill
. . Berlega hefir komið, í ljós, að ýmsir flokkar og
flokksfélagar skilja ekki eða vilja ekki skilja að til-
raunir til samfylkingar eru frá sjónarmiði hins komm-
únistiska Internationale ekkert annad en agitationsað-
ferð — tilraun að bjóða fjöldann út.“
„. . . Samband verklýðsflokkanna, þeirra, sem raun-
verulega eru verklýðsflokkar, og hinna, sem kalla sig
verklýðsflokka, en eru í rauninni borgaraflokkar, væri
ekkert annad en helber firra, glæpsamleg gagnbyltingar-
eða tækifæris-stefna."
Þessi ræðubrot sýna mjög glöggt hvernig hugur
kommúnista er til „samfylkingar". Mijndun raunveru-
legrar, samfijlkingar verkalýdsins skoda peir sem verk-
lýdsglœp.
Frá þeirra sjónarmiði er aðeins eitt um að gera.
telja verkalýðnum trú um að þeir vilji allt annað en
er, villa sýn — blekkja og á þann hátt sundra alþýðu-
unum í von um aukið flokksfylgi.
Þessi glæpsamlegi þáttur kommúnistiskrar blekking-
arstarfsemi hér á landi náði hámarki sínu í vetur, er
þeir buðu Alþýðusambandi íslands samvinnu í dægur-
baráttu verkalýðsins.
Stjórn Alþýðusambandsins svaraði með opnu bréfi,
er birtist í Alþýðublaðinu o. fl. blöðum, og hafnaði
þessu hræsnisfulla tilboði með rökföstum skýringum.
S U K. sendi S. U. J. samskonar tilboð hvað snerti
samvinnu í jhagsmunabaráttu öreigaæskunnar. Stjórn S.
U. J. svaraði einnig með opnu bréfi, er birtist í Alþýðu-
37