Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 19

Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 19
Nazisminn og forráðamennirnir Kymdiil lokum algerlega bönnuð. Og á kosningadaginn var ekk- ert leyft að minna á hvorki jafnaðarmannaflokkinn eða kommúnistaflokkinn. Að eins maður með listanúmer jafnaðarmanna fyrir kjörstöðum, en ekki einu sinni dafn flokksins. Pað er opinberlega á vitund alls heims- ins, að löngu áður en til kosninga kom var búið að snúa kosningabaráttunni upp í vopnað stríð af hálfu nazista gegn jafnaðarmönnum. 20. febr. gaf Göring Prússnesku lögreglunni skipan, sem pýddi ekki annað en að skjóta skyldi, í tíma og ótíma. Þar segir: Lög- reglumenn, sem neyta skotvopnanna við skylduverk sín, skulu njóta verndar míns háa embættis, hverjar sem afleiðingarnar verða. Peir, sem hika við slíkt, mega búast við að verða látnir sæta ábyrgð. Sérhver lögreglu- niaður verður ávalt að muna, að undanfærsla^ í því að Pota skotvopnin mun vega þyngra gegn honum heldur en yfirsjón drýgð' í ;notkun þeirra. Næsta dag endurtók Levetsow lögreglustjóri' í Berlín svipuð ummæli. Og næstu dagana voru hin pólitísku félög Hitlers, sem Brúning hafði bannað, löggilt af Göring sem lögregluhjálparlið. Síðan hófst ógnarstjórn. í Þýzkalandi, sem vafalaust verður litið á sem hina ógeðfeldustu í Evrópu. Hún er öafsakanleg með öllu og verður að eins skýrð út frá skapgerð mannanna, sem stýrðu henni. Enginn þessara ^Panna hafði verið ofsóttur. Pvert á móti voru sumir Þeirra sakamenn, sem fyrri stjórnir höfðu farið allt of ^tildilega með. Að því er snertir kommúnistahættuna, sem hér var notuð fyrir afsökun, þá var það kerlinga- 13

x

Kyndill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.