Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 46

Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 46
Kyndill Samfylkingarhugur kommúnista brjótarnir, sem eiga að stjórna með kommúnistum sjálfum, en hina, sem hafa skapað samtökin og byggt pau upp, á að útiloka. Þannig er stefna R. F. O., hins faglega félagsskapar kommúnista, og þó ekki sé opin- berlega stofnuð hér á landi deild úr þessum félags- skap, þá er bersýnilegt og vitanlegt að kommún- istar reyna að starfa hér innan verklýðsfélaganna á þessum heilbrigða grundvelliH íslenzkur verkalýður mun afneita slíkum falsspá- mönnum og hræsnurum og sýna þeim lítilsvirðingu, en jafnframt meðaumkun sem einstaklingum vegna þess„ að þeir eru fórnardýr auðvaldsþjóðfélagsins. íslenzk alþýðuæska til sjávar og sveita sameinast um landssamtök sin, S. U. J. og Alþýðusamband íslands,. sameinast til baráttu gegn erkifjendum sínum, ihalds- arðræningjunum, og byggir upp sitt framtíðarríki. ís- lenzk alþýðuæska þolir enga kúgun, en berst fyrir réttlæti og jafnrétti, berst fyrir fjárhagslegri og menn- ingarlegri þróun, berst fyrir afnámi þess þjóðskipulags. sem hrindir börnum alþýðunnar út á kaldan klaka, svo þau tapa von sinni, tapa trú sinni á lífið og lenda í höndum ofstækisfullra ofbeldissinna, kommúnista eða nazista. Það er þjóðskipulagið, sem á sökina á allri örbirgð og armæðu, sem hefir gert fjölda alþýðusona og dætra að auðnuleysingjum og aukvisum. En við ungir jafnaðarmenn berjumst gegn þessu skipulagi, berjumst við hlið eldri stéttarsystkina innan alþýðusamtakanna, berjumst fyrir jafnrétti, frelsi. 40

x

Kyndill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.