Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 48

Kyndill - 01.03.1933, Blaðsíða 48
Kyndill Við eldana / Heimdall 8. þ. m. skrifar ritstjórinn leiðara og segir þar meðal annars: „Æska Islands hefir nú hin síðustu árin áttað sig til fulls á því, undir hvaða merki henni ber að fylkja sér. Sú tál- beita rauðu flokkanna, að þeir hafi nýjar hugsjónir að flytja, er nú orðin að athlægi að maklegleikum meðal ungra manna.“ Mikil er trú vesalinganna. 1 vonleysinu reyna þeir að skrökva að sjálfum sér. Á öðrum stað stendur: „Æskulýður nútímans aðhyllist því einstaklingshyggjuna nýju, nýjustu og víðsýnustu stjórnmálastefnuna í heiminum-“ Jafnvel Moggi hefir aldrei leyft sér að halda því fram> að íhaldsstefnan væri „nýjasta og víðsýnasta stjórnmála- stefnan í heiminum." Heimdellingar jafnast ekki einu sinni á við Mogga, og er þá mikið sagt. Ihaldið hrekur sín eigin rökl Alþýðuflokkurinn hefir ár- um saman barist fyrir þeim breytingum á stjórnarskrá landsins, að kosningaréttur yrði rýmkaður á þrennan hátt- 1. að allir kjósendur hefðu fullkomið jafnrétti um áhrif á fulltrúaval til alþingis, hvar sem þeir eru búsettir á landinu- 2. að kosningaréttur og kjörgengi sé miðað við 21 ár, og 3. að þeginn fátækrastyrkur svifti ekki réttindum. Eins og öllum er kunnugt, þá hafa íhaldsflokkarnir í landinu barist 42

x

Kyndill

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kyndill
https://timarit.is/publication/386

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.