Kyndill - 01.03.1933, Síða 28
Kyndill Nazisminn og forráðamennirnir
persónugert í réttarfari Magnúsar Guðmundssonar og
sjóðstjórn, íhaldið persónugert í heilbrigðisfræði Guð--
mundar Hannessonar og kirkju Sigurbjörns Ástvald-
ar, íhaldið persónugert í líknarstarfi Gísla í Ási og
endurskoðun og innflutningsleyfum Gísla Bjarna-
sonar, það er þetta íhald eitt allra íhaldsflokka
um nálæg lönd, sem hefir af fávizku sinni og
inngróinni spillingu, menntunarleysi, græðgi og grimd
tekið feginshendi þeim möguleika, að hér rísi upp
ábyrgðarlaus siðleysingjaflokkur til þess að taka upp
ofbeldisbaráttu gegn alþýðunni. Þá dreymir um eyði-
lögð verklýðsfélög, ríkislögreglu, hervald, upptækar
eignir og þrælavinnu. Öðruvísi verður það ekki skilið.
að blöð þeirra skríða fyrir þessum óaldarlýð, kjassa
hann og votta honum alla þjónustu. Til marks um þetta
skuluð þið lesa bréf, sem Sigurbjörn Ástvaldur birti í
Vísi fyrir skömmu frá kristnum Lettlendingi. Það er
svo fullt af fáfræði, rógi, Gyðingahatri og mannvonzku,
að ég minnist tæplega að hafa séð annað eins plagg.
Höf. er þó ánægður með Þorstein Briem; í stjórn, heldur
að hann sé „kristinn", ráðleggur að gera jafnaðarmenn
útlæga úr föðurlandi sínu, eins og við Lettlendingar
gerum. Þarna hafið þið andann, úrræðin, vitið, trúna,
siðgæðið. En ég veit varla, hvorum ég á að vorkenna
meira, aumingja Þorsteini Briem eða kristindóminum
fyrir þenna vitnisburð.
En eitt má aldrei gleymast. Það eru verkamennirnir,
alþýðan, sem ætlað er að draga plóg þessara manna.
Og ef hún vill ekki, þá mun allt koma fyrir ekki neitt.
22