Kyndill - 01.03.1933, Page 37
Falskar ávísanir
Kyndili
Vitleysa, hugsaöi hann, — og titringur greip allar hans
taugar. —
— Brjálsemisástand, tautaði Bernharð. — Helvítis
bankastjórinn bætti heldur ekki sálarástand mitt, —
ekki þýðir mér að fara í hitt svindilfyrirtækið. —
— Alþýðublaðið! — hrópuðu strákarnir á götunum.
— Morðtilraun við mann á Akureyri! — Köttur verður
fyrir bíl og steindrepst! — Kommúnistar myrða ungan
jafnaðarmann á Grænlandi, og margt fleira.
Fádæma ósvífni, hugsaði Bernharð. — Morðtilraun,
íaorð, myrkur. — Hann ákvað að flýta sér heim.
Hann var að verða vitskertur. —
— Sannarlegt kraftaverk Sigurjón, að hitta þig hér,
— sagði Bernharð við vin sinn og mág, lækninn. —
— Sigurjón, ég þarf að tala við þig — trúa þér fyrir
~~ þú þarft að lækna mig — hugsaðu — ég — er. —
— Já, Bernharð; hvað gengur á; ég var að rífa botn-
langan úr honum vini okkar, Baldvin, — sagði lækn-
irinn.
—■ Botnlangann, — sagði Bernharð; hvað er það að
úiissa botnlangann, — ég er að missa vitið. —
Þú hefir nú ekki átt neitt vit, og svo var ég heldur
ekki að segja, að það sé neitt mikið að missa botnlang-
ann.
Nei, en komdu nú inn á Borg; við þurfum að tala
saman. — (
Þeir höfðu drukkið tvo bolla af þessu þjóðfræga
Horgar-kaffi, — þá fórú þeir að taka málið alvarlega.
— Sigurjón — sagði Bernharð — ég veit ekki, hvernig
31