Valsblaðið - 01.04.1941, Page 1
c§>ÆídasÆáíí °Uaf3.
Hús það, er hér birtist mijnd af, hefir félag vorl tekið á leigu í því skyni, að nota það sem
skíðaskála. Það stendnr rétt norðan við Kolviðarhól, á vö/lunum framan við Sleggjubeinsdal, og hefir
fram til þessa verið notað sem sumarhústaður. Hiisið er eign Skíðadeildar I.R., Kolviðarhóll, og leigt
Val iil 5 ára. Að þeim tíma liðnum vonast stjórn Vals til, að úr því hafi fengizt skorið, hvort nægur
áhugi sé ríkjandi innan félagsins, til bess að rétt sé fyrir það að reka sérstæða skíðastarfsemi, og
byggja sér stærri og vandaðri skála í því skyni,
Skíðanefnd félagsins, undir formennsku Þorkels Ingvarssonar heildsala, liefur, ásamt nokkrum
öðrum Valsungum, unnið að hví í vetur, að breyta innrétlingum skálans og endurbæta hann á ýms-
an hátt. Er því verki nú lokið og var skálinn tekinn til afnota á Skirdag.
Er vonandi að tilraun þessi takist svo vel, að þegar leigutiminn er á enda, verði báið að reisa
nýjan og vandaðan skála, er uppfylli glæstustu vonir okkar í þessum efnlim.