Valsblaðið - 01.05.1959, Side 10
8
VALSBLAÐIÐ
Frá kvöldvöku í Skíðaskálanum.
SKÍÐANEFNDIN lofaði því í
haust, að sVo framarlega sem ein-
hver snjór yrði í vetur mundi hún
láta til sín heyra. Nú fór það svo
að snjórinn brást okkur að veru-
legu leyti, en við reyndum samt að
láta að okkur kveða í félagslífi
Vals.
Farið hefur ve'rið í skálann, svo
að segja um hverja helgi síðan 14.
janúar. Þátttaka hefur verið mis-
jöfn, en þó framar öllum vonum.
Páskavikan tókst með afbrigðum
vel, fullskipað var í skálanum,
gleðskapur og góður félagsandi
réði þar húsum svo sem vera ber.
Kvöldvöku'r voru haldnar undir
öruggri stjórn Sigurðar Marels-
sonar og aðstoðarmanna hans. Við
í skíðanefndinni þökkum þeim af
alhug, fyrir hve vel þeir unnu það
vandasama verk að skemmta
skálafélögum sínum. Það er mikils
um vert fyrir allan félagsskap að
hafa á að skipa mönnum, sem vilja
leggja f'ram krafta sína til að efla
félagslífið, það eru þeir sem leggja
hornsteininn að góðu skálalífi.
Við óskuðum í upphafi eftir því
að félagamir sýndu prúðmennsku
í allri umgengni um skálann og
það er okkur mikil gleði að geta
sagt f’rá því hér, að við höfum ekki
orðið fyrir vonb’rigðum hvað það
snertir.
Sem dæmi um þann hug, sem
þeir, er sækja skálann, bera til
hans, getum við sagt frá því að
fjórar ungar stúlkur, sem mikið
hafa sótt hann, færðu honum að
gjöf nokkur búsáhöld sem vantaði.
Það er einmitt á þennan veg sem
við þurfum sem flest að hugsa. Ef
við í sameiningu reynum að hlú að
skálanum okkar, verður hann okk-
ur enn kærari og við munum eign-
ast fleiri og ánægjulegri endur-
minningar, bæði úr leik og starfi
með góðum félögum.
Einnig óskum við, að allt hið
unga fólk í Val geri meira að því
að stunda skálann og skíðaíþrótt-
ina. Því sannið til, ef þið aðeins
drífið ykkur í að byrja, þá komist
þið að raun um að hvergi annars
staðar viljið þið eyða ykkar frí-
tímum yfir veturinn. Við skulum
setja okkur það mark, að á næstu
innanfélagsmótum, þu'rfi Stefán
& Co. að gæta sín fyrir hinum
ungu upprennandi skíðaköppum
Vals. Stefán, Finnbogi, Jón, Pét-
ur og Einar, allt eru þetta nöfn
sem ykkur eru kunnug úr skíða-
sögu Vals. Ef við rennum hugan-
um aðeins aftur í tímann, sjáum
við þá sem unga pilta sem eru að
hefja skíðaferði'r. Þeir stóðu þá
í sömu sporum og þið standið nú,
en þeir tóku slíku ástfóstri við
þessa fallegu og skemmtilegu
íþrótt, að þeir enn í dag, þrátt fyr-
ir 'að þeir hafi stofnað heimili, og
þurfi því fyrst og fremst að hugsa
um daglegt brauð, gleðjast og
ve'rða sem strákar aftur, þegar
þeir hafa klifið brekkurnar með
skíði um öxl, og geta síðan brun-
að í ótal sveigjum alveg niður í
brekkurætur. Því segjum við í
skíðanefndinni: Komið og reynið
þetta af eigin raun. Við vitum að
þessir fyrrnefndu félagar okka'r
munu fúsir til að segja ykkur til
enda þótt það komi til með að
kosta þá sæmdarheitið, skíðameisf-
ari Vals.
Já, og gerið meira, komið strax
í sumar og hjálpið okkur við að
lagfæra skálann og hlynna að hon-
um, með vinnu (og smágjöfum ef
ykkur langa'r til) og gleði ykkar
verður enn meiri, þegar þið næsta
vetur dveljið í skála, sem þið vitið,
aÖ þið eigið sjálf og ykkur þykir
vænt um. Valsskálinn hefur átt
marga og framúrskarandi starfs-
menn á liðnum árum, það ætti því
aö vera metnaður ykkar að sýna
þeim, að við getum og viljum gera
nonum eins vel, já, og jafnvel
betur.
Sjáumst heil í Valsskálanum.
GuSmundur Ingimundarson.
PÁSKADVÖL Valsmanna í
skála sínum, tókst sem við var að
búast með ágætum. Flestir fó’ru
uppeftir á miðvikudagskvöld en
allstór hópur kom á skírdag.
Nokkrir komu svo eftir það, en
aðrir urðu að fara í bæinn vinnu
sinnar vegna, svo tala dvalargesta
var um fimmtíu alla dagana.
Kvöldvökur vo'ru öll kvöldin og
tókust þær vel. Menn sungu, spil-
uðu á spil, fóru í ýmsa leiki, les-
ið var upp, fluttir leikþættir, gefið
út sikálablað og dans stiginn.
Á páskadag fór skíðamót Vals
fram í Innstadal. Færi var gott en
nokkuð hart. Keppendur voru tíu,
en fimm luku aðeins keppni. Sig-
urvegari varð Stefán Hallgríms-
son, ar.nar Finnbogi Guðmunds-
son, þriðji Jón Guðmundsson,
fjórði Hilmar Magnússon og
fimmti Ægir Ferdinandsson. Á
annan fóru svo allir í bæinn.
J. 0. O.