Valsblaðið - 01.05.1959, Side 18

Valsblaðið - 01.05.1959, Side 18
16 VALSBLAÐIÐ Jk ver er \Ja lórvia ^nrinn ? Það virðist vera óþarft að kynna Sigurð Ólafsson í Vaisblaðinu. Hann þekkja allir, sem þetta blað lesa og allir vita að hann er í Val. Tilgangur þessa greinaflokks er heldur ekki sá, að kynna nýja eða óþekkta Valsmenn, heldur fyrst og fremst að þakka unnin stö'rf og minna Valsmenn á, að þeir eigi þessum mönnum nokkuð upp að unna. Hver verður fyrir valinu hverju sinni, fer eftir ýmsum að- stæðum og röð þeirra því ekki mat á framlagi þeirra til félagsins. Valur á því láni að fagna, að eiga marga slíka menn, svo helzt þyrfti að geta margra í hverju blaði, en Valsblaðið er aldrei nógu stórt fyrir það efni sem í það þarf að komast og fyrir hendi er. Knattspyrnuferill Sigu’rðar er orðinn æði langur. Hann var upp á sitt bezta á styrjaldarárunum og hann er enn liðtækur í lands- lið okkar, eins og landsliðaleikur árganganna 1948 og 1958 í fyrra, sýndi svo áþreifanlega. Hann va'r um langt skeið viðurkenndur ein- hver traustasti varnarleikmaðui' Reykvíkinga og ,,skalla“ hans var viðbrugðið. Hann væri manna oft- ast búinn að vera í landsliði, ef landsleikir hefðu tíðkast á öllu hans knattspyrnuskeiði, svo þétt sem nú. Margan handknattleiks- sigurinn var Sigurður og með að færa félaginu, er það var hvað sigursælast í þeirri grein. Þó að Sigurður hafi unnið Val vel og lengi á keppnisvelli, þá er Valsmaðurinn Sigurður Ólafsson annað og meira en íþróttakappi. Hann hefur setið í stjórn fé- lagsins um árabil og gerþekkir rekstur þess, síðustu tvo áratug- ina, betur en nokkur annar. Það er og táknrænt fyrir Sigurð og störf hans fyrir Val, að hann hef- ur aðeins eitt ár verið formaður félagsins, þó lagt hafi verið oftar að honum en nokkrum öðrum manni að taka að sér formennsk- una. Hann vissi sem var, að ef hann tæki að sér formennsku, þá kæmist hann ekki yfir að vinna hin ýmsu ,,smáverk“, sem hann vinnur í kyrnþey, en myndu baka félaginu hinn mesta skaða, færust þau fyrir. Þó allir leiti til Sigurðar, ef þeim vantar að finna eitthvað frá fyrri árum, þá verðu’r hinum sömu vart hugsað til þess, að það hafi einhverntíma þurft natni, hirðu- semi og vinnu, að halda þessu til haga og finna því stað, venjulega í geymslulausu húsnæði. Það hafa heldur ekki margir fekið eftir því, að þessi sami mað- ur er að dreyfa áburði á grasvöll- inn, meðan tugir ungra manna eru allt í kring að æfa og leika sér. Þeim finnst bara sjálfsagt að völl- urinn sé vel gróinn, fallegur og nýsleginn. Þeir, sem sjá áttu um áburðardreyfinguna, ætluðu sjálf- sagt að sjá um að þetta yrði gert og eins að völlurinn yrði sleginn, en það drógst svolítið of lengi vegna þessa eða hins. Drátturinn hefur sjálfsagt haft eðlilegar or- sakir, en hefði getað orðið af- drifaríku'r. Til að fyrra slíkum vandræðum greip Sigurður inn í. Hann hrópaði ekki né baðaði út höndum, eða hneykslaðist á ,,trassaskap“ eða „vanrækslu“ eða heimtaði aðgerðir í málinu. Hann bara vann verkið. Ofur einfalt og látlaust. Látleysi, prúðmennska, þraut- seigja og stöðugt sta'rf, einkenna Valsmanninn Sigurð Ólafsson. Það væri hægt að skrifa margar síður í Valsblaðið um störf Sig- urðar í þágu Vals, en það verður Jón Guðmundsson minningarorð 7. janúar s.l. lézt hér í bæ einn al' el/.tu félögum okkar í Val, Jón Guð- mundsson verzlunarstjóri Verzlunar Jes Zimsen. Þegar á unga aldri tók Jón virkan þátt í starfi KFUM og varð því fljótlega, eins og aðrir tápmiklir æskumenn þess félagsskapar, þátt- takandi í hinu nýstofnaða fótbolta- félagi innan KFUM, Knattspyrnufé- laginu Val. Var hann með beztu knattspymumönnum félagsins og keppti fyrir það meðan „eldri Val- ur“ var við líði. Jafnframt var hann í stjórn félagsins og formaður Vals árin 1916—1918. Aðal félagsstarf sitt vann Jón þó í Karlakór K F U M, síðar Karlakórinn Fóstbræður. Var hann um áratugi ein styrkasta stoð kórs- ins, svo músíkalskur sem hann var, drengur góður og traustur félagi. Um leið og Valur hugsar með þakk- læti til starfa Jóns í Val, vottar hann eftirlifandi konu hans, frú Kristínu Pálmadóttur og sonum þeirra, sína innilegustu samúð. Ó. S. að bíða sérstaks tækifæris. Hann er öllum Valsmönnum kær, og vissulega er hann einhve'r hinn dýrmætasti maður er Valur hef- ur eignast. Sigurður Ólafsson er fæddur í Reykjavík. Kvæntur er hann Gyðu Ingólfsdóttur, ágætri konu, er átt 'hefur með honum tvö mannvæn- leg bö'rn. Ó. S.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.