Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 15
VALSBLAÐIÐ
13
Knattþrautir K.S.Í
Framh. af síðu 15.
að lagt er af stað og þar til knett-
inum er skilað aftur á upphafs-
punktinn. Reka verður knöttinn á
milli allra stanganna, annars er
prófið ekki gilt. Leikmaðurinn
,,græðir“ tíma, ef hann rekur svo
hratt sem mögulegt er á milli
stanganna. Aðeins veittar 2 til-
raunir.
Árangur: Bronz: 35 sekúndur.
5. þraut — Spretthlaup.
Sprettur með standandi við-
bragði, 25 m vegalengd. Hámarks-
tími fyrir bronz, 4,5 sek. Aðeins 1
tilraun veitt.
6. þraut — Ristarspyrna.
Nákvæm. ristarspyrna með
jörðu, 5 spyrnur með hvorum fæti.
Spyrna skal á mark, 1,5 m breitt
bil milli 2 stanga, og færi 15 m.
i *
Knettinum verður að spyrna, hann
má ekki rúlla eða velta áfram.
Spyrnan verður að vera hrein rist-
arspyrna.
Veita má 2 tilraunir.
Árangur: Silfur: 6 heppnaðar
spyrnur. Gull: 8 heppnaðar spyrn-
ur.
7. þraut — Skalla upp í körfu.
Skalla skal knöttinn upp í körfu,
sem er í 2 m hæð frá jörðu og
þvermál hennar skal vera 50 cm.
Knetti skal lyft með fæti af jörðu
og halda á lofti með fótum eða
höfði unz hann er skallaður upp í
körfuna. Knötturinn má ekki
koma við jörðu eftir að tilraun er
hafin. Knötturinn verður að fara
rakleitt í körfuna eða af umgjörð-
inni, en ekki af súlu eða vegg, sem
karfan er fest á. 5 tilraunir og er
eitt stig gefið fyrir hverja tilraun.
Þessa þraut má reyna tvisvar
sinnum.
Árangur: Silfur: 2 stig. Gull:
4 stig.
8 þraut — Knattrekstur og
sprettur.
Knötturinn er rekinn sömu
braut og í 4. þraut, en bætt er inn
í þessa. þraut spretti 26,16 m, sem
hlaupinn er eftir að knettinum
hefur verið skilað á upphafs-
punktinn eins og í 4. þraut. Er
hlaupið með marklínu inn að
miðju marki (Sbr. mynd með 4.
þraut). Hámarkstími fyrir silfur
er 35 sek. en fyrir gull 32 sek.
Aðeins má veita 2 tilraunir.
.9. Þraut — Skalla knött viðstöðu-
laust.
Knötturinn er tekinn úr kyrr-
stöðu upp með fæti, þaðan upp á
höfuð og hann skallaður viðstöðu-
laust. Þarf að skalla hann 5 sinn-
um fyrir bronzmerki. 10 sinnum
fyrir silfurmerki, og 25 sinnum
fyrir gullmerki. Eftir það skal
hann drepinn örugglega með sól-
anum.
10. þraut — Skalla tiltekna
vegalengd.
Knettinum er varpað upp með
höndunum og hann sendur með
skalla svo að hann falli milli til-
tekinna strika, sem dregin eru
bogmyndað með miðju geisla á
upphafsstað. Fyrir bronzmerki er
vegalengdin 5—7 m, fyrir silfur
8—10 m og fyrir gullmerki 14—
16 m. Aðeins má veita 2 tilraunir.
Fyrir bronzmerlci eru þessar
þrautir :1 — 2 — 3 — 4 — 5 —
9 — 10.
Fyrir silfurmerki eru þessar
þrautir: 1 — 2 — 3 — 6 — 7 —
8 — 9 — 10.
Fyrir gullmerki eru þessar
þrautir: 1 — 2 — 3 — 6 — 7 —
8 — 9 — 10.
Æfingatafla Vals
sumarið 1959
KNATTSPYRNA
Meistara- og 1. flokkur:
Mánudaga . . kl. 9 - -10.30 e.h.
Miðvikudaga kl. 9 - -10.30 e.h.
Föstudaga . . kl. 7.30- - 9 e.h.
2. flokkur:
Þriðjudaga kl. 8.30- -10 e.h.
Fimmtudaga kl. 8.30- -10 e.h.
Laugardaga kl. 2 - - 3 e.h.
3. flokkur:
Mánudaga . . kl. 8 - - 9 e.h.
Miðvikudaga kl. 8 - - 9 e.h.
Föstudaga .. kl. 9 - -10 e.h.
u. flokkur:
Mánudaga . . kl. 6.30- - 7.30 e.h.
Miðvikudaga kl. 6.30- - 7.30 e.h.
Föstudaga . . kl. 6.30- - 7.30 e.h.
5. floklcur:
Mánudaga . . kl. 5.30- - 6.30 e.h.
Þriðjudaga kl. 6 - - 7 e.h.
Fimmtudaga kl. 6 - - 7 e.h.
Knattþrautir 3. og U. flokks:
Þriðjudaga kl. 7 — 8.30 e.h.
Eldri félagar (Old boys):
Fimmtudaga kl. 7.30— 8.30 e.h.
HANDKNATTLEIKUR
Kvennaflokkur:
Mánudaga . . kl. 7.30— 8.30 e.h.
Miðvikudaga kl. 7.30— 8.30 e.h.
Aðalfundur fulltrúaráðsins
Aðalfundur fulltrúaráðs Vals
var haldinn í félagsheimilinu 18.
febrúar s.l. Stjórn ráðsins gaf
skýrslu um störf þess á kjörtíma-
bilinu. Umræður urðu allmiklar
um störf ráðsins og önnur félags-
mál er fram voru borin. Stjórnin
var endurkjörin, en hana skipa:
Ólafur Sigurðsson formaður, Frí-
mann Helgason og Andreas Berg-
mann. Annar fundur ráðsins á
þessu ári var haldinn 3. maí s.l.,
þar sem m. a. var rætt um nauð-
syn á auknu húsrými fyrir félags-
heimilið.