Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 16

Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 16
14 VALSBLAÐIÐ Knattþrautir K.SJ. Síðastliðið sumar var lítil rækt lögð við knattþrautirnar. Stafaði það m. a. af því, að séræfingar þeirra voru á laugardögum, en þá voru liðin oftast að keppa. 1 sum- ar verða þessar æfingar á þriðju- dögum kl. 7—8.30, og þarf ekki að efast um, að þá verði fjölmennt. Þeir, sem hlotið hafa silfurmerki, þurfa að ljúka þrautunum, áður en þeir verða 16 ára, til þess að fá gullmerki. Unglingaráð hefur ákveðið að veita sérstaka viður- kenningu tveimur fyrstu Vals- drengjunum, sem hljóta rétt til gullmerkja. Allir þeir, sem uppfylla kröfur um aldur og lausn knattþrautanna, geta hiotið merki, sem K.S.Í. veitir þeim, sem standast prófin. Er merkið þrennskonar, bronzmerki, silfurmerki og gullmerki. Fyrir að standast bronzp'róf er veitt brons- merki, sem er I. stig þrautanna og UNGLINGA V______ er það skilyrði til þess að fá að ganga undir silfurpróf. Fyrir það er veitt silfurmerki, sem aftur er skilyrði til þess að fá að gangast undir gullpróf. Lágmarkstími milli prófa skal vera 2 mánuðir. Bið- tíminn skal notast til æfinga undir næsta stig. Möguleiki er að ljúka öllum þremur prófunum á sama ári, t. d. bronz-prófi hinn 1. maí, hefja síðan silfur-próf hinn 1. júlí og gull-próf 2 mánuðum eftir að silfurprófi lýkur, ef það hefur gengið vel. Það er ekki nauðsyn- legt að taka allt prófið á einum degi, en á prófskýrslu skal til- greina dagsetninguna, þegar síð- ustu þrautinni var lokið. Heimilt er að taka bronzpróf í ár, silfur- próf næsta ár, og gullpróf árið þar á eftir, ef aldurshámarki er þá ekki náð, en próf getur enginn tekið eftir 17. afmælisdaginn. Stund og staður fyrir prófin. Prófin þurfa helzt að fara fram á knattspyrnuvelli, sem hefur lögleg mörk og vítateig (sjá þrautir nr. 2 og 4). Hafi félagið ekki aðgang að löglegum knattspyrnuvelli, má prófið fara fram á góðu svæði, sem að öðru leyti uppfyllir sett skilyrði. Þrautirnar þarf helzt að leysa allar úti, en þó má leysa þrautir nr. 3, 7 og 9 innanhúss. Prófdómarar. Prófin verða að fara fram undir stjórn unglinga- leiðtoga, þjálfara eða einhvers á- b.vrgs manns innan félagsins. Prófskýrsla. Færa skal skýrslu yfir próf hvers einstaklings í tví- riti. Annað eyðublaðið sendist Knattspyrnusambandi Islands (Unglinganefnd), hinu eintakinu heldur viðkomandi félag. Próf- dómari og einn stjórnarmaður fé- lagsins skulu skrifa undir skýrsl- una. Skýrslueyðublöð fást hjá Knattspyrnusambandi íslands (Unglinganefnd), Reykjavík. Stæró Jcnattar. Helzt skal nota venjulegan fótknött nr. 4 við próf- in, en þó má nota nr. 3 og 5. Knött- urinn má ekki vera of lítið blás- inn. Nota má skó eftir frjálsu vali, en helzt skal nota strigaskó. 1. þraut — Innanfótarspyrna Innanfótarspyrnur í mark, 0,75 m breitt, færi 6 m. Markið skal vera 2 stengur og skal spyrna 5 sinnum með hvorum fæti, 10 spyrnur alls. Aðeins er leyfilegt að veita 2 tilraunir. Náist ekki ti'- skilinn árangur, verður að bíða næsta prófdags og æfa betur. Árangur: Bronz: 6 heppnaðar spyrnur, Silfur: 8 heppnaðar spyrnur, Gull: 9 heppnaðar spyrn- ur. 2. þraut — SJcot á niark. Skot á markið með hreinni rist- arspymu af 16,5 m. Skjóta skal frá vítateigslínu beint fram undan markinu. Spyrna skal 5 sinnum með hvorum fæti, fyrst með hægri og síðan með vinstri. Markinu er skipt í þrjá hluta (sjá meðfylgj- andi mynd) og eru gefin 3 stig fyrir að hæfa ytri bilin (1,5 m) og 732 m 3u 1 st 3st (í sry. T I 1 stig fyrirað hæfa stóra bilið milli innri stanganna, sem verða að ná upp á þverslána. Knötturinn má fara af stöngum og inn í markið. Lendi knötturinn í marksúlum og þverslá, og hrökkvi út, er ekkert stig gefið, en lendi hann í innri stöngum, er gefið 1 stig. Próf- dómari verður að fylgjast með, að spyrnan sé réttilega framkvæmd. Aðeins heimilt að veita 2 til- raunir.

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.