Valsblaðið - 01.05.1959, Blaðsíða 20
18
VALSBLAÐIÐ
Það sem af er þessu ári hafa fjögrur íþróttafélög; minnst merkisafmæla sinna.
Öll hafa félög þessi unnið merkt brautryðjendastarf á sviði íslenzkra íþrótta-
mála, og við þau öll hefur Valur átt meiri eða minni samskipti á liðnum árum,
samskipti sem skulu þökkuð af heilum hug' um leið og öllum er árnaö
allra heilla í þjóðnytjastarfi sínu framvegis sem hingað til. En hau félög sem
hér er um raaða eru:
Jens Guðbjörnsson.
GlímufélagiS Ármann, sem talið
er stofnað 15. desember 1888 hér
í Reykjavík, fyrir forgöngu séra
Helga Hjálmarssonar, síðar prests
að Grenjaðarstað og Péturs Jóns-
sonar blikksmiðs, er elzt, eða 70
ára. Með stofnun Ármanns hófst
endurvakning þjóðaríþróttar vorr-
ar, gh'munnar, og hefir sú endur-
vakning enst fram á þenna dag.
Ármann hefir alla tíð verið eitt
fremsta íþróttafélag landsins og
um langt skeið haft á stefnuskrá
sinni flestar þær íþróttagreinar,
sem stundaðar eru hér á landi, að
knattspyrnunni undanskilinni, og
átt frumkvæðið að sumum þeirra.
Aðalíþróttakennari Ármanns
var um áratugi Jón Þorsteinsson
íþróttafrömuður og forgöngumað-
ur um líkamsræktar landsmanna.
Sá, sem lengst hefir gegnt for-
mannsstarfi í Ármann er Jens
Guðbjörnsson, er verið hefur for-
maður síðan 1927 og er það enn.
Hefir Jens reynst sérlega ötull og
farsæll forystumaður, ekki aðeins
fyrir Ármann heldur og á sviði
iþróttamálanna yfirleitt.
1 tilefni þessara merku tíma-
móta var vígt og tekið i notkun
stórt og vandað félagsheimili, sem
Ármenningar hafa unnið að á
undanförnum árum.
Þá var afmælisins og minnst
með fjölmennu hófi í Sjálfstæðis-
húsinu hinn 21. febrúar s.l.
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
(K. R.) var stofnað í marz 1899,
og átti því 60 ára afmæli á þessu
ári. Það voru nokkrir litlir dreng-
ir, sem hófu upp merkið, með því
að aura saman í knött; má því
segja að það ,,byrjaði sem blær-
inn, er bylgju slær á reyn“, en átti
síðar eftir að verða að sterkviðri,
sem blés auknum krafti og dug í
æsku þjóðarinnar. K. R. eins og
það er oftast nefnt, gerði knatt-
spyrnuíþróttina að aðalíþrótt sinni
og er brautryðjandi hennar hér-
lendis, en síðar hefir félagið tekið
upp flestar þær íþróttagreinar,
sem hér eru stundaðar og má nú
teljast eitt öflugasta íþróttafélag
Einar Sæmundsson.
landsins, og hefir oftar en nokkuð
annað félag, staðið á hátindi, bæði
að því er tekur til knattspyrnunn-
ar og frjálsra íþrótta.
PÁlagslega er K. R. sterkt félag
og hefir jafnan átt á að skipa
þróttmiklum og dugandi forystu-
mönnum. En engum er gert rangt
til þó minnst sé þess mannsins,
sem tvímælalaust ber hæst í for-
ystusveit K. R. um áratugi, en það
er Erlendur Ó. Pétursson, sem átti
sæti í stjórninni um 43 ára skeið
og þar af sem formaður 23 ár. Er-
lendur andaðist svo sem kunnugt
er á s.l. ári. Hann bar merki K. R.
og íþróttanna yfirleitt, hátt og
djarft, ,,en merkið skal standa þó
maðurinn falli“. Nýr merkisberi
hefir tekið við, sem mun hafa full-
an hug á að bera merki K. R. og
íþróttanna eigi skemur áleiðis en
fyrirrennari hans og til þess er
hinn nýi formaður, Einar Sæ-
mundsson, manna líklegastur.
I sambandi við tímamót þessi
vígði K. R. nýjan skíðaskála, sem
er einn stærsti og vandaðsti skíða-
skáli landsins, og fjölmennt af-
mælishóf hélt félagið 7. marz s.l.
í Sjálfstæðishúsinu.
Ungmennafélagiö Afturelding í
Mosfellssveit átti 50 ára afmæli
11. apríl s.l. Var þess minnst með
fjölmennu samsæti að Hlégarði þá
um kvöldið. Afturelding er eitt af
merkustu ungmennafélögum lands-
ins og hefir mjög látið til sín taka
margskonar menningarmál sveitar
sinnar. Á sviði íþróttamálanna
hefir Afturelding verið athafna-
söm. Hefir félagið tekið virkan
þátt í mörgum mótum og átt á að
skipa ýmsum fræknum íþrótta-
mönnum, sem vakið hafa verð-
skuldaða athygli. I handbolta hef-
ir félagið átt góða flokka og er nú
að undirbúa þátttöku sína í knatt-
spyrnunni, og mun taka þátt í
þeirri íþrótt nú á þessu ári.
í þessu sambandi er þá ekki úr-
Guðjón Hjnrtnrson.