Valsblaðið - 01.05.1959, Side 22
20
V ÁLSBLAÐIÍ)
Úr félasslífmu
HRAÐSKÁKMÓTI VALS er
nýlokið og var í fyrsta sinn keppt
um Hrók þann, sem Jóhann Eyj-
ólfsson gaf.
Keppendur voru 25 og var k:ppt
í þrem riðium, komust tólf í ú'rslit.
Sigurvegari varð Gunnar Gui'n-
arsson með 22 vinninga af 22
mögulegum. Annar varð Trausti
Björnsson, með 18*4 vinning,
þriðji Baldur Hermannsson með
131/2 vinning, fjórði Jón Bjö’rns-
son með 13 vinninga og fimmti
Bragi Bjarnason með 121/2. Sem
dæmi um styrkleika mótsins má
geta þess til gamans, að skák-
meistari ísafoldar, Björgvin Dan-
íelsson hafnaði í áttunda sæti með
9 vinninga. Um skáklífið í vetur
er það að segja, að nokkrar skák-
æfingar hafa verið og aðsókn að
þeim allgóð. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Gunnari Gunna'rssyni
er ætlunin að byrja skákæfingar
snemma í haust og hafa þær hálfs-
ar I.B.R. að þessar upplýsingar
vantar, heldur eingöngu tregðu fé-
laganna að afhenda skýrslur um
starfsemi sína. Ættu félögin að
sjá hag sinn og sóma í því að gera
ekki stjórn l.B.R. erfitt fyrir á
þessu mikilvæga sviði, einkum þar
sem bandalagið hefur að öðru leyti
verið rekið með hinum mesta
myndarbrag og mörgu góðu áork-
að.
I.B.R. er eins og K.R.R. hinn
mikilvægasti hlekkur í samstarfi
félaganna, en auk þess fulltrúi
þeirra útá við, á flestum sviðum
og tengiliður við yfirvöld borgar
og ríkis. Hefur formaður þess um
10 ára skeið, Gísli Halldórsson
arkitekt, unnið íþróttahreyfing-
unni ómetanlegt gagn með forustu
sinni í I.B.R. og á öðrum sviðum.
I tilefni 15 ára afmælisins ósk-
ar Valsblaðið bandalaginu að
gagnkvæmur skilningur, virðing
og samstarf félaganna megi ávallt
auðkenna starf þess, þá mun það
miklu áorka.
Ó.S.
Skíðameistari Vals.
mánaðarlega, og er ekki eða efa
að þær verða vel sóttar.
Mikill kraftur hefur verið í
b'ridge-mönnum í vetur. Hafa æf-
ingar verið nær hvert mánudags-
kvöld 0g aðsókn góð. Tvær keppn-
ir hafa verið, tvímennings- og ein-
menningskeppnir. Tvímennings-
keppnin var þriggja kvölda
keppni. Sigurvegarar urðu Sveinn
K. Sveinsson og Jón Ingimarsson,
næstir Á'rni Njálsson og Sigurð-
ur Sigurðsson. Einmenning vann
svo Árni Njálsson.
Þrjár keppnir hefur svo Valur
háð við önnur félög. Tvær við
U.M.F. Aftureldingu og unnust
þær báðar með 4—0. Bridge-menn
að Reykjalundi unnust með 3—1.
FYRSTA skemmtun vetra'rins
var haldin 23. jan. s.l., var hún
vel sótt og skemmtu menn sér hið
bezta. Síðan hafa verið haldnar
tvær skemmtanir og hafa báðar
tekizt vel.
Árshátíðin var haldin í Silfur-
tunglinu 13. marz, og var aðsókn
allgóð. Ævar Kvaran og Hjálma'r
Gíslason sungu við undirleik hins
gamla Valsmanns, Sigfúsar Hall-
dórssonar, Valskvartettinn söng
og lesin var þáttur úr félagslífinu.
Stiginn var dans til klukkan tvö
og áð lokum sungu allir Valssöng-
inn.
Á þessum skemmtunum í vetur
hafa verið fluttir af segulbandi
þættir ú’r félagslífinu, sem hafa
orðið vinsælir. Er þar deilt á menn
og málefni í léttum tón. Á síðustu
skemmtun var t. d. þáttur frá
Skíðanefnd og komu þar fram
þessar vísur eftir Sigurð Marels-
son:
Oft er gaman út á sjó,
einkum þegar vorar.
Gunnar mátar menn og skó,
en mörkin aldrei skorar.
I Valsskálann nú vanta'r prest,
sá væri öllum þarfur.
Einar syngur bassann bezt
og baular eins og tárfur.
Það er eitt í þessu sambandi sem
þarf að koma fram. Þótt skemmt-
anir Vals hafi í vetur verið nokk-
uð vel sóttar, hafa þær ekki ver-
ið nógu vel sóttar, það skulu menn
athuga, það er að segja þeir menn
sem eitthvað vilja vera með í fé-
lagslífi Vals.
Didi fékk hœnsnabú
í verölaun
Áður en lið Brasilíumanna
lagði af stað til Evrópu til H. M.
tók hægri innherjinn Didi þátt í
merkilegu veðmáli. Ef Brasilía
næði því að komast í úrslit, átti
hann að fá hænsnabú með 1000
hænsnum, en ef þeim tækist það
ekki, þá mundu fremur leiðir tím-
ar bíða hans, þá mátti hann
hvorki raka sig né láta skera hár
sitt næstu fjögur árin eða þar til
næsta H. M. yrði í Chile, 1962.
En Didi slapp vel, hann fékk
hænsnabúið, þegar heim kom!
/ \
*
A Valsveltunni
Sunnudaginn 3. þ. m. lilaut ungur
liandknattleiksmaður Vals, Einar Egils-
son, aðalvinninginn, scm er feriV með'
m.s. Gullfossi á 1. farrými lil Kaup-
mannaliafnar og heim aftur.
J