Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Qupperneq 15
ALMANAK 1913.
0
Fastastjörnur:
Fö%tum stjörnum er skift í flokka eftir birtu þeirra. Stjarna,sem
g'ef.ir frá sér birtu á móts við meðal birtu tuttugu björtuslu stjarn-
anna, sem sjást, er stjarna hinnar fyrstu stærðar (Magnitude).
Smærri stjörnur en sjöttu stærðar sjást ekki með berum augum,
fyrstu stærðar stjörnur eru hundrað sinnum bjartari en þær. Með
berum augum má sjá um 5,000 stjörnur og er tala þeirra í flokkum
nnig:
Fyrstu stærðar um 20 Fjórðu stærðar um 425
Annarar “ “ 65 Fimtu “ “ 1100
Þriðju “ “ 190 Sjötta “ “ 3200
Sjónauki, þrjá þumlunga í þvermál, sýnir um 324,188 stjörnur.
Flestir sjónaukar notaðir við stjörnufræðislegar athuganir eru miklu
stærri og sýna þá náttúrlega fleiri stjörnur.
Bjartasta fastastjarnan heitir Siríus. Hún skipar að réttu
lagi sess út af fyrir sig. Hún er miljón sinnum lengra trá jörðinni
en sólin.' Hún hefir fylgihnött sem er sjö sinnum þyngri en sól vor.
Síríus er fimm þúsund sinnum bjartari en fylgihnöttur hans,en er að
eins tvöfalt þyngri. Þessi fylgihnöttur fer hringferð sína um Síríus
á fjörutíu og níu árum eftir því sem næst verður kömist.
Fjarlægð fastastjarnanna er jafnan miðuð við tímann sem Ijósið
þarf til að terðast f rá þeim til jarðarinnar. Ljóshraðinn er um 186,300
mílur á sekundu. Ljósár er sú vegalengd nefnd sem ljósið ferðast
yfir á heilu ári. Fjarlægð stjarnanna er því mæld í Ijósárum.
Fáar fastastjörnur eru svo nálægar að mögulegt sé að mæla hve
langt þær eru í burt. Sú sem er næst er að eins þrjú Ijósár í burt.
Aftur á móti er vegalengdin tíl Arciurus um hundrað Ijósár. Arc-
turus er þrettán hundruð sinnum bjartari en sól vor; og nálgast jörð-
ina með fimm mílna hraða á sekundunni.
Vega er um þrjátíu ljósár í burt; og nálgast með tíu mílna hraða
á sekúndunni. Éftir tólf þúsund ár verður hún orðin pólst jarna vor.
Stærst í heimi.
Mesti banki heimsins er Englandsbankinn í Lundúnum; elzti
háskóli er University College í Oxford, stofnaður 1050; stærsta
bókasafn heimsins er landsbókasafnið í París, er hefir næstum því
3,000,000 binda.
Stærsta lcikhús heimsins er sönghöllin í París og er landspildan
er hún stendur á þrjár ekrur að stærð; stærsta bronze-líkneski er
standmynd Péturs mikla í St. Pétursborg, er vigtar 1100 tonn.
Stærsta steinlíkneski er í Japan og er 44 feta hátt; stærsti háskóli
er í Cairo, þar eru 10,000 nemendur og 310 kennarar.
Dýpsta kolanáma er skamt frá Lambert í Belgíu og er 3,500
feta djúp, stærsta skipakví er í Cardiff í Wales, rafurmagnslampi
sá er mest ljósmagn hefir er í vltanum við Sidney í Astralíu, en
stærsti vitaturn heimsins stendur á Cape Henry í Virginíu og er
hann 165 fet á hæð.