Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Side 75
ALMANAK 1913.
43
tók land aö ráði Þórðar bróður síns á vesturbrún dalsins,
ij^mílu í austur, þar sem nú er bærinn Upham. Annað land
áfast við nam Sveinbjörn, elzti sonur Þórðar. Á löndum
þessum reisti Þórður bú þótt efni væru lítil; ómegð hans var
mikil. Þannig bjuggu þau hjón um nokkur ár, þar til Þórð-
ur missti heilsuna; voru þá börn hans flest á legg komin, sum
fullorðin. Hann er nú dáinn, er þetta er ritað. — Þórður var
vel gefinn maður, óvanalega mikill mannvinur, svo hjá hon-
um sat ávalt í fyrirrúmi örlæti og góðvild til allra, sem hann
náði til. Þórður Benidiktsson er enn sem komið er kynsælli
en allir aðrir nýlendubúar; af II börnum hans lifa.tíu innan
bygðarinnar og eitt í Canada. Ekki tóku börn þessi fjármuni
að erfðum eftir föður sinn, en þar í stað undantekningarlaust
mannkosti hans og vinsældir. Eftir að Þórður var dáinn tók
kona lians, María Sveinsdóttir, land að ráði Sveins Vestfjörð
dótturmanns síns, og er hann nú eigandi að landi hennar.
María er ein með greindustu konum bygðarinnar og vel farið
um flest og manni sínum samhent í allri mannúð. Hún er
bókgefin og vel að sér og hefir tekið mikinn þátt í samkvæm-
islífi bygðarinnar og stutt að uppfræðslu unglinga í íslenzkum
fræðum.
JÓN BJÖRNSSON frá Þrándarstöðum í Eiðaþinghá.—
Hann kom til Ameríku 1883 og dvaldi um nokkur ár í Pem-
bina-héraði og flutti til Mouse River vorið 1896. Kona hans
var Margrét Benidiktsdóttir, systir Þórðar, sem hér að fram-
an er getið. Synir Jóns Björnssonar eru: Sigurbjörn og
Björn, báðir búsettir innan nýlendunnar. Kona Björns Jóns-
sonar er Halldóra Jónsdóttir, ættuð úr Breiðdal í Suður-
Múlasýslu.
SIGBJÖRN JÓNSSON, Björnssonar frá Þrándarstöð-
um, er einn í tölu þeirra mannna, er aldrei hefir sýnst að stað-
festa ráð sitt og kvænast. Hann hefir um 16 ára skeið búið
innan bygðarinnar ókvæntur og farnast vel, að líkindum með
þeirri hugsun að frjálsari stöðu geti ekki. Framan af stund-
aði Sigbjöni akuryrkju en í seinni tíð griparækt. Hann er
félagslyndur, ör á fé og drengur góður og vinsælli en flestir
aðrir einsetumenn.