Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1913, Page 125
ALMANAK 1913.
93
Móðir Guðrúnar hjet Ingibjörg Jónsdóttir, Jónssonar á
Smyrlabergi á Ásum í Húnaþingi, og konu hans Marsibilar
Samsonardóttur, er bjuggu á Svínavatni síðustu ár æfi sinn-
ar; þau áttu 19 eða 20 börn,. er flest náðu fullorðinsaldri. Ætt
sú var kölluð Samsonarætt og var all-fjölmenn. Frá Reykja-
vík flutti Guðrún með son sinn vestur í Dalasýslu, inn i Mið-
Jali, árið 1879. Þar giptist hún manni þeim er Torfi hjet,
Sveinsson, ættaður þar úr sveitinni. Þeirra börn voru:
Mattheus, Kristmanh og Ingibjörg, hálfsystkini Jóns A. 01-
son. Eru bræðurnir með móður sinni í Glenboro, Man., en
systirin er gipt enskum manni, McNaughton að nafni, í Ed-
monton, Alta. Til Ameríku fluttist Jón með móður sinni árið
1887, til Argyle, Man., og var þar þangað til árið 1901, að
hann flutti vestur til Alberta og nam land fimm mílur norður
frá Markerville. Jón er lijer í fremstu röð meðal ungra
manna, vel gefinn að flestu, smiður góður og verkhagur á
allt er hann leggur hönd á. Hann kom fjelaus til Alberta,
en hefir síðan græðzt fje svo efnum hans er nú vel 'komið.
65. ÞÁTTUR.
GUDMUNDUR BJÖRNSSON,—Eaðir Guðmundar var
Björn Jónsson, bóndi í Illíð við Kollafjörð í Strandasýslu.
Móðir Guðnnindar var Þórdís Guðmundardóttir Einarssonar,
bróður Ásgeirs Einarssonar á Þingeyrum í Húnaþingi. Ætt
Guðmundar Björnssonar er gjörr sögð í II. kafla sögunnar,
19. þætti. — Guðmundur kvæntist Helgu Gestsdóttur, Magn-
ússonar frá Óspakseyri í Bitru, Strandasýslu. Móðir Helgu
var Guðrún Gísladóttir, Majgnússonar á Þambárvöllum í
Bitru. Systkini Helgu voru 10; af þeim eru á lífi: ein systir,
Guðlaug að nafni, kona Ásmundar Einarssonar á Mýrum við
Iirútafjörð í Húnavatnssýslu. Guðmundur og Helga áttu
fjögur börn, einn son og þrjár dætur. Guðmundur flutti frá
ísla'ndi vestur um haf árið 1901; fór hann fyrst til N. Dak-
ota og dvaldi þar eitt ár, en flutti síðan vestur til Alberta-
nýlendunnar og nam land norður frá landnámi Guðmundar
Þorlákssonar, tengdabróður síns, og bjó þar síðan. Guð-
mundur var fjelaus, er hann flutti til Alberta, en hvorttveggja
var, að hann var dugandi maður og eigi síður hitt, að systkin
hans voru hjer áður komin og orðin vel við efni, og hlúðu þau