Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1926, Qupperneq 59
40
af Akureyri 4 karlmenn: Jóhannes Arngrímsson frá
Bægisá í Öxnadal, Jón Halldórsson frá Stóruvöllum í
Bárðardal, og Jónas Jónsson, bróÖir séra Jóns Aust-
mannsl á Halldósstöðum i sörnu sveit, og fóru þeir allir
til Bandaríkjanna. Sá fjórði var Sigtr. Jónasson, og
staÖnæmdist hann í Canada. — Af Eyrarbakka fara þaS
ár (1872) 14 manns. Er hér kafli úr bréfi, skrifuöu
íyrir 30 árum siÖan, frá einum sem í þeim hópi var:
"i3ann 13. júni 1872 fóru af Eyrarbakka 14 manns.
Þar á meðal voru: séra Páll Þorlákss'on, séra Hans' B.
'I'horgrímsen, dr. Árnabjarni Sveinbjörnsson, Stefán
Stephensen, Árni Guömundsen og Ólafur Guðmundsson
frá Arnarbæli og fleiri. Þeir fóru með seglskipi til
Eiverpool og höfðu 17 daga útivist, — sífeldan útsynn-
ing. Þeir styttu sér stundir með ’kveðskap, því skáld
fundust meðal þeirra. Eftir 4 daga dvöl í Liverpool var
lagt á stað til Vesturheims og lentu þeir að Iialifax, N.
S„ eftir 10 daga útivist. Hér má geta þess, að nokkrir
þessara ungu manna gengu upp i bæinn og keyptu sér
flösku af portvíni, og var það hið fyrsta frægðarverk,
seni þeir unnu á Vínlandi. Myndu þeir hafa drukkið
skál Leifs hins hepna Eiríkssonar, hefði hann ilengst
hér og þar með varðveitt þá frá því að þurfa að láta
nokkurn heyra, hvað bjagaða ensku þeir töluðu, því þá
mundu þessir garpar hafa mælt á feðratungu sína, —
en, úr þvi Leifur toldi hér ekki, átti hann það ekki skil-
ið, og skálina hlaut garnla ísland.’'
Árið 1873 fara all-inargir af fslandi til Bandaríkj-
anna. Þar á meðal sá maður, sent fyrstur fslendinga
nemur land í Minnesota. Það var Gunnlaugur Péturs-
son frá Hákonarstöðum á Jökuld'al. Fyrst eftir að hann
kom frá fslandi settist hann að í Wisconsin meða.1 Norö-
manna. Þá var all-mikill flutningur Norðmanna frá
Wisconsin til suðvestur-hluta Minnesota ríkis. í mai-
mánuði 1875 tók Gunnlaugur sig upp þaðan sem hann
var, með konu og börn, og leitar vestur á bóginn. Ók
hann á vagni, er uxar gengu fyrir, rúmar 500 mílur, og
nemur staöar, eftir þriggja vikna ferð, í Lyon County