Afturelding - 01.05.1938, Side 11

Afturelding - 01.05.1938, Side 11
.AFTURELDING Tollefsen og kona og Immanúel í kerruferð. kvöldið. Á g'istihúsinu, þar sem við bjuggum, hafði verið skreytt jólatré í borðstofunni. Hér fékk Imm- anúel í fyrsta sinn að ,sjá jólasvein. Þegar hann kom inn um dyrnar, fór Immanúel að háskæla. Slíkthafði bann aldrei áður séð. Gestgjafirm reyndi á allar lundir að hugga hann, og þegar jólasveinn- inn kom til hans, talaði við hann og síðast lyfti honum hátt upp, til þess að hann gæti sjálfur val- ið sér jólagjöf af trénu, þá snerist sorgin upp í takmarkalausan fögnuð. Nú kvöddum við föður hans með sarum sökn- uði. Yið grétum öll. Hann hafði þá borgað fyrir ckkur allan ferðakostnað frá Luvungi og dvöl okk- ar á gistihúsinu bæði í Uviru, og síðast. í Usum- buru. Nú var kominn tími til að fara um borð í skipið. Ferðalagið yfir Tanganikavatnið var unaðslegt. Það minnti okkur á Miðjarðarhafið. Gamlái'skvöld kom- um við ti! Kigomu í ensku nýlendunni. Þaðan fór- um við svo með járnbrautarlest þvert yfir Austur- Afríku til Daresalam við indsverska hafið. Þá höfð- um við ferðast1 stanslaust í 48 klukkutíma, að mestu leyti yfir óræktað land. Þessi, járnbraut er það þrekvirki verkfræðinganna, sem á fáa sína líka í Afríku. Immanúel fannst þetta mjög merkilegt. Hann hafði aldrei fyrr séð járnbrautarlest,, hvað þá heldur ferðast með henni. Við þurftum nú að hafa vegabréf okkar í lagi. Þetta var heitasti tími ársins í Daresalem, og við urðum þess vegna að halda okkur inni allan dag- inn, en er sól var sezt, fórum við niður að strönd- inni og fengum, okkur bað. Þetta fannst Imman- úel gaman, ekki sízt að liggja á bakinu á mér í sjónum. Eitt sinn, er við vorum að þessu, fór stórt Evrópuskip fram hjá okkur. Slíkt, hafði hann aldr- ei séð fyrr. Það var skipið, sem átti að flytja okkur langt burt frá heimalandinu hans. Burt — út í hið fjarlæga -— ókunna. Undir suðurkrossinmn. Við vorum stödd fyrir sunnan miðjarðarlínuna og gátum séð suðurkrossinn á hverju kvöldi. Þaö er nokkurskonar leiðarstjarna á þessu breiddar- stigi. Hið fyrsta sem þjónninn gerði, er við komum út í skipið, var að taka Immanúel frá okkur. »Hann fær ekki leyfi til að vera hér meðal hvítra manna«, sagði hann. Þetta var í fyrsta sinn, sem Imman- úel komst í kynni við kynþáttahatrið. Okkur þótti sárt að sjá hann hverfa undir þiljur, en urðum auðvitað að beygja okkur fyrir reglum skipsinsi. En Immanúe] var ekki ráðþrota,, Hann gægðist upp í stigagatið, og ef hann sá eitthvað til okkar, var hann ánægður. Svo fór hann að færa sig upp á skaítið 0(g voga sér lengra og lengra, þar til hann allt í einu stóð á meðal okkar í salnurn, en þar var enginn, sem skipti sér af því eða reyndi að hindra hann. Áður en leið á löngu, var hann orð- inn eftirlætisgoð allra á skipinu. Hann var svo barnslega glaður og eðlilegur, að hann ávann sér hylli allra, jafnvel þjónanna, sem laumuðu ávöxt- um til hans. Fólkið á fyrsta farrými kom, meira að siegja, og tók myndir af honum. Fyrsti viðkomustaður okkar var Porto Amalia, portúgalskur hafnarbær. Þar var þó ekki svo álit- legt, að okkur fýsti að koma, í land. Næst var Mósambik. Þar fórum' við í la,nd og vorum viðstödd kaþólska guðsþjónustu. Á betra var ekki völ. Þarna var samt ekkert handa þyrstri sál, en því meira til að horfa á. Knébeygingar fyrir Maríu mey og krossmarkinu, vígt vatn, skrautlegt altari, marg- litir prestakjólar og kórdrengir skrýddir öllum lit- um regnbogans. Prédikun heyrðum við enga. Er við komum til Bivi, kunnum við betur við okkur, þar lágu nefnilega 2 norsk skip á höfninni, en hitinn var svo mikill, að ekki var viðlit að fara á land. I Lorenza Marqus fundum við fyrst, að nú vor- um við komin í betra, loftslag, hitinn er að vísu mik- ili í Suður-Afríku, en jafnast ekki við hið bruna heita Kongo. Með skipinu var enskur herramaður. sem' sagði mér, að eflaust mundi verða erfitt fyr- ir mig að ferðast, með Immanúel um Suður-Afríku, 35

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.