Afturelding - 01.06.1962, Blaðsíða 16
AFTURELDING
Bréf frá Vesturheimi
Afturelding hefur marga áskrifend-
ur og víðsvegar. Kona frá Vestur-
heimi skrifar bréf, sem við móttók-
um í gær. Hún segir:
,,....Ég móttók eintak af Aftur-
eldingu, ég hélt að þetta eintak væri
mér tapað, en svo kom það í morg-
un, en nú er komið kvöld, klukkan
er 7. Ég les blaðið undir eins og það
kemur, en svo er ég vön að fara
yfir það aftur seinna, því að Aft-
urelding er skrifuð til mín....
Það eru ekki margir Islendingar
hér, sem kæra sig um Hvítasunnu-
kenninguna. Ég er eini íslendingur-
inn í þessari byggð, sem heyri til
hvítasunnukirkjunni. En ég lofa
minn Drottin, að hann dró mig þang-
að, eins og Jesús sagði, að enginn
kæmi til hans, nema faðirinn dragi
hann.
Ég lofa minn Drottin og frelsara
fyrir allt sem hann leið fyrir mína
syndumspilltu sál. Það var svo dá-
samlegt, þegar ég kom til Jesú og
hann frelsaði mig. ... i
En svo kom það, að ég vildi ekki
biðja Jesúm að skíra mig í Heilögum
Anda. Ég var svo hrædd við tungu-
talið, að ég mundi segja eitthvað,
sem Guði væri ekki þóknanlegt, þeg-
ar ég skildi það ekki sjálf. Svo var
það fimm árum eftir að Jesús frels-
aði mig, að Drottinn sendi mér
hjálp í þessum vanda. Kom þá til
hvítasunnukirkjunnar vakningarpré-
dikari, það var kona, sem var fyllt
Heilögum Anda og eldi. Eftir eina
prédikun hennar, segir hún út yfir
alla: „Hér situr inni einhver, sem
Drottinn vill sérstaklega skíra í
Heilögum Anda.“ Þá sagði ég við
Drottin: „Ef það er ég, þá kem ég
nú fram að bænabekknum.“ Um leið
féll Heilagur Andi yfir mig og ég
talaði nýjum tungum, og þeim
óþekktu tungum tala ég oft síðan....
48
Tage Sjöberg, sem kom um miðjan
febrúar til Reykjavíkur, dvaldi hér á
landi til 25. apríl. Sjöberg er ágætur pré-
dikari og naut mikilla vinsælda hér. —
Mest var hann í Reykjavík, en fór þó
bæði til Akureyrar, Stykkishólms, Kefla-
vikur og Kirkjulækjarkots. Það leyndi
sér ekki að maður þessi talaði af mikilli
lífsreynslu og sannri þekkingu á Guðs
orði.
Það er dásamlegt að þið eruð
búin að koma kirkjunni ykkar svo
langt áleiðis, að þið eruð farin að
halda guðsþjónustur í henni. Oft
hugsa ég um það, hve það væri ynd-
islegt að vera horfin heim og mega
hlusta á hvítasunnukenninguna á is-
lenzku. Ég er svo þakklát vegna
þess að Guð leiddi mig inn í þessa
kirkju hér í Ameríku. Hér hef ég
fundið nálægð Guðs svo oft. Þar vil
ég lifa og heyra til, þangað til tím-
inn er kominn fyrir mig að fara
heim þangað, sem syndin er ekki
til....“
Við óskum þessari trúsystur okkar
allrar Guðs blessunar, og að hún
megi berjast góðu baráttunni, fullna
skeiðið, varðveita trúna, eins og
Páll orðar það.
Snraarmótið
I ár veitist okkur hér á ísafirði
sú gleði að mega bjóða Hvítasunnu-
fólk á Islandi velkomið til sumar-
móts hingað, og er það í annað sinn
í sögu safnaðarins hér. I fyrra
sinnið voru mótsgestirnir 80 talsins,
en í ár væntum við miklu fleiri þátt-
takenda, þar sem betri möguleikar
eru nú á því að komast til og frá
með bílum, síðan vegir opnuðust
alla leið hingað.
Það er ákveðið að mótið hefjist
sunnudaginn 1. júlí, og standi yfir
í viku, að næsta sunnudegi meðtöld-
um. — Samkomur og biblíulestrar
verða dag hvern. Sennilega munum
við halda kvöldsamkomur þannig,
að á kvöldin verði samkomur bæði
hér í bænum og í bæjunum í ná-
grenninu, og af þeirri ástæðu er
æskilegt að svo margir af gestum
sem eiga bíla, komi á þeim til móts-
ins. Við Hvítasunnumenn komum
ekki aðeins saman til að njóta sam-
verunnar, heldur einnig til að starfa,
og af því væntum við ríkulegrar
blessunar.
Mótsgestir eru beðnir að hafa með
sér lök, sængur og kodda eða svefn-
poka. Einnig væri æskilegt að hafa
vindsængur með.
Tilkynningar um þátttöku sendist
undirrituðum sem fyrst. Verið vel-
komin og komið með brennandi
hjörtu og þrá eftir að mæta Guði.
F.h. Salemsafn. á ísafirði,
Göte Anderson, Salem
Box 34. Sími 506. Ísaíirði.
Bústaður GuBs er hellagur. ,,LIt nlður
írá hlnum hellaga og dýrðlega hústað",
seglr Salómon konungur. „Án helgunar
fær englnn Drottln litið.” Hebr. 12,14.