Afturelding - 01.08.1962, Side 9
AFTURELDING
LITLI BIBLIUSKÓLINN
1 fyrstu Mósebók, byrjar fimmti
kapiinn á þessum orðum: „Þetta
er œttartala Adams.“ Það er ætt-
artölubók Adams. Hún innlheldur
nöfn afkomenda hins fyrsta manns,
sem af jörðu er kominn, hins
jarðneska manns. Eins og Blblían
segir: „Hinn fyrsti maður er frá
jörðu, jarðneskur."
Siðan höfum við ættartölu sið-
ari Adams (Krists) í Matteusar
guðspjalli 1. kapítula. Það er bók
hjálpræðisins. Þar er byrjað að
rekja ætt Jesú frá Abraham. Það
er því lína trúarlnnar, sem hér er
dregin upp. vegur hjálpræðisins.
Það er lærdömsríkt að sjá það,
að forfeður þeir, sem ekkl koma
inn i ættartölu Jesú, frá Abra-
ham til Jesú Krlsts, það er að
segja, þeir, sem eru á vantrúar-
linunni í Biblíunnl, eru fyrst leldd-
ir fram. Og þá kemur það þannlg
út:
Kain kemur á undan Set. (I.
Mós. 4,17; 5,6).
Kam kemur á undan Sem. (I.
Mós. 10,6; 11,10).
Ismael kemur á undan Isak. (1.
Mós. 25,12; 25,19).
Esaú kemur á undan Jakob.
(1. Mós. 36,1; 37,2).
Þetta getur okkur virzt I fyrstu
mjög elnkennilegt. En vlð nánari
athugun kemur hér fram hlð dá-
samlega samræml í Biblíunni.
Blblían seglr: „En hið andlega
kemur ekki fyrst, heldur hið nátt-
úrlega, því næst hið andlega."
(1. Kor. 15,46). Af þessu sézt að
nöfn þeirra, sem nefndir eru fyrst,
eru fulltrúar þeirra, er Biblían
kallar „holdsins börn“. (Róm.
9,8). Þeir eru um leið fulltrúar
þeirra manna, „sem hafa hlut-
skipti sitt I lífinu", hinu jarð-
neska lífi. (Sálmur 17,14).
En nöín þeirra er koma á eftlr,
eru fulltrúar þeirra, er velja veg
hjálpræðislns, og sem vlðurkenna,
að þeir eru gestir og útlendingar
á jörðinnl. (Hebr. 11,13), Drott-
lnn væntir þess af þelm, að þelr
þoli biðina. Þoli að vera númer 2
á jörðinni, því að hlutur þeirra,
er hann kemur upp í eilífðlnnl,
verður svo óumræðilegur.
Ongflarnir og: þ jónusta þeirra
Niðurlag.
Augljóst er af Biblíunni, að í sambandi við hinn mikla heimsatburð, er
Jesús kemur aftur, þá verður þjónusta englanna áberandi. Þegar Gabríel
höfuðengill birtist Daníel, sagði hann, að við endi daganna, við endi náðar-
tímabilsins, mundi „hinn mikli verndarengill“ Míkael, sem er verndarengill
ísraelsþjóðarinnar, ganga fram. Það ber að skilja þannig, að hann, ásamt
englasveitum sínum, muni fram ganga til að þjóna og hjálpa ísraelsþjóð-
inni í síðustu átökunum. (Dan. 12,1).
Á sama hátt sýnir Biblían að englarnir verða mjög áberandi, og þjón-
usta þeirra, við endurkomu og opinberun Jesús Krists. Það er auðvitað
ekki rúm eða tími til að dvelja við það, sem Opinberunarbókin segir um
þátttöku englanna við endurkomu frelsarans. En þetta getum við bent á, að
þegar Jesús hvarf frá lærisveinum sínum, voru þar tveir englar, sem sögðu
við lærisveinana: „Þessi Jesús, sem var uppnuminn frá yður til himins,
mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.“ (Post. 1,11).
Þá segir 1. Þess. berum orðum að Jesús muni stíga niður af himni aftur,
með höfuðengils raust og básúnublæstri. (1. Þess. 4,16). Þetta orð lýtur að
því þegar Kristur tekur sína heilögu til sín upp í lofthimininn. Þá verður
Drottinn ekki sýnilegur almennt fyrir íbúum jarðarinnar. En burthrifning
hinna heilögu verður kunnug öllum á jörðu, eins og það varð kunnugt
með Elía, þegar hann fór heim til himins. Það varð kunnugt eftir á.
Eins með burthrifingu brúðar Krists. Hún verður kunnug eftir á. Þótt þjón-
En svo eftir þrenginguna miklu, þegar Drottinn opinberast með sínum
heilögu, þá opinberast einnig englarnir og þjónusta þeirra. Fyrir þessu
höfum við orð Jesú greinilega. Hann sagði: „En er mannssonurinn kemur
í dýrð sinni og allir englarnir með honum,“ o.s.frv. Heim við þetta kemur
orð Páls postula í síðara Þess. Þar segir hann til hinna trúuðu: „Svo sann-
arlega sem það er rétt hjá Guði, að endurgjalda þeim þrenging, sem að
yður þrengja, en yður sem þrenging líðið, hvíld ásamt oss, þegar Drott-
inn Jesús opinberast af himni með englum máttar síns.“ 2. Þess. 16—7).
Það mun verða stórkostleg sýn fyrir alla heimsbyggðina, þegar Jesús
opinberast með öllum sínum heilögu, eins og Opinberunarbókin talar um
í 19. kapítula, versin 11—16. Sjá einnig Júdasarbréf 14. vers. Og svo þeg-
ar milljónaskari englanna birtist samhliða öllum hinum heilögu. Það er
stundum litið niður á hina trúuðu hér á jörðu. Það er talað um að þeir
séu fáir, einn hér og annar þar. Af því er dregin sú ályktun að þetta geti
ekki verið það sem koma skuli. Það sé engin framtíð í því að fylgja Kristi.
En á þeirri stundu, þegar dýrð himnanna opnast og Kristur kemur, sem
konungur til jarðarinnar og allir hans heilögu, frá öllum öldum, ásamt
öllum englaskaranum, er þangað til hefur yfirleitt þjónað að útvalningu
hinna heilögu, mest í hinu hulda, þá munu allir fá að sjá það, að þetta
var einmitt framtíðin, að hafna heimi og synd, og taka afstöðu með Kristi
og hinum fáu í hverri kynslóð og með hverri þjóð.
Þjónn Elía spámanns uppgötvaði einu sinni, hinn hulda heim englanna.
Óvígur Sýrlenzkur her hafði í skjóli næturinnar sett litlu borgina í her-
57