Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 3

Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 3
jrkomu Krists? nægja mér. Jesús meinar það sem hann hefur sagt og orð hans varir að eilífu. Hvenær hann kemur? Það veit ég ekki og raunar enginn, nema Guð faðir. Hvernig hann kemur? Sá atburður verður vafalaust stórkostlegur, samanber t.d. Matteus 24. kafla. Sennilega kemur hann öllum á óvart, þess vegna segir hann: „Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi.“ (Matteus 24:44) Bubbi Morthens, rokkarí. Varðandi endurkomu Jesú Krists, V*1 ég einnig minna á komu Anti- hrists. Ég tel að hann sé þegar kom- ’Un, þótt ég geti ekki bent á hann sem persónu. En eftir öllum sólarmerkj- um að dæma virðist hið illa vera að taka yfirhöndina í heiminum. Ég trúi því að Kristur komi í enda!okunum. Ég trúi samt ekki að hann stígi til jarðar með lúðrablæstri °g birtist í efnisheiminum. Eftir þetta tel ég að þúsundárarík- 'ð rísi upp og þegar Kristur kemur fá hinir smáu og voluðu umbun fyrir þjáningu sína í þessum heirni. Mér sýnist á öllu að það sé stutt í endalokin og því best fyrir alla að fara að iðrast. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Já, ég vænti endurkomu Krists. Ég get engan veginn gert mér í hugar- lund hvenær hún muni verða, enda segir Ritningin að daginn eða stund- ina viti enginn, koma Mannssonarins verði eins og elding, sem leiftrar frá austri til vesturs, hann komi á þeirri stundu, sem við búumst ekki við. í 24. kafla Matteusarguðspjalls er sagt frá táknum, sem fara á undan endurkomu Drottins. Þá munu kyn- kvíslir jarðarinnar hefja kveinstafi. Ég hygg að við eigum að vera varkár við að túlka það, sem gerist í samtíð okkar sem undanfara endurkom- unnar, svo mjög sem okkur hættir við að fara þar lengra en ritað er og láta hugmyndaflug okkar taka völdin. Hins vegar skyldum við ekki sýna sjálfum okkur neina varkárni í því að minna okkur sífellt á að Jesús kemur aftur. Og við skyldum lifa lífi okkar í vakandi vissu um það. Það segir i kaflanum, sem ég vitn- aði í, að eins og fólk hafi etið og drukkið, kvænst og gifst dagana fyrir flóðið og ekki vitað fyrr en flóðið kom og hreif það allt burtu, svo verði koma Mannssonarins. Þar standa þau alvarlegu orð að þá muni tveir verða á akri, annar muni tekinn og hinn skilinn eftir, tvær muni mala í kvöm, önnur verða tekin og hin skil- in eftir. Þessi alvarlegi boðskapur má ekki falla okkur úr huga, hann verður að vera okkur svo ljós að hann hvetji okkur til að rækta trú sjálfra okkar í umhyggju, auðmýkt og fögnuði og boða fagnaðarerindið um Jesú í tíma og ótíma. Því boðskapur- inn um endurkomu Drottins er fagnaðarerindi. Þá verður syndin endanlega sigruð. Við ættum að lesa Opinberun Jó- hannesar til að fá endumýjaða og nýja vitneskju um endurkomu Krists. Þar eru svo margir kaflar, sem vekja okkur bæði ábyrgð og fögnuð. í 7. kaflanum er talað um þau, sem koma úr þrengingunni miklu og hafa þvegið skikkjur sínar í blóði Lambs- ins. Þar er sagt að Lambið, sem er fyrir miðju hásætinu, muni vera hirðir þeirra og leiða þau til vatns- linda Lífsins. Og Guð muni þerra hvert tár af augum þeirra. Ég held að við verðum líka að varast að láta hugarflug sjálfra okkar fara of geyst við lestur þessara vandlesnu kafla. En víst er að við þurfum sífellt að spyrja sjálf okkur hvort við séum í hópi þeirra í þrengingunni miklu, erum við í skaranum, sem hefur hvítfágað skikkjur sínar í blóði Lambsins? Þess þurfum við að spyrja sjálf okkur og þess þarf kirkjan öll að spyrja sig í sífellu. Hvernig?

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.