Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 13

Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 13
Hvað er átt við með upphrifningu? Sumir vilja meina að mótsagnir og ósamstæðir atburðir séu í Biblíunni. Hinir sömu eru menn, sem oft á tíð- um hafa lítið eða ekkert lesið í Biblí- unni. Eitt af þeim atriðum, sem sumir vilja meina að sé ósamræmi í, er þegar Biblían fjallar um endur- komu Krists. Sagt er að hann muni koma á skýjum himins' og einnig að hann muni standa á Olíufjallinu2 (fjall austur af Jerúsalem). Afar eðli- leg skýring er á þessu: Hér er ein- faldlega verið að fjalla um tvo at- burði (sumir segja tvo þætti sama at- burðar). Síðari atburðurinn er endurkoma Krists til þessarar jarðar en fyrri atburðurinn, mun eiga sér stað nokkru áður — en svo segir orð- rétt um þann atburð í Biblíunni: •>Ekki viljum vér, brœður, láta yður Vc‘ra ókunnugt um þá, sem sofnaðir (dánir, innsk. höf.) eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum þvi °ð Jesús sé dáinn og upprisinn, þá ntun Guð fyrir Jesú leiða ásamt hon- um fram þá, sem sofnaðir eru. Því að það segjum vér yður, og það er orð Drottins, að vér, sem verðum eftirá lífi v‘ð komu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu. Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengilsraust °g með básúnu Guðs, og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp r‘sa. Síðan munum vér, sem eftir lif- um, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. °g síðan munum vér vera með Dr-ottni “Ha tíma. “3 Upphrifningin er sem sagt sá atburður þegar Kristur tekur sinn söfnuð úr þessum heirni. Eins og hann segir: „Þegar ég er farinn burt °g hef búið yður stað, kem ég aftur og ‘ekyður til mín, svo að þérséuð einnig þar sem ég er.“A Þetta skeður mjög snögglega, án nokkurar viðvörunar. V'ð upphrifninguna kemur Kristur hl að ná í Brúði sína, söfnuð sinn eins °g segir: „Vér munum ekki allir sofna, en allir munum vér umbreytast í einni svipan, á einu augabragði, við l‘inn siðasta lúður. Því lúðurinn mun gjalla og þá munu hinir dauðu upp rísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast. “5 Þú, sem verður með, veist ekki einu sinni að þetta hefur gerst, fyrr en allt er um garð gengið. Allt í einu stendur þú frammi fyrir augliti Krists ásamt öllum söfnuði Hans. Söfnuðurinn mun umbreytast. Páll skrifar svo til Filippímanna: „En föðurland vort er á himni og frá himni vœntum vér frelsarans Drottins Jesú Krists. Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama vorum og gjöra hann líkan dýrðarlíkama sínum.“6 Hver er Brúður Krists eða söfnuður Krists? Er það einhver ákveðinn söfnuður eða kirkjudeild? Eru það Hvita- sunnumenn, Hjálpræðishermenn, Baptistar, Lúterskir eða einhverjir aðrir? Nei, það er engin sér ákveðin kirkjudeild eða söfnuður, heldur þeir sem trúa á Jesúm Krist. Lítum á það sem Biblían segir um þá sem munu komast til hinnar himnesku borgar: „Og alls ekkert óhreint skal inn í hina himnesku borg ganga né sá sem frem- ur viðurstyggð eða iðkar lygi, engir nema þeireinir, sem ritaðireru í lífsins bók lambsins.7 Sá sem vill að nafn sitt sé í þeirri bók verður að taka afstöðu með Jesú Kristi og fá fyrirgefningu synda sinna. Jesús sag^i sjálfur, að „sá sem trúir glatast ekki“f f þeim sama kapitula segir Jesús: „Enginn getur séð Guðs ríki, nema hann fœðist að nýju.“ 9 Hvenær verður Upphrifn- ingin? Gegnum aldirnar hafa ýmsir komið með ákveðnar dagsetningar varðandi endurkomu Krists. Hafa þeir fengið fólk til fylgis við sig, sem hefur svo safnast saman og beðið upphrifningarinnar. En Jesús sagði, að um þá stund vissi enginn.10 Sá sem segist vita það, og gefur upp ákveðna tímasetningu þykist hafa meira vit á þessu en Kristur sjálfur þegar hann var á þessari jörð. En þrátt fyrir að við vitum ekki nákvæmlega þann tíma er upphrifningin mun eiga sér stað þá segir Biblían: „En um tíma og ÍIS tíðir hafið þér, brœður, ekki þörf á að yður sé skrifað. Þér vitið það sjálfir gjörla, að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu. Þegar menn segja: Friður og engin hœtta, þá kemur snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu. Og þeir munu allsekki undan komast. En þér, brœður, eruð ekki i myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur."“ Sem sagt, upphrifningin á ekki að koma okkur á óvart. Af hverju á þessi dagur ekki að koma að okkur, sem þjófur að nóttu? Jú, sökum þess að Guð hefur gefið ákveðin viðvörunarmerki eða tákn og þegar við sjáum þau þá vitum við að dagurinn færist nær. Aðalatriðið er þó að við bíðum þess dags en verðum ekki um of upptekin af þessum táknum. Vil ég hérnefna tvö þeirra. Páll segir í bréfi sínu til Tímóteusar: „ Vita skalt þúþetta, að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. Mennirnir verða sérgóðir, fé- gjarnir, raupsamir, hrokafuUir, last- mœlendur, foreldrum óhlýðnir, van- þakklátir, vanheilagir, kœrleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, sviksamir, framhleypnir, ofmetn- aðarfullir, elskandi munaðarlifið meira en Guðf2 Hér eru talin upp mörg atriði og ég held að við getum öll tekið undir það að við getum heimfært flest ef ekki allt þetta upp á vora tíma. Hið síðara og eitt af stærstu táknunum er endurstofnun Ísraelsríkis. Fátt er meira sannfær- andi en hin merkilega saga ísraels. Guð hefur staðið við orð sín, er hann gaf Abraham og niðjum hans þetta land.13 Abraham var einnig sagt að afkomendur hans skyldu búa í ókunnu landi og vera þar þrælar. Þetta rættist, þeir voru þrælar í Egyptalandi í 400 ár en voru síðan leiddir út þaðan á undursamlegan Sam Daníel Glad lauk námi frá Biblíuskólan- um IBTI, í Englandi, árið 1974. Hann er nú aðstoðarforstöðumað- ur Filadelfiusafnaðar- ins í Reykjavík.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.