Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 14

Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 14
hátt. Jeremía spáði því að þeir yrðu herleiddir til Babylónar sem þrælar, en eftir 70 ár skyldu þeir koma til baka. Það fór svo sem spámaðurinn hafði sagt fyrir. En Guð stóð líka við þær aðvaranir er hann hafði gefið. Ef þeir hlýðnuðust ekki boðum hans, þá skyldi hann dreifa þeim meðal allra þjóða heims.14 Myndu þeir verða að spotti meðal allra þjóða.15 Og Jesús sagði: „Þeir munu falla fyrir sverðs- eggjum og herleiddir verða til allra þjóða, og Jerúsalem verður fótum troðin af heiðingjum, þar til tímar heiðingjanna eru liðnir. “16 Þá mun einhver breyting verða. Árum saman biðu Biblíu-kennimenn eftir því að Israelsríki yrði endurvakið og var biðin grundvölluð á mörgum Biblíu- spádómum. Meðal annars orðum I Jesú er hann segir: „Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd. Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið allt þetta, að hann er í nánd, fyrir dyrum. Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.“17 Hinir efagjömu hæddu þessa spádóma og sögðu að aldrei áður hefði heil þjóð verið endurvakin. En kraftaverk hefur átt sér stað. Guð hefur fullnað þennan spádóm. En hver er kynslóðin, sem átti að sjá þetta tákn. Auðvitað ekki kyn- slóðin sem Kristur talaði til. Því hún er löngu farin. En kynslóðin sem mundi sjá fíkjutréð laufgast! Koma Krists stendur fyrir dyrum! Endur- stofnun Ísraelsríkis ætti að vera tákn öllum Guðsbömum. Jesús lagði mikla áherslu á það, þegar hann ræddi þessa hluti, að söfnuðurinn skyldi vaka og vera viðbúinn.18 Einnig sagði Jesús, áður en hann byrjaði að tala um þessa hluti: „ Var- ist að láta nokkurn leiðayður í villuð9 Mun upphrifningin eiga sér stað fyrir þrenginguna miklu? Skoðanaágreiningur hefur verið meðal Biblíu-kennimanna um,hvort upphrifningin eigi sér stað fyrir þetta mikla þrengingartímabil, um miðbik þess, eða að þrengingunni lokinni (fjallað er um þrenginguna á öðrum stað í blaðinu). Skoðun mín og sannfæring er sú að upphrifningin eigi sér stað fyrir þrenginguna miklu. Þegar ég segi fyrir þrenginguna, þá á ég við ákveðið tímabil (alm. álitið vera 7 ár). Hins vegar getur víða ver- ið um staðbundna þrengingu að ræða í heiminum. Þess sjáum við merki svo víða og er það líka í sam- ræmi við orð Krists er hann segir: „En á undan öllu þessu munu menn leggja hendur á yður, ofsœkja yður, fœra yður fyrir samkundur og í fang- elsi og draga yður fyrir konunga og landshöfðingja sakir nafns míns. “20 Þannig hefur söfnuðurinn átt í of- sóknum á öllum tímum í misríkum mæli. En skoðun mína byggi ég á því að mér finnst Biblían gefa það svo víða í skyn að upphrifningin muni eiga sér stað fyrir þrenginguna miklu. Vil ég hér einkum nefna 3 at- riði. Það fyrsta er þegar Kristur segir: „ Vakið því allar stundir og hiðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum.“2i Á þessum orðum má sjá að höldum við vöku okkar og verðum viðbúin, munum við umflýja allt það sem koma á. Annað er þegar Páll segir: „Og væntið nú sonar hans frá himnum, sem Guð vakti uppfrá dauðum, Jesú, er frelsar oss frá hinni komandi reiði. “ 22 Það síðasta er svo í Opinberunar- bók Jóhannesar. Ef við lítum þar á 19. versið í fyrsta kaflanum, þá má segja að bókinni sé skipt í þrennt. En þar segir svo: „1. Ritaþú núþað erþú hefur séð; 2. það sem er; 3. og það sem verða mun eftir þetta." í fyrsta kafl- anum fjallar Jóhannes um sýn sína af Kristi, í öðrum og þriðja fjallar hann um boðskapinn til hinna 7 safnaða. Fjórði kaflinn hefst svo á því að Jóhannes segir: „Eftirþetta sá eg sýn: Opnar dyr á himninum og raustin hin fyrri, er ég heyrði sem lúður gylli, tal- aði við mig og sagði: Stíg upp hingað og ég mun sýna þér það, sem verða á eftir þetta.,<23 (Eða eins og segir í frumtextanum META TAUTA - eftir þessa hluti, atburði.) Jóhannes segir nú frá þeim atburðum, sem eiga sér stað eftir að hann var hrifinn upp til himins. Og frá himni sér hann þessa atburði. Eftir þennan atburð er ekki fjallað lengur um söfnuð Guðs í Opinber- unarbókinni fyrr en í niðurlagi hennar, er segir: „Ég, Jesús hef sent engil minn til að votta fyriryður þessa hluti í söfnuðinum. “24 Það má segja sem svo að upphrifning Jóhannesar á þessum stað og tíma sé táknmynd upp á upphrifningu safnaðarins. Með það fyrir augum að Kristur er að koma, hvað á ég að gera? Sem frelsaður kristinn maður skalt þú starfa fyrir Jesú, vaka og bíða endurkomu hans.25 Við skulum einnig hafa það hugfast að Biblían segir: „Þetta skuluð þér þá fyrst vita, að á hinum síðustu dögum munu koma spottarar er stjórnast af eigin girndum og segja með spotti: „Hvað verður úr fyrirheitinu um kornu hans?“2b En síðar í þeim kafla segir svo: „Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið þótt sumir áliti það seinlœti, heldur er hann langlyndur viðyðurþar eð hann vill ekki að neinir glatist, heldur að allir komist til iðr- unar.“27 Síðasta spurningin verður þá sennilega: Erum við reiðubúin? Hér verður hver og einn að svara fyrir sig. Kristur kemur og sækir þann sem er viðbúinn, svo við verð- um með honum alla eilífð. 1) Lúkas, 21:27, I. Þessaloníkubréf, 4:17. 2) Sakaría, 14:4. 3) 1. Þessaloníkubréf, 4:13-17.4) Jóhannesarguðspjall 14:3. 5) 1. Korintubréf, 15:51-52. 6) Filippíbréfið, 3:20-21. 7) Opin- berun Jóhannesar, 21:27. 8) Jóhannesarguð- spjall, 3:16. 9) Jóhannesarguðspjall, 3:3. 10) Matteus, 24:36. 11) 1. Þessaloníkubréf, 5:1-4. 12' II. Tímóteusarbréf, 3:1-4. 13) 1. Mósebók, 13:15. 14) 5. Mósebók, 28:64-68. 15) 5. Móse- bók, 28:37. 16) Lúkas, 21:24. 17) Matteus. 24:32-34. 18) Matteus, 24:42,44. 19) Matteus, 24:4. 20) Lúkas, 21:12. 21) Lúkas, 21:36. 22) 1. Þessaloníkubréf, 1:10. 23) Opinberun Jóhann- esar, 4:1.24) Opinberun Jóhannesar, 22:16. 25) Lúkas, 19:13, Matteus, 24:42, Hebreabréfið, 9:28. 26) II. Pétursbréf, 3:3-4. 27) II. Péturs-1 bréf, 3:9. Sam Daniel Glad

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.