Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 15

Afturelding - 01.01.1982, Blaðsíða 15
Kristján Rósinkransson: Hver er þessi Jesús? X Já, hver er þessi Jesús, sem gekk á vatninu, hastaði á vind- >nn, læknaði sjúka og gerði svo niarga dásamlega hluti. Ég hugs- aði oft um hver þessi Jesús var og hvort hann væri í raun og veru eins og honum var lýst í Biblí- unni. Síðan var það í júní 1976, uð systir mín var að segja mér frá honum, að ég þyrfti að koma til hans, prófa hann og finna þann frið og það öryggi sem hann hefði UPP á að bjóða. Það eina sem ég Þyrfti að gera væri að krjúpa og biðja hann að fyrirgefa mér syndir mínar. En ég hlustaði ekki mikið á það, því mér fannst ég vera svo góður. Ég gerði varla neitt af mér, stal bara stundum í búðum og var aðeins farinn að fikta við reykingar og áfengi. Ég var líka orðinn 12 ára gamall. Og að ég þyrfti að taka á móti Jesú, nei, það datt mér ekki í hug. Ég sagði henni að Jesús væri ekki það vondur (ef hann væri þá til!) að hann myndi skilja mig eftir, því að mínu áliti var ég svo góður. En hún gafst ekki upp og var alltaf að segja mér eitthvað um hann. En svo fór hún í sveitina, í Kotmúla í Fljótshlíð, en ég var heirna þetta sumar. Svo kom að því að við fórum að heimsækja hana og þá byrjaði hún aftur og sagði mér frá móti sem haldið yrði í byrjun ágúst, þar sem 4—5 hundruð manns kæmu saman til Krístján Rósinkransson. að tala um Jesú. Þar yrði sungið og margir myndu segja frá reynslu sinni af honum. Og nú var ég orðinn forvitinn og ég man þar sem við pabbi sátum inni í herbergi hjá ömmu, að ég segi við hann, eiginlega ósjálfrátt, að mig langi að vera eftir og fara á þetta mót. Pabba leist mjög vel á það, enda hvíldinni feginn. Við spurðum ömmu og fengum grænt ljós. Síðan byrjaði mótið. Ég fór á samkomu. Þar var sungið og margir vitnuðu um Jesú og sögðu frá því sem hann hafði gert fyrir þá. Það var þá sem ég gerði mér ljóst að þetta var eitthvað sem ég þurfti að sækjast eftir. Og ég man að á annarri samkomunni rnætti ég Jesú. Þegar við vorum að syngja, þá fann ég frið og gleði koma yfir mig, í svo ntiklum mæli að engin orð fá lýst. Eftir þetta gjörbreyttist líf mitt. Ég fór að hafa tilgang með lífinu og gat alltaf leitað til Jesú ef eitthvað bjátaði á. Svona er Hann, alltaf tilbúinn að hjálpa og hann bíður eftir þér, bíður eftir að þú komir til Hans og þiggir þá hjálp sem hann hefur upp á að bjóða. Hann vill veita þér öryggi og frið. Ég get full- vissað þig um að þetta er ekki ímyndun, því ég hef fengið að reyna þetta og hef ekki hugsað mér að snúa við, því þetta er stórkostlegt líf. Ég bið þig að hugleiða orð mín. Það sakar ekki að prófa þetta, því þú veist ekki hvað kakan er góð fyrr en þú smakkar hana. Eins er það með Jesú, þú veist ekki hvað hann er góður fyrr en þú prófar hann og mundu það, hann bíður eftir þér! „Guð hefur ekki œtlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesú Krist sem dófyrir oss, til þess að vér mættum lifa með hon- um, hvort sem vér vökum eða sof- um“ (1. Þessaloníkubréf, 5:9-10). Guð blessi þig og megi hann hjálpa þér að taka á móti Jesú Kristi. Amen.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.