Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 19

Afturelding - 01.01.1982, Qupperneq 19
1. Áberandi sigursælar stefnur komu fram með kenningum Karls Marx. Þessar stefnur kallast í dag kommúnismi og sósialismi. Hafa þær farið sigurför um heiminn undan- farna áratugi og ekkert virðist stöðva þær. 2. Allt frá heimsstyrjöldinni fyrri hefur veröldin logað í ófriði. Keyrði um þverbak eftir síðari heimsstyrj- öldina, en síðan þá hefur að meðal- tali verið byrjað á einu stríði eða hyltingu á mánuði hverjum og geng- ur svo enn. Við búum i friðlausum heimi. 3. Hallæri og óáran hafa verið nteð afbrigðum mikil hin síðari ár af völdum náttúruhamfara og styrjalda. Sem dæmi rná nefna Biafra-stríðið, síðast á 7. áratugnum er 9 milljónir nianna voru drepnar úr hungri. Enn eru í fersku minni hörmungar kambodísku þjóðarinnar, svo og ntanndauðinn á Sahaelsvæðinu svo- nefnda sunnan við Sahara. í gósen- landi Afríku sem var, Uganda, urðu þúsundir manna hungrinu að bráð. Það skal einnig bent á að kornskortur mikill virðist vera í uppsiglingu í °8 jörðin mun uppþoma ... Veröldinni. Þessu til stuðnings skal bent á gífurlega uppskerubresti í löndunum austan járntjalds (í Sovétríkjunum einum nam hann 60 milljónum tonna 1981). 4. Svonefnt súrt regn eða fén- aðarregn veldur mörgum manninum hhyggjum í dag. Þetta er rigning sem ■nniheldur óvenju mikið af brenni- steinssýrlingi (H2SO3) vegna meng- unar. Veldur þetta regn skemmdum á mannvirkjum hverskonar. Vötn sem fá þetta regn yfir sig geta náð styrkleika þynntrar edikssýru og verða þau líflaus sem afleiðing þessa. Jafnframt verða öll ræktarlönd ófrjó. Opinberunarbókin, 8. kafli og 8.—11. vers greinir frá því að vötnin verði beisk og margir muni farast af þeim völdum. Hvað veldur beiskj- unni veit enginn enn. Menn höfðu heldur ekki mikla hugmynd um súrt regn fyrir nokkrum árum, en í dag er það staðreynd. Jesús sagði: „Þegar þér sjáiö alll þetta þá er Hann í nánd, (þ.e. Jesús) fyrir dyrum. Sannlega segi ég yður, þessi kynslóð mun alls ekki líða undir lok, uns allt þetta kemur fram.“^ Samkvæmt Biblíunni er lífsskeið kynslóðar um 40 ár, (IV. Mósebók 1:35 og 2:7) og er þá miðað við menn sem komnir eru til vits og ára. Meðalaldur kynslóðar frá vöggu til grafar er 60 ár ( + 10 ár). Það er því ljóst, að stutt er í endurkomu Krists og Harniageddon stríðið. Þetta staðfestir Guð almáttugur með tilvist og vexti ísraelsrikis og endur- heimt Jerúsalem. Er hægt að komast hjá Harmageddon — þrengingunni miklu? Eins og að framan greinir mun Drottinn ganga í dóm við myrkra- veldi djöfulsins, en hann mun ekki ganga í dóm við söfnuð sinn eða þjóð sína. Biblían staðfestir það: „Gakk þú þjóð mín inn í herbergi þitt og lyk aftur dyrnar á eftir þér. Fel þig skamma stund uns reiðin er liðin hjá. Því sjá Drottinn gengur út frá aðset- urstað sinum til að hegna íbúum jarð- arinnar fyrir misgjörðir þeirra. Á skírdegi talaði Jesús við læri- sveina sína um komu sina og hann talar við alla þá sem gert hafa köllun sína og útvalningu vissa og elska hann. „Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á föðurinn og trúið á mig. í Itúsi föður míns eru mörg híbýli. Vœri ekki svo, mundi ég þá hafa sagt, að ég fœri burt að búayður stað? Og þegar ég erfarinn burt og hefi búið yður stað, kem ég aftur og mun takayður til mín, til þess að þér séuð og þar sem ég er. Og veg- inn þangað þekkið þér. “'3 Samkvæmt þessum ritningarvers- um er auðsætt. að Jesús er að fyrir- búa söfnuði sínum stað og mun hann dvelja þar hjá honum á dögum reið- innar. Þessir dagar reiðinnar eru refsidómaflóðið sem Opinberunar- bókin greinir frá. Þá vaknar þessi spurning: „Hvar verð ég?“ Allir þeir sem taka á móti Jesú Kristi sem frelsara sínum og eru honurn trúir verða með í konungs- dýrð hans. Deyjandi ræningi á krossi sagði við Jesú: „Jesús, minnst þú mín er þú kemur í konungsdýrð þinni.“ Jesús sagði: „Sannlega segi ég þér. í dag skalt þú vera með mér í Paradís."14 Bæn ræningjans var einföld og ljós og svar Jesú fer heldur ekki milli mála. Bæn mín og þín þarf ekki heldur að vera flókin. Jesús tekur á móti okkur eins og við erum og það samstundis. Aðeins að við viljum það sjálf. Jesús þvingar engan. Þegar við höfum gert köllun okkar og útvalningu vissa, þá föllum við undir orð Jesú er hann segir í Lúk- asarguðspjalli, 21:28: „En þegar þétta tekur að koma fram, þd réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar því lausn yðar er í nánd.“ Heimildir og stuðningsrit 1. Biblían: 1 Daníel, 9: 24-27. 2 Daníel, 9: 26. 3 Esekíel, 20: 41. 4 Opinberun Jóh., 16:16. 5 Opinberun Jóh., 16: 21:6Jesaja, 13: 7-10.7 Sakaría, 14: 12-13. 8 Opinberun Jóh., 19: 17-21.9 Jesaja, 13: 12. 10Matteus,24: 21-22. 11 Matteus, 24: 33-34. 12 Jesaja, 26: 20-21. 13 Jóhannes, 14: 1-5. 14 Lúkas, 23: 43. 2. Gilbrant, Thoralf Odeberg, Hugo Karlsen, Lauritz Kjelle, Edvard: Illustrert Norsk Bibelleksikon 3. Field Enterprises Educational Corporation: The World Book Encyclopedia 4. Walvoord F. John Walvoord E. John: Armageddon 5. Ström, Erling: Heimkoma ísraels, endurkoma Krists 6. Linsey, Hal: The Late Great Planet Earth 7. Mears, C. Henrietta: What the Bible is all about 8. National Geographic: Vol. 160 No. 5 November 1981

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.