Afturelding - 01.01.1982, Síða 21

Afturelding - 01.01.1982, Síða 21
Jesús brýndi fyrir lærisveinum sínum að óttast ekki, láta ekki skelfinguna ná tökum á sér. Þeg- ar táknin kæmu fram í fyllingu sinni, skyldi nota tímann til ann- ars. „En þegar þetta tekur að koma fram, þá réttið úr yður og lyftið upp höfðum yðar, því að lausn yðar er í nánd.“2 Læri- sveinarnir skyldu líta upp frá hversdagsleikanum, líta upp og gefa gætur að viðburðunum og búa sig undir lausnina. Hvaða lausn? Stórkostlegustu lausn, sem hægt er að hugsa sér. Innan skamms mun Jesús Kristur leysa lærisveina sína frá þeim vanda og erfiðleikum sem jarðlífinu fylgir. Hann mun leysa þá frá syndug- um, spilltum og versnandi heimi. Hann mun hrífa þá í dýrð sína. Þessi lausn kemur snöggt og óvænt. Jesús sagði aftur og aftur við lærisveinana að þeir skyldu halda andlegri vöku sinni, eink- um þegar táknin kæmu í ljós, svo þeir yrðu viðbúnir. „Hafið gát á sjálfum yður, að hjörtu yðar þyngist ekki við svall og drykkju né áhyggjur þessa lifs og komi svo dagur sá skyndilega yfir yður eins og snara. En koma mun hann yfir alla menn, sem byggja gjörvalla jörð. Vakið því allar stundir og biðjið, svo að þér megið umflýja allt þetta, sem koma á, og standast frammi fyrir Mannssyninum.“3 Aftur og aftur sagði hann »vakið og biðjið“. Til að geta vakað verður maður að vakna. í þvi er hin stórkostlega framtíðar- von fólgin, það er hægt að vakna til lifandi trúar á Jesúm Krist og eignast eilíft líf. Jesús kom í þennan heim til að leysa menn úr viðjum syndarinnar og bjarga þeim frá glötun. „Ef við játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyr- irgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti."4 „Vakna þú sem sefur, og rís upp frá dauðum, og þá mun Kristur lýsa þér.“5 Raunhæfasti viðbúnaðurinn, og sá eini sem dugar, er að við ger- um upp mál okkar við Guð. Að við biðjum um syndafyrirgefn- ingu og iðrumst óguðlegs lífernis. Að við vöknum upp til andlegs lífs í Jesú Kristi, og að við höld- um vöku okkar í honum. Jó- hannes skrifaði í bréfi sínu: „Vér vitum að þegar hann birtist, þá munum vér verða honum líkir, því að vér munum sjá hann eins og hann er. Hver sem hefur þessa von til hans hreinsar sjálfan sig, eins og Kristur er hreinn.“6 Sértu reiðubúinn að mæta Jesú Kristi, ef þú væntir hans sem frelsara og endurlausnara, þá ertu einnig viðbúinn að mæta hvaða hörmungum sem er. En ef þú átt óuppgerð mál þín við G uð, þá skaltu leita hans nú þegar. Nú er tími til að gera fyrirbúnað. Jesús dró ekki undan að sumir verða viðbúnir og aðrir óviðbúnir komu hans. Þú ræður því í hvor- um hópnum þú ert. Þú ræður því hvort þú munt mæta Jesú Kristi, sem frelsara eða dómara. Leitaðu hans og biddu hann að gera þig reiðubúinn. Þá þarftu ekki að óttast né skelfast það sem fram- tíðin ber í skauti sér. Þá muntu vita að hörmungarnar eru aðeins fæðingarhríðar stórkostlegra at- burða. Jesús Kristur er væntanlegur til jarðar á ný. Innan skamms mun hann koma og hrífa brúði sína, söfnuð trúaðra, burt frá jörðinni. Hann mun leysa sinn lýð frá hörmung- unum, sem skella bráðum yfir. Eftir þrenginguna mun Jesús stofnsetja þúsund ára friðarríki á jörðinni. Þar verður raunveru- legur friður, því óvinur friðarins, satan, verður bundinn. Eftir þús- und árin verður hann leystur og mun þá afvegaleiða þjóðirnar og steypa þeim út í gereyðingarstríð. Við heimsendi mun Guð setja mikinn dóm, þar verða vegin og metin verk hvers og eins, sem einhvern tíma hefur fæðst á þessari jörðu. Sumir munu ganga frá dóminum til eilífs lífs. Það eru þeir sem gjörðu fyrirbúnað og leituðu Jesú Krists sem frelsara. Aðrir verða dæmdir til fordæm- ingar, það eru þeir, sem vanvirtu eða höfnuðu hjálpræðinu í Jesú Kristi.7 Guð mun stofna nýjan himinn og nýja jörð. Það verður sæluríki, fullkomið líf, eilíft líf. Jóhannesi opinberaðist sýn um þetta ríki: „Og ég sá nýjan himinn og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til. . . Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið."8 Þú skalt ekki láta ótt- ann ná tökum á þér. Þú skalt gera fyrirbúnað, svo þú fáir hlutdeild i hinu stórkostlega hjálpræðisverki Guðs. Framtíðin verður ekki vonlaus. Framtíðin verður VON! Vaknaðu til lífs í Jesú Kristi, vaktu í honum, leyfðu honum að vaka i þér. Þá eignastu dýrðlega von og bæn: „Kom þú Drottinn Jesús!“ 1) Lúkas 21:26; 2) Lúkas 21:28; 3) Lúkas 21:34; 4) 1. Jóhannesarbréf 1:9; 5) Efesusbréfið 5:14; 6) 1. Jóhanncsarbréf 3:2-3; 7) Opinbcr- unarbókin 20. kafli; 8) Opinberunarbókin 21:3-4. Einnig Matteus 24. kafli; Markús 13. kafli; Lúkas 21. kafli.

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.