Afturelding - 01.01.1982, Side 22

Afturelding - 01.01.1982, Side 22
Þórarinn Hafberg: „Þaö var einhver ókennd innri þrá, eftir einhverju sem ég varla vissi hvað var sem rak mig áfram sannleikanum” þetta i mig og það varð mér gott „I leit að Við sátum i hring í hálfrokknu herbergi, ég, bróðir minn, kona sem ég kannaðist við og eitthvað fleira fólk. Tveir landskunnir prestar sátu sinn til hvorrar handar Hafsteini miðli. Við vorum á miðilsfundi í vesturbænum i Reykjavík. Miðillinn féll í trans og fór að lýsa „gestum úr öðrum heimi“. Meðal þeirra sem þama áttu að koma fram var frændi minn, sem hafði verið mjög sjóndapur í lifanda lífi. Nú sagðist hann illa vanta gleraugun sín. Svo kom fram maður, sem átti að hafa verið dáinn í þrjúhundruð ár. Hann langaði mikið til að fá í nefið. Á þessum árum notaði ég neftóbak og var því með dósir í vasanum. Þó datt mér ekki í hug að bjóða þeim dauða í nefið. Mér þótti óhugnanlegt til þess að hugsa að tóbakslöngunin skyldi enn vera að plaga manninn í dánarheimum. Þetta var ekki það sem ég var að leita að. Ég var kominn í algjört þrot, eftir langa leit að andlegri saðningu — sannleikanum — allt frá barnsaldri. Ég er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Foreldrar mínir voru mjög áhugasamir um allt sem að því dulúðuga sneri, andatrú og guðspeki. Ég man eftir því sem krakki, að mamma var að fást við andaglas. Pabbi lagði sig mjög eftir kenningum guðspekinnar og las mikið í þá veru. Að mestu leyti ólst ég upp hjá föðurömmu minni. Hún var mikill unnandi Passíusálmanna og Hall- gríms Péturssonar. Hún kenndi mér sálma og bænir Hallgríms. Ég drakk vegarnesti á lífsleiðinni. Sem unglingur sótti ég oft fundi hjá KFUM í Reykjavík. Þar fannst mér ágætt að koma. Þó greip ég ekki innihald fagnaðarerindisins, sem boðað var. Ég var svo flæktur í net andatrúarinnar, að ég náði engum áttum í andlegum efnum. Það var einhver ókennd innri þrá, eftir einhverju sem ég varla vissi hvað var, sem rak mig áfram í leit að sannleikanum. Ég fann að það vant- aði eitthvað í líf mitt, saðningu fyrir sálina. Þegar ég eltist hélt ég leitinni áfram. Nú fór ég sjálfur að leita á vit andatrúarinnar og guðspekinnar, las Ganglera, Morgunn og bækur um andatrú og guðspeki. Andlega séð ráfaði ég um vegvilltur í þreifandi myrkri. Ekkert ljós! Guðspekin hvatti mig til að leita lausnar í eigin mætti, — ef til vill var andatrúin svarið? Fyrsti miðilsfundurinn, sem ég fór á, var haldinn af konu sem bjó við Rauðarárstíginn í Reykjavík. Þegar ég rifja upp þennan fund nú, finnst mér hann vera eins og lýsandi dæmi um þann lyga- og blekkingarvef, sem falsmiðlar hafa flækt marga í. Konan leiddi okkur til stofu, en á leiðinni þangað sá ég inn um opnar dyr, að á borði lá opið tímarit og þar blasti við Ijósmynd af stjúpu minni íklæddri skautbúningi. Svo hófst fundurinn. Ég var kynntur fyrir dóttur minni, sem ég átti að hafa eignast í fyrra lífi, sú hét Helena. Síðan fór miðillinn að lýsa stjúpu minni heitinni og spurði hvort hún hefði ekki átt skautbún- ing! Eftir fundinn ntan ég að einn þátttakenda benti á mynd af ungum Indverja á vegg og spurði hver þetta væri. „Það er Jesús Kristur endurholdg- aður“, svaraði miðillinn. Vandinn var óleystur og ég var óhamingjusamur. Þó var ég búinn að stofna heimili og átti góða konu og börn. Ég var farinn að drekka nokk- uð mikið á þessum árum. Bakkus náði æ harðari tökum á mér. Sá vandi bættist við. Vínið fékk forgang í lifi mínu, eins og í lífi svo margra í dag. Þarfir heimilisins komu þar á eftir. Það er undarlegt til þess að hugsa, hvemig maður gat alltaf slegið lán fyrir flösku, þó svo engir peningar eða litlirværu til heimilisþarfanna. Ég man svo greinilega hvernig þetta tapaða stríð við Bakkus var háð. Alla vikuna velti maður þvi fyrir sér hvort maður kæmist ófullur yfir helgina. Einu sinni sem oftar gekk ég um gólf á föstudegi. Ég átti enga ró í mínum beinum, vínlöngunin var svo sterk. Sem ég æddi um gólfin segir konan mín við mig: „Farðu og fáðu þér flösku til að róa þig.“ Það þurfti ekki að biðja mig tvisvar. Auðvitað kom þessi áfengisneysla niður á heimilislífinu og hjónaband- inu. Ég var farinn að drekka marga daga í röð og það liggur í augum uppi hvernig farið hefði fyrir mér og fjöl- skyldu minni, hefði það ekki gerst sem ég nú greini frá. Laugardeginum fyrir páska 1950 gleymi ég aldrei. Ég var búinn að drekka með félögum minum bæði á

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.