Afturelding - 01.01.1982, Side 25

Afturelding - 01.01.1982, Side 25
Matteus gekk þess ekki dulinn, að gangan með Kristi mundi kosta harða barátlu. Jesús hafði sagt það blátt áfram: „Þér munuð verða hat- aðir af öllum vegna nafns míns.“ Tíundi kapitulinn er sérstæður, þegar Jesús leggur postulum sínum lífsreglurnar. Matteus kemur því vel til skila, enda hefur það verið honum dýrmætt veganesti eins og hinum Postulunum sem Jesús kallaði til sin (sbr. Matteusarguðspjall 10:1) þar sem hann gerði þeim ljóst, hvað biði þeirra. Hann fór ekki dult með það að þeirra biði þrengingar, sár og tár. En sá sem stöðugur stendur allt til enda, hann mun hólpinn verða, hafði hann sagt. Og þeirra, sem illt þola vegna nafns Jesú Krists, er einmitt minnst í Opinberunarbókinni 7. kap. Þar segir, að þetta séu þeir, sem komnir eru úr þrengingunni miklu, „þeir sem þvegið hafa skikkjur sínar og hvítfágað þær í blóði lambsins“. Það er að segja: Þeir, sem meðtekið höfðu Krist Jesúm sem frelsara sinn °g Drottin og helgað honum líf sitt. Matteus leggur frá sér pennann sem tollheimtumaður, en þrífuraftur hl hans sem postuli Jesú Krists, knú- lr>n af kærleika hans. Og fyrir hans heilaga Anda gefur hann okkur guð- spjallið. Eflaust hefur hann minnst orða Drottins fyrir munn Haggaí spámanns, I 2. kapítulanum: „Mitt er silfrið, mitt er gullið. - Haldið áfram verkinu því ég er með yður.“ Hin óræða framtíð í eftirfylgd Krists, var Matteusi ekki þyrnir í augum, enda þótt ytri kringumstæð- ur væru oft andsnúnar. Kall Drottins l|l hans var viðvarandi, og hlýðni hans brást ekki. Matteus var ekki sú uianngerð, sem gengur hálfbogin með Kristi, heimullega af ótta við að m>ssa fótfestu í lífinu. Eins og sigur lyftingamannsins er í því fólginn, að ná að rétta sig upp með byrði sína og standa teinréttur, svo var með hið sigrandi líf Matteusar. Hann stóð upp, þegar hallið barst honum, yfirgaf allt og fylgdi frelsara sínum og Drottni trú- lega allt til enda. Jóhann Sigurðsson Nafnið Jesús Milljónir manna þekkja þetta nafn. Það er bæði elskað og hatað, virt og vanvirt. Það vekur hugsanir um alvöru lífsins, og um hinn kalda raunveruleika dauðans. Beinir at- hygli manna inn á svið endalausrar eilífðar. Fyrir því vekur það bæði gremju og ótta, — en einnig trú og gleði. Það kemur til okkar knýjandi og uppáþrengjandi. Við mætum því i kirkjum og bænahúsum, - á torgum ogstrætum. f bókmenntum og listum kemur það oft fram sem bliöur boð- skapur Guðs, um hann, sem dó fyrir okkur á krossinum. Heimsfræg er Kristsstytta Thor- valdsens, sem stendur fyrir altari dómkirkjunnar í Kaupmannahöfn, með áletruninni: „Komið til mín!“ (Til fróðleiks má geta þess, að talið er, að faðir Bertels Thorvaldsens hafi verið Gottskálk Þorvaldsson, fæddur á hinu glæsilega höfuðbóli. Reyni- stað I Skagafirði árið 1741.) Nafnið er boðað til frelsis fyrir alla menn, og niargir hafa hvíslað það í neyð sinni, — og hjálpin barst! í unaðartónum „Messíasar", — hinnar miklu tónsmíðar Hándels, kemur boðskapur nafnsins skírt fram, í texta eins þáttarins: „Ég veit að Lausnari minn lifir.“ Hver þekkir ekki málverkið af „Góða Hirðinum“ — Jesú, þar sem hann stendur við dyrnar og knýr á? Margar og þykkar eru þær bækur, sem skrifaðar hafa verið um nafnið, - manninn Jesúm frá Nasaret. Frægust er Biblían. En í gegnum aldimar hafa oft verið gerðar tilraunir, til þess að út- rýma því. Herferðir haturs og van- trúar, og guðfræðilegrar fríhyggju, hafa miðað að því, að afmá áhrif þessa blessaða nafns, — en án árang- urs! Það hefir verið bannfært, svívirt og barið niður. En upprisukraftur Jesú nafnsinserómótstæðilegur. Það kemur til okkar aftur og aftur, á „amarvængjum" trúarinnar, með von í vonleysinu, sem ljós í myrkri. Boðskapur hins eilífa lífs er bund- inn við þetta nafn, - því að hver, sem ákallar nafnið JESÚ, - mun frelsast og verða hólpinn. Það er eins og brú yfir hyldýpið til Guðs, - sem hönd er leiðir okkur heim. Margir hafa lifað og dáið fyrir þetta nafn, af því að það gaf lífsinni- hald og tilverunni tilgang. Menn þafa gengið í gegnum píslir og pynt- ingar, ofsóknir og fangelsi vegna nafnsins, en það hefur einungis auk- ið gleði og hrifningu trúarinnar. Því að nærvera hans, sem ber þetta nafn, var svo áþreifanleg. Um endalausa eilífð mun Jesú nafnið lýsa í hvelf- ingu Himinsins, meitlað með eld- skrift kærleikans. Og sérhver tunga mun viðurkenna, að Jesús Kristur er Drottinn, Guði föður til dýrðar. Hvert kné mun beygja sig, og játn- ingin og viðurkenningin mun verða alger. Hefir þú reynt þetta nafn? Hefir þú beygt þig í hjarta þínu, og beðið til Drottins? Gerðu það, áður en það verður of seint. Hann sem heitir JESÚS, vill frelsa þig. Hann sagði: „Hvað sem þið biðjið föðurinn um, það mun hann veita yður í mínu nafni“. Garðar Ragnarsson Garðar Ragnarsson er forstöðumaður Hvíta- sunnusafnaðarins í Odense, Danmörku. Hann hefur starfað mikið við trúboð, bæði innanlands og utan.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.