Afturelding - 01.01.1982, Side 26

Afturelding - 01.01.1982, Side 26
ERLENDAR FRETTIR ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - - ERLENDAF í nóvember, 1981, vígði trúboðinn Oral Roberts nýja lækningamiðstöð í tengslum við læknaskóla og rannsóknastofnun. „Trúborg" er 30 hæða bygging og hefur á að skipa 294 sjúkrarúmum. Ætlunin er að stækka sjúkrahúsið í 777 rúm, í áföngum, fram að 1988. í þessari lækningastofnun fara fram jafnhliða beiting nútíma læknavísinda og fyrirbænir. CAW 282 Talið er að um 5.000 kristnir séu í Norður-Kóreu (en þar búa um 19 milljónir manna). 1 höfuðborginni, Pyongyang, koma 700 kristnir saman í um 100 samfélagshópum. Áður en Kóreu var skipt voru mun fleiri kristnir í norður- hlutanum en þeim syðri. CAW 282 Verðlaunakvikmynd frá 1981 sýnir kristindóminn í mjög jákvæðu ljósi. Myndin er nú sýnd við metaðsókn víða um heim. Kvikmyndin var framleidd í Englandi og heitir „Chariots of Fire“ (Eldvagnar). Hún fjallar um sögu skoska verðlaunahlauparans Eric Liddell. Þegar hann var námsmaður í Oxford, notaði hann hlaupagetu sína til að vitna um trúna á Jesúm Krist. 1924 vann hann gullverðlaun fyrir hlaup á Olympíuleik- unum í París. Þar neitaði Liddell að hlaupa á sunnudegi og varð mikið fjaðra- fok út af því. Síðar fór hann til Kína sem kristniboði og dó í fangabúðum í lok síð- ari heimsstyrjaldarinnar. CAW 282 „Samstaða um betra sjónvarp", samtök í Bandaríkjunum, hafa óskað eftir því við þrjú stærstu sjónvarpsfélögin þar, að þau hætti að birta andkristilegt efni og það sem vanhelgar kristin gildi og menningu. CAW 282 T vær þúsundir kennimanna og trúboða munu koma til fundar í Amsterdam, Hollandi, í júlí. „Friður við Guðog friður á jörð“ er yfirskrift fundarins. Trúboðar frá vesturlöndum og þriðja heiminum fá þama tækifæri til að hittast, margir í fyrsta skipti, til að skiptast á hugmyndum og upplýsingum um starfsaðferðir í trú- boði og hirðisstarfi. Einnig verður rætt um hvað má verða til aukins friðar í heiminum 1 dag. Billy Graham verður heiðursforseti mótsins. CAW 382. ERLENDAR FRÉTTIR Fjöldi kristinna fanga í vinnubúðum 1 Sovétríkjunum hefur farið i hungurverk- fall undanfarið. Ástæðan er sú að fang- arnir krefjast þess að fá að hafa Biblíuna. Einn presta Rétttrúnaðarkirkjunnar krefst þess að fá aftur Biblíu, sem fanga- verðir gerðu upptæka. CAW 182 Lútherskir menn í A-Þýskalandi vinna nú að endurreisn Ágústínusarklaustursins í Erfurt, þar sem Marteinn Lúther bjó á mikilvægum árum ævi hans. Gamlar byggingar klaustursins voru nærri lagðar í rúst í loftárás 1945. Ætlunin er að ljúka viðgerðinni fyrir 1983, en þá verður minnst 500 ára fæðingarafmælis Lúthers. CAW 182 Jóhannes Páll páfi II ritaði nýlega í hirðisbréfi, að þjóðfélagið ætti að gera mæðrum kleift að helga sig umönnun bama sinna. CAW 182 Fyrir áramót héldu 40.000 Hvíta- sunnumenn í Burma upp á 50 ára afmæli Hvítasunnustarfsins í landinu. Við hátíð- arhöldin voru vígðir 300 trúboðar og sendir út til þriggja ára trúboðsherferðar um Iandið. CAW 182 New York Times skýrði frá því að vænta mætti vakningar í Tékkóslóvakíu, þrátt fyrir stöðugar ofsóknir gegn trú- uðum. Ungt fólk hópast í kirkjur kaþólskra og mótmælenda. Biblíurseljast fyrir tvöfalt verð á svörtum markaði og eru orðnar metsölubækur. CAW 182 Samkvæmt skoðanakönnun á vegum fréttastofu AP og NBC, eru þrír fjórðu Bandaríkjamanna þeirrar skoðunar að í almenningsskólum skuli kenna jafnhliða þróunar- og sköpunarkenningar um upp- mna lífsins. Skoðanakönnunin sýndi einnig að þátttakendur töldu að kennarar og bókaverðir ættu að ráða meiru um kennslubókaval og innkaup til bókasafna, en skólanefndir og foreldrafélög. CAW 182 63.000 manns taka kristna trú dag hvem og 1600 söfnuðir eru stofnaðir á viku hvcrri, segir rannsóknastofnunin Daystar, Nairobi. Tveir þriðju þessa kristnivaxtar fara fram í þriðja heiminum og eru tilkomnir vegna trúboðsinnfæddra trúboða. CAW 182 Alþjóðamót Gideonfélaga var haldið síðastliðið haust, í Phoenix, Arizona. 3.000 þátttakendur gáfu jafnvirði 7,5 milljóna ísl. króna til starfsins. Auk bandarískra þátttakenda voru 270 er- lendir þátttakendur frá 53 þjóðum á þessu móti, sem stóð yfir í eina viku. Fyrir þessa peninga verður hægt að drcifa 600.000 Nýja testamentum víða um heim. Móts- gestir ákváðu að stefna að því að stofn- aður yrði alheimssjóður til dreifingar á Ritningunni um víðan heim og skal jafn- virði 260 milljóna isl. króna varið til þess. W. David Luikaart var kosinn forseti öðru sinni. Hann sagði varðandi helstu verkcfni ársins 1982: „Fyrst og fremst munum við stefna að markmiði samtak- anna og leggja áherslu á sex andlega þætti: Við viljum vera menn Bókarinnar, menn trúar, menn sem ganga aðskilinn veg, menn hjartagæskunnar, menn sem vitna og menn sem gefa.“ Moody Monthly 182 Bandaríska útgáfufyrirtækið Reader’s Digest vinnur að útgáfu samanþjappaðr- ar Biblíu, eða styttrar útgáfu. Ætlunin er að fella niður um helming Gamla testa- mentisins og fjórðung Nýja testamentis- ins. Þessi tiltekt hefur valdið gagnrýni á fyrirtækið, en forsvarsmenn þess segja „samþjöppuðu” Biblíuna eiga að koma í bókaflokki slíkra styttra útgáfa helstu bókmenntaverka heimsins. Þeir vilja meina að kaflamir, sem felldir verða niður, höfði ekki til áhuga venjulegra les- enda. Úr Gamla testamentinu verði t.d. felldar ættartölur, endurtekningar og fleira þess háttar. Mormónakirkjan hefur pantað 500 loftnet til móttöku sendinga frá gervi- hnöttum. Ætlun þeirra mun vera að byggja upp stærsta sjónvarpskerfið í víðri veröld. Safnaðarfólk mun geta fylgst með þeirri fræðslu, svo og öllum athöfnum sem verða í höfuðstöðvum safnaðarins í Salt Lake City, Bandaríkjunum. EH 782 ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAÍ ERLENDAR FRETTIR

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.