Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 2

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 2
Guð heyrir bænir... Við hefjum 2. tbl. Aftureld- ingar 1982 á því að deila með lesendum blaðsins reynslu fólks af bænasvörum. „Bænin má aldrei brestai þig,“ kvað Hallgrímur Péturs- son. Honum var ljóst mikil- vægi þess að vera árvakur í bæninni. í Biblíunni er oft minnst á mikilvægi og lykil- hlutverk bænarinnar. Þar stendur m.a. að postularnir hafi haldið sig stöðuglega við kenning postulanna, samfé- lagið, brotning brauðsins og bœnirnar. En orð Guðs, Biblían, talar einnig um þegar Guð svarar bænum og Hann er í gær og í dag og um aldir hinn sami. Hann svarar bænum enn í dag! Við tókum nokkra lesendur blaðsins tali og spurðum þá hvert væri minnisstæðasta bænasvarið sem þeir hefðu fengið um ævina. Svörin fylgja hér á eftir: Dagbjartur Guðjónsson „Frelsið er dásamlegt bænasvar“ Frelsið yfirgnæfir náttúrulega allt annað, en að því fráskildu myndi ég segja, að dásamlegasta bænasvarið snerti heilsu mína. Á minni ævi hef ég yfirleitt verið frekar lélegur til heilsunnar og á tímabili var heilsa mín sérstaklega slænt. Gat ég þá lítið sinnt því starfi sem ég er í nú — kristilega starfinu. Munurinn á heilsu minni þá og nú nálgast það að vera eins og ntunurinn á svörtu og hvítu. Ég get hvorki nefnt stund né stað, þegar Drottinn læknaði mig, heldur hefur þetta komið smátt og smátt. Ég hef ekki leitað læknis í sambandi við veikindi mín eftir að ég frelsaðist, en áður en ég frelsaðist leitaði ég læknis, en það virtist ekki gefa neinn árangur. Svo það er Jesús sem á dýrðina fyrir þetta! Það er mér svo dýrmætt að hafa heilsu til að starfa fyrir Drottin. Ég vil þakka honum fyrir allt scm liann hefur gert fyrir mig og þá fyrst og fremst fyrir frelsið og síðan fyrir alla hans miskunn og náð við mig á þessari nokkuð löngu göngu sem ég hef gengið með honum. Það eru meira en þrjátíu ár síðan ég frelsaðist. Þetta er hamingjuleiðin! Hjálmar Guðnason „Einfalt en stórkostlegt“ Mér kernur strax í hug eitt bæna- svar. Það var eiginlega með fyrstu bænasvörunum sem ég fékk. Þetta átti sér stað um það leyti sem ég var að frelsast. Ég, Óli Gránz og Gísli Óskarsson. kunningjar ntínir, vorum að fá okkur kaffisopa hjá Döddu, konunni minni. Ég þurfti að bregða mér upp á bað og þar sem ég stóð fyrir frantan spegilinn þá kont til mín að ég skyldi biðja fyrir því að Óli stæði við loforð sem hann hafði gefið mér um að gefa mér Biblíu. Þegar ég hafði gert bæn mína fór ég aftur niður. Við keyrðum Gísla heim, en í bakaleiðinni segi ég við Óla: ,,Jæja, ég er búinn að leggja fyrir þig gátu. Þú átt að ráða hana, en ég má ekki segja meira við þig.“ „Jæja,“ segir hann. Svo höldunt við áfram heim til hans. Klukkan var að verða sex og ég var því orðinn ntjög spenntur, því ntér fannst endilega að þetta gæti

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.