Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 14

Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 14
Kraftaverk Kraftaverk! Þau gerast enn í dag. En hver er ástæðan fyrir þeim? Ég býst við að ef við vissum það og hefðum svör á reiðum höndum við öllum spurningum, þá væri ekki lengur þörf fyrir Guð. Það er ýmislegt sem getur hindrað eðlilega framrás lækninga, frelsis, bænasvara og kraftaverka. Eitt er beiskjurót í hjarta. í 66. Davíðssálmi, 18. versi, stendur: „Ef ég hygg á illt í hjarta mínu, þá heyrir Drottinn ekki.“ Nýverið fór ég, ásamt dóttur minni, tengdasyni og nokkrum öðr- um trúsystkinum í tíu daga trúboðs- ferð til Englands, þar sem við urðum vitni að mörgum kraftaverkum. Blindir fengu sýn, daufir heyrn, lamir mátt og fólk sem þjáðist af krabbameini fékk bót meina sinna. Fyrsta kraftaverkið snerti konu sem hafði stuðst við spelkur til margra ára. Gangur hennar var hægur og hvert skref sársaukafullt. Hún hlaut fullkomna lækningu, sleppti spelkunum og hljóp um sam- komusalinn. Maður hennar hafði slasast I námuslysi 14 árum áður. Hann var þakinn spelkum um allan bolinn. Að auki var hann spelkaður á báðum handleggjum, frá öxlum og niður að úlnliðum, og á báðum fótum, frá lærum og niðurað ökklum. Hann var trúr í Kristi og fyrir samkomurnar hafði hann beðið Guð um að mæta sér sérstaklega. Fyrsta kvöldið læknaðist fjöldi manns fyrir starf Heilags anda. Tengdasonur minn, Benjamín, gekk á meðal fólksins og bað fyrir því. Þegar hann gekk framhjá þessum manni, heyrði hann hann segja: „Ég trúi. Ég trúi. Ég trúi.“ Á einum stað I samkomunni bað Benjamín söfnuðinn að rísa á fætur og leita lækningar á meðan Guðs andi væri yfir samkomunni. Maður- inn í hjólastólnum bað þá er næstir honum stóðu að hjálpa sér á fætur. Margir reyndu að aðstoða manninn, en hann gat með engu móti stigið í fætuma. Augu mín flóðu í tárum þar sem ég fylgdist með honum frá orgelinu. Alls staðar í kringum hann voru kraftaverk að gerast. Alls staðar var fólk að læknast. Af hverju ekki þessi maður? spurði ég sjálfa mig. Hann kom á allar samkomurnar. Augu hans voru full eftirvæntingar. Hann var eins og maðurinn við laugina í Bedesta forðum, sem beið eftir því að engillinn „hrærði vatn- ið“. Einhverra hluta vegna var ég alltaf með hugann við þennan mann. Að mogni sunnudagsins dreifðist hópurinn. Ég predikaði I Elim söfn- uðinum I Silverdale. Maðurinn og kona hans voru þar. Sterkir armar báru hann og hjólastólinn upp tröppur og inn i kirkjuna. Ég talaði um fyrirgefningu - það að fyrirgefa öðrum, fyrirgefa okkur sjálfum, og að meðtaka fyrirgefningu Guðs. Ég talaði um undraverðan ár- angur sem ég hafði orðið vitni að í lífi annarra, sem höfðu kosið að fyrir- gefa. Ég var komin I tímahrak. Ég leiddi söfnuðinn í stuttri bæn um að meðtaka Guðs fyrirgefningu, um að fyrirgefa sjálfum sér og öðrum sem hefðu gert eitthvað á hluta þeirra. Síðan bað ég að þeir mættu frelsast frá hömlum, andúð og hatri. Að síð- ustu leiddi ég í almennri bæn um lækningu á ýmis konar sjúkdómum. Öldungarnir í söfnuðinum komu síðan fram til að aðstoða við brotn- ingu brauðsins. Skyndilega varð andrúmsloftið lævi blandið. Maður- inn í hjólastólnum var að ganga eftir ganginum. Sökum spelkanna var gangur hans mjög stirður og minnti helst á vélmenni, eða galdrakarlinn í Oz. Hann féll á kné og hóf upp hendur sínar til himins. Síðan stóð hann upp og snéri mót söfnuðinum: „Guði sé dýrð,“ söng hann. Andúmsloftið var rafmagnað. Fólkið þrýsti sér fram og bað um fyrirbæn til lækningar. Samkoman dróst i um klukkutíma enn, þar sem hjartasjúkdómar, liða- gigt, lungnasjúkdómar og margir aðrir sjúkdómar voru læknaðir fyrir verk Guðs anda. „Hvað gerðist?" spurði ég mann- inn. „Á meðan þú talaðir um fyrir- gefningu," svaraði hann, „meðtók ég hvert orð og framkvæmdi það sem þú talaðir um. Skyndilega fann ég mikinn hita koma yfir mig. í nokkrar mínútur fannst mér sem ég stæði á eldi. Síðan svitnaði ég mjög. Ég vissi að ég væri algjörlega læknaður. Ég sagði konu minni frá þessu, en hún bað mig að fara ekki fram fyrr en þú hefðir lokið máli þinu. Ég ákvað því að hinkra við.“ Oft hef ég velt því fyrir mér hversu margir eru andlega, tilfinningalega, hugarfarslega og líkamlega fjötraðir. Er það vegna þess að þeir hafa ekki fyrirgefið? Sá sem stöðugt elurá hatri og hefndum uppsker samkvæmt því. Sá sem ekki vill fyrirgefa, þjáist í rauninni mun meir en sá sem þarfn- ast fyrirgefningarinnar. Stattu ekki í vegi fyrir kraftaverk- um Guðs. Þýtt úr Charisma 282 (M.Æ.)

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.