Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 11

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 11
FJOLSKYLDAN í Ijósi Biblíunnar „Heimili okkar er í algjörri upp- lausn.“ „Við erum alltaf að rífast og slást.“ „Ég er í einni taugahrúgu og sef orðið ekkert." „Ég get þetta ekki lengur við verðum að skilja." Þessar setningar og aðrar ámóta eru alltof algengar í dag. Um víða veröld eru milljónir heimila í algjörri upplausn. Hvað veldur öllu þessu, og hvað er til úrbóta? Fjölskyldan — hjónabandið — heimilið, er styrkur hvers þjóðfélags °g sá staður þar sem einstaklingurinn getur haft athvarf, skjól og öryggi, sem hann er í þörf fyrir. Víða er uPplausn og hjónaskilnaðir fara ört vaxandi, en leysir skilnaður einhvern vanda? í flestum tilfellum ekki, heldur er hann aðeins flótti frá vandanum og skapar oft enn meiri vandamál, áhyggjur, ótta og kvíða. Saklaus börn verða þá oft fyrir harðinu á deilum foreldra sinna. Þau verða rótlaus og finna sig óörugg. Samband einstaklinga kemur mikið 'nn á tilfinningalíf þeirra og sam- handsslit er yfirleitt mikið tilfinn- 'ngamál bæði hjá hjónum og svo börnum. Skapast þa oft sár, sem seint eða aldrei gróa. Sumir hafa litið á það sem ein- hverja lausn að hreinlega sleppa hjónabandinu. Þeir líta á hjóna- handið og hið hefðbundna fjöl- skylduform, sem úrelt fyrirbæri, eitt- hvað sem er að líða undir lok. í stað þess vill það innleiða annars konar hfnaðarhætti svo sem nokkurs konar kommúnulíf, skammtíma samninga, sambúð til nokkura ára eða óform- lega sambúð og er heintilið þá nokk- Urs konar næturdvalarstaður og húið. Geta menn þá valið á milli, hvað þeir vilja vera lengi ú hverjum stað. Nú ef þetta hentar ekki, þá hefur það færst i vöxt að tveir ein- staklingar af sama kyni taki sig til og fari að búa saman. En leysir allt þetta nokkurn vanda? Nei yfirleitt skapar þetta einungis enn meiri upplausn og al- gjört rótleysi og einstaklingurinn finnur sig þá hvergi heima og er hvergi öruggur. En hvað er þá til bragðs að taka? Jú, er það ekki hið gamalgróna hjónaband og fjölskyldulíf, sem best á við. Við skulum hverfa til Biblí- unnar og skoða hvað hún segir um þessi mál. Nei, við höfum nú ekkert við það að gera, kynnu sumir að segja. En við verðum nú að gera okkur ljósa þá staðreynd að það sem reynt hefur verið að innleiða í stað hjónabandsins hefur alls ekki gefið góða raun. í Biblíunni er sagt frá því hvernig manninunt ber að haga sér gagnvart konunni og konan gagnvart mann- inum. Foreldrargagnvart börnumog börn gagnvart foreldrum. Hjónabandið er lífstíðarsáttmáli Samkvæmt Biblíunni er hjóna- bandið samband og sáttmáli sem varir alla lífstíð. „Frá upphafi sköp- unar gjörði Guð þau karl og konu. Fyrir því skal maður yfirgefa föður sinn og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður. Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.“l Hjónabandið er heilög samtenging tveggja einstak- linga, verk Guðs. Margt ungt fólk gengur til hjóna- bands í dag með það fyrir augum að ef það komist svo að því að það passi ekki saman þá sé bara að skilja. Hjónaband byggt á slíku er dæmt til að mistakast og eins gott að ekki sé af stað með það farið. Hvenær passa hjón ekki saman? Er það ef upp kemur smá deila, misklíð eða sundurlyndi? Slíkt kemur alltaf fyrir og þá er að uppræta vandann en ekki hjónabandið. Áætlun Guðs var að maður og kona væru saman. Hjónabandið er Guðs gjöf til mannsins. Hann hefur skipað og ákveðið svo og einnig gjört áætlun hjónabandsins. Því ber að standa rétt að því á allan hátt. „Hjú- skapurinn sé í heiðri hafður í öllum greinum og hjónasængin sé óflekk- uð, því að hórkarla og frillulífsmenn mun Guð dæma.“? „Sá sem eignast konu, eignast gersemi, og hlýtur náðargjöf af Drottni.“3 Og sáttmáli hjónabandsins skildi vera lífstíðar- sáttmáli. Þegar Adam var í aldin- garðinum í Eden þá sagði Guð að ekki væri það manninum gott að vera einsamall. Og Hann útbjó með honum meðhjálp við hans hæfi. Hann útbjó ekki eitthvað reynslu- hjónaband fyrir Adam, né neinn skammtíma samning. Adam og Eva skyldu vera eitt meðan þau lifðu. rfiÆtkÉÍEfikm Sam Daniel Glad lauk námi frá Bibliuskólan- um IBTI, í Englandi, nu áríð 1974. Hann er nú V aðstoðarforstöðumað- .JF ur Filadelfíusafnaðar- ins í Reykjavík.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.