Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 6

Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 6
Viðtal við Auðunn og Ólu Blöndal: ,,Guð gerir alla hluti nýja J J Jesús lifir og hann svarar bænum breyskra manna enn í dag. Lifandi sönnun þessa eru hjónin Óla og Auðunn Blöndal. Þau hafa fengið sinn skammt af hremmingi veraldarvolksins. Hjóna- skilnaður, áfengisböl, tó- baksfjötrar og allt sem því fylgir, er að baki, því Guð heyrir bæn. í viðtali við Aftureldingu segja þau frá því hvernig Guð læknaði brostið hjóna- band og gaf sigur í erfið- leikum, sem marga hrjá í dag. Hvemig bar skilnað ykkar að? Auðunn: Við vorum ung þegar við giftumst fyrst, bara krakkar. Lífslöngunin og lífsþorstinn svall í mér. Eg var flugvirki hjá Flug- félagi íslands og naut starfsins — að njóta lífsins á öllum sviðum var mitt takmark. Ég byrjaði ungur að drekka áfengi, aðeins sextán ára gamall, og átján ára fór ég að reykja. Óla mín drakk ekki, en hún reykti. Drykkjan ágerðist hjá mér. Mér var ef til vill ekki Ijóst, eins og öðrum, hvert stefndi. Ég man til dæmis eftir því að einu sinni var ég í áhöfn flugvélarinnar Sólfaxa í Grænlandi. Þarna flaut bjórinn á öllum börum. Ég drakk mikið af bjór. í hópnum var ungur strákur, sem ekki drakk. Ég var að mana hann til að fá sér, þó ekki væri nema einn bjór. Hann tók það ekki í mál og sagði: „Auðunn, það er eins ólíklegt að ég byrji að drekka og að þú hættir að drekka.“ Þetta stakk mig svo- lítið, en ég lét mér ekki segjast. Árin liðu og þetta vatt upp á sig. Svo kom að því að Óla setti mér skilyrði: „Annað hvort hættir þú að drekka, eða þú hættir við mig.“ Ég drakk áfram og að því kom að við ákváðum að skilja. í sjálfu sér vorurn við ekki pers- ónulega ósátt og þetta gerist í ró og spekt. Engin illindi, við fórum meira að segja í skilnaðarferð, svipað og aðrir fara í brúðkaups- ferð! Óla: Ég varð svo fegin að losna við þennan drykkjuskap í kring- um mig, að ég hefði gengist inn á næstum hvað sem var. Þetta var auðvitað erfitt, að skilja eftir tíu ára hjónaband og eiga tvö börn. Auðunn: Ég var alkóhólisti og það var aðalástæðan fyrir skiln- aðinum. Eftir hann fórum við hvort okkar leið. Ég rataði í margvíslega erfiðleika, sem ég ætla ekki að rekja hér. Samt dunaði lífsþorstinn í mér, ég þráði að njóta lífsins. Svo gerðist það einn dag að maður bankaði upp á hjá mér og bauð til sölu kristilegar bækur og Biblíur. Þarna var Dagbjartur Guð- jónsson kominn. Ég bauð honum inn og hann vitnaði fyrir mér um Drottin og bað fyrir mér. Ég hafði áfram samband við Dag- bjart og fór að leita til trúarinnar á Jesúm. las í Biblíunni og hitti trúað fólk. Ég uppgötvaði að þarna var eitthvað, sem ég þarfnaðist. Óla: Einu sinni hringdi Auðunn i mig af sjúkrahúsi. Hann bað mig um að hitta sig. Minntist á að við ættum nú þessi börn saman og hvort ég vildi ekki koma og tala við sig. Rétt eftir að ég var búin að tala við hann hringdi vinkona mín, sem þekkti til á sjúkrahús- inu sem Auðunn vará. Hún sagði mér þær fréttir, að Auðunn væri 1 afvötnun og bætti svo við: „En nú er ekki betra tekið við. Hann les í Biblíunni!“ Hugsa sér þessa fordóma, að biblíulestur sé vern en ofdrykkja og afvötnun. Auðunn: Ég var orðinn svo illa farinn af drykkjuskap að ég gat

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.