Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 12

Afturelding - 01.04.1982, Blaðsíða 12
Samstaða hjóna Hjónabandið er mjög svo sérstætt fyrirbæri. Þegar Biblían segir að tveir einstaklingar verði eitl þá er það eitthvað sem erfitt er að útskýra, en hægt er að upplifa. Hjónin gefast hvort öðru. Biblían gefur ýmsar Ieiðbeiningar varðandi hjónaband og fjölskyldu og mikilvægt er að skoða þá hluti. Það ber að gera í samhengi og með réttu hugarfari. í Efesusbréfinu segirað maðurinn sé höfuð konunnar og að hún skuli vera undirgefin manni sínum.4Nei bíddu nú við, kunna sumir að segja, þetta gengur aldrei, þetta eróréttlátt. En við skulum nú ekki afgreiða þetta svo. Við lesum líka: „Þannig skulu eiginmennirnir elska konur sinar eins og eigin líkami," og: „Þér menn, elskið konur yðar eins og Kristur elskaði söfnuðinn og lagði sjálfan sig í sölumarfyrir hann.“ Maðurinn á að líta með fómandi ást og elsku til konu sinnar, en ekki líta á hana sem undirgefinn þjón. Skylda beggja hefur í för með sér að gefast hvort öðru og bera umhyggju hvort fyrir öðru. Hjónabandið krefst þess að frekar sé spurt hvað get ég gefið í stað þess að spyrja hvað fæ ég. Eigin- maðurinn krefur ekki konu sína um undirgefni og hún á móti hann ekki um fórn. Hjónabandið er ekki sá vettvangur þar sem annar aðilinn krefur hinn um allt, heldur spyr fremur, hvað get ég gefið þér og gert fyrir þig. Ef eiginmaðurinn elskar konu sína eins og hér kemur fram þá hugsar hann ekki um hana sem þjón, sem hann geti algjörlega skipað fyrir verkum, heldur lítur hann á hana sem hlut af sjálfum sér, vin sem hann getur deilt með áhugamálum sínum eða hverju sem er, jafnt gleði sem sorg. Og ef konan er undirgefin eiginmanni sínum þá krefur hún hann ekki um allan hans tima, þjón- ustu og gæði þessa lífs. Sem sagt, lífsgæðakapphlaupið verður ekki númer eitt, heldur hamingja og ein- ing hjónabandsins. Og hún reynir í kærleika að bera umhyggju fyrir manni sínum. Þannig hugsa þau hvort um annað, gefast hvort öðru, uppfylla þarfir hvors annars, án þess að krefjast nokkurs í staðinn. Sem sagt algjör eining og samstaða. En af hverju gengur það ekki nema kan- nski í fáum tilfellum? Ekki er verið að halda því fram að þetta gangi al- gjörlega deilu- og þrætulaust. En alltof margir giftast með það í huga að þeir fái sem mest út úr því sjálfir. Þegar bæði hugsa aðeins um eigin hag og vilja, þá koma að sjálfsögðu upp deilur, rifrildi og ófriður. Undir slíkum kringumstæðum er ekki spurt: „Hvernig fáum við best haldið saman hjónabandinu eða fjölskyld- unni“, heldur: „Hver vinnur þetta deilumál?" Þegar það er orðið mikilvægast að vinna deilumálið, þá er það nú orðið svo að hjónabandið er bara eitthvað sem er hreinlega fyrir. Ef eiginn vilji er það mikilvæg- asta sem við sjáum þá mun hjóna- bandið líða fyrir það. Að sjálfsögðu koma alltaf upp einhverjar deilur og skoðanaágreiningur, því tveir ein- staklingar líta aldrci alla hluti eins. En slíka hluti má alltaf leysa ef vilji er fyrir hendi. Oft er það nú svo þegar hjón eru upp á móti hvort öðru, þá eru bara þulin upp atriði sem þau eru ósam- mála um. „Heimskinginn hefirengar mætur á hyggindum, heldur á því að gjöra kunnar hugsanir sínar.“5 En það skiptir okkur mestu máli og hjónabandið á að gefa okkur þá djörfung að finna aðra leið — mála- miðlun — ekki mín skoðun ekki hennar skoðun heldur eitthvað annað. „Betri er þurr brauðbiti með ró en fullt hús af fómarkjöti með deilurn."6 „Þegar deila byrjar, er sem tekin sé úr stífla, lát því af þræt- unni, áður en rifrildi hefst.“7 Betra er að velja frið en sigur í deilu, þannig næst sátt, samlyndi og samstaða, eining hjónabands. En að þurfa að gefa eftir þegar þú ert viss um að hafa á réttu að standa, það tekur á. En hvers virði er hjóna- bandið? Gott hjónaband er mjög dýrmætt, hvað viljum við gefa fyrir það? Hversu mikils metum við það? Hjónabandið krefst fóma, þjónustu, umhyggju, vinnu. eftirlátsemi — þar sem eigingirni er annars vegar er ekki rúm fyrir slíkar hugsanir. Er konan óæðrí manninum? í dag er mikið talað um rétt kvenna og minnihlutahópa í þjóðfé- laginu. Og að sjálfsögðu ber hverjum að hafa sinn rétt. En menn geta orðið svo uppteknir af að skoða sinn eigin rétt að þeir gleyma rétti annarra. Margir segja að sú staða sem Biblían setur fram gagnvart konunni sé óréttlát, að verið sé að gera konuna óæðri manninum. En spurningin er alls ekki hvor sé æðri. Konan er hvorki æðri né óæðri og sama gildir um manninn, hann er hvorki æðri né óæðri en konan — ekki meir en höf- uðið er líkamanum. Það væri rangt að segja að höfuðið sé æðri öðrum líkamshlutum. Höfuðið hefur annan starfa en aðrir hlutar líkamans en án líkamans væri höfuðið ekkert og án

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.