Afturelding - 01.04.1982, Side 16

Afturelding - 01.04.1982, Side 16
MAÐURINN Ah ha, þarna náði ég þér! Þú ert ef til vill einn þeirra lesenda Aftureldingar sem ferð yfir blað- ið á núgildandi heimsmeti í 100 metra hlaupi (9,9 sekúndum). Leitarðu kannski uppi áhuga- vekjandi myndir eða fyrirsagnir? Ef svo er þykir mér leitt að hafa þurft að nýta mér þennan veik- leika þinn til að ná athygli þinni, en vil þó um leið gerast svo djarfur að biðja þig að fylgja mér í gegnum þessa grein. Hver veit nema það sem ég hef að segja þér gæti reynst forvitnilegt. Þannig er mál með vexti að Jónína hans Stefáns byggingar- verktaka fékk splunkunýjan B.M.W. í afmælisgjöf frá manni sínum um síðustu helgi. Þó eru ekki nema rétt 3 mánuðir síðan þau seldu 3ja herbergja íbúðina sína og fengu sér einbýlishús á besta staðnum í austurbænum. Mér finnst gæðum lífsins mjög misskipt og skil reyndar ekkert í því hvernig þau geta leyft sér þetta á meðan ég þarf að strita myrkranna á milli til að hafa ofan í mig og á. Hún María vinkona mín, sem var í heimsókn hjá Jónínu og Stefáni í gær sagði að þar hefði allt verið á öðrum end- anum, óhreinar gardínur fyrir gluggum og ryk í hverju homi. Svo væri Jónína enginn kokkur. Kökurnar sem hún bakaði hefðu verið þrælseigar og algjörlega bragðlausar. Svo væri ekki á bætandi hversu krakkarnir þeirra væru alltaf subbulegir til fara. Það er sem ég segi, þetta er ekki annað en yfirborðsríkidómur og svo skal ég segja þér annað ... Ef þetta slúður um Jónínu og Stefán vekur ekki áhuga þinn, sökum þess að það höfði ekki til þín að baktala náungann og öf- undast yfir velgengni hans, ert þú svo sannarlega á réttri hillu. Hafir þú hins vegar fylgst með því af áhuga og jafnvel lækkað niður í útvarpinu til að njóta þess sem mest, er næsta víst að svo er ekki. Það má jú vel vera að þú sért alæta á lesmál eða þjáist af ræktarsemi við ritað mál, en hitt er þó líklegra að löngun til að hnýsast örlítið inn í málefni ná- ungans eigi sinn þátt í áhuga þínum. Hefðir þú ekki viljað vita meira um Jónínu og Stefán? Um subbuskapinn á heimili þeirra?

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.