Afturelding - 01.04.1982, Side 24
Hjarta sem fyrirgefur
Það sorglega við hatur er hvað
það gerir þeim sem hatar.
Fyrirekki löngu síðan talaði ég
við unga móður, sem var full
beiskju. Foreldrar eiginmanns
hennar höfðu sagt eitthvað miður
fallegt við hana og það hafði
valdið miklum leiðindum. „Ég
mun aldrei geta litið tengdafor-
eldra mína réttu auga eftir þetta,“
sagði hún. „Jú, jú, þau hafa beð-
ist afsökunar, en ég get bara ekki
gleymt því sem þau sögðu.“
Ég vorkenndi konu þessari.
Það var hún sjálf sem þjáðist
vegna þessa haturs, en ekki
tengdaforeldrar hennar. Tilfellið
er, að beiskja, ofsi, reiði, mann-
vonska og allt það sem Páll pos-
tuli hvetur okkur til að losa okkur
við (Ef. 4:31—32), þessi hegðun
tærir okkur upp líkt og sýra.
Beiskjaokkarlendirekki aðeinsá
þeim sem í kringum okkur eru og
eyðileggur vináttu okkar, heldur
nagar hún sig inn í sálir okkar.
Clara Barton, stofnandi Rauða
Krossins í Ameríku, átti vinkonu
sem minnti hana eitt sinn á
reglulegt óþokkabragð, sem ein-
hver hafði gert henni mörgum
árum áður. En frú Barton virtist
ekki muna eftir atvikinu.
„Manstu ekki eftir því?“ spurði
vinkonan.
„Nei,“ svaraði hún, „en ég
man greinilega eftir að hafa
gleymt því.“
Þú getur ekki verið frjáls og
glaður, ef þú elur gremju í brjósti
þér; svo ef þú vilt eignast hugar-
ró, þá ráðlegg ég þér að losa þig
við hana. Safnaðu mynt, safnaðu
antik, en ekki safna gremju.
Maðurinn sem fyrirgefur er
stundum talinn veiklundaður,
eða án þess að hafa bein í nefinu,
en staðreyndin er hins vegar sú
að það þarf sterkan persónuleika
til aðgeta fyrirgefið. Fyrirgefning
er mjög jákvætt afl, sem hefur
bæði áhrif á þig og þann sem þú
fyrirgefur.
Stundum er það í eðli tilfinn-
ingalegra vináttusambanda að
ósætti myndast. Þegar maður ber
saman hin mjög svo formlegu
bréfaskipti, sem stóðu næstum
ævilangt, á milli Thomas Jeffer-
sons og James Madisons (sem
hann reifst aldrei við), við hin
líflegu og á tímum þrætugjörnu
bréf, sem hann sendi John
Adams, er augljóst, að honum
þótti miklu vænna um Adams,
heldur en Madison. Samt slettist
upp á þann fræga vinskap svo úr
varð 11 ára beisk þögn þeirra á
milli.
Báðir voru óhamingjusamir
útaf vinaslitunum. Benjamin
Rush þekkti báða mennina mjög
vel og vissi, að þeir þráðu báðir
sameiningu aftur. Svo hann bar
skilaboð fram og aftur á milli
þeirra, þar til þeir hófu bréfa-
skipti á ný. Næstu 14 árin, þar til
báðir létust árið 1826, sendu þeir
hvor öðrum margar hlýjar
kveðjur, og sum bréfin voru þau
einlægustu sem Jefferson skrifaði
í sinni tíð.
Flvað átti Páll postuli við í óð
sínum til kærleikans, þegar hann
sagði: „Kærleikurinn er ekki
langrækinn?“ (I. Kor. 13:5 L.O.).
Ég hygg að hann hafi átt við,
að fyrr eða síðar, í hvaða vináttu
sem er, muni einhver gera eitt-
hvað á annars hlut. Á einu litlu
augnabliki getur vinur þinn sýnt
þér fjandsemi, verið aðfinnslu-
samur, valdið niðurlægingu eða
snúið við þér baki. Og ef við
leyfum okkur að dvelja á þessum
misgjörðum er vináttan dauða-
dæmd. Með því að halda ná-
kvæma skrá yfir það sem gert er á
okkar hlut, tökum við endanlega
á okkurgervi ákærandans.
Flest okkar hafa mjög lélegt
minni hvað varðar okkar eigin
mistök. En ef við ætlum að fyrir-
gefa af hjarta, þörfnumst við
jafnmikils umburðarlyndis gagn-
vart öðrum, eins og við sýnum
sjálfum okkur hvað varðar okkar
eigin mistök. Það er furðulegt
hversu skilningsrík við jafnan
erum, þegar við þurfum að eiga
við okkur sjálf:
„Ég ætlaði ekki að gera það.“
„Það skeði þegar ég var í upp-
námi.“
„Þetta var ekki góður dagur
fyrir mig.“
„Ég veit betur næst.“
Við erum gjörn á að sjá okkur
sjálf ekki eins og við erum, heldur
eins og við erum að reyna að
vera, á meðan við sjáum aðra eins
og þeir eru. í samskiptum sínum
við Pétur og konuna við brunn-
inn, sá Jesús þau eins og þau voru
að reyna að vera og gætu orðið.
Það mundi hjálpa mikið til við að
byggja sterk vináttubönd, ef við
gætum sýnt þannig skilning
gagnvart okkar nánustu vinum.
Að lokum þurfum við andleg-
an kraft til að hjálpa okkur að
fyrirgefa og gleyma. Það er sama
hversu mikið við reynum að hafa
hugarfar Krists og þolinmæði,
sama hversu mikið við reynum