Afturelding - 01.04.1982, Qupperneq 29
FRÉTT|R _ ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR
varpssendingar ná nú til 990 milljóna
áheyrenda.
Þyngdarpunktur kristninnar liggur nú í
þriðja heiminum. Þar eru miklar vakn-
ingar og ef svo fer sem horfir þá munu
60% kristinna manna búa i Asiu. Afríku
og rómönsku Ameríku unt aldamót.
DAGEN 5.5.82
f maíbyrjun héldu norrænir hvita-
sunnumenn (island undanskilið) ráð-
stefnu í Kaupmannahöfn um kristniboð.
Slikar ráðstefnur hafa verið haldnar um
nokkurra ára skeið til skiptis í Sviþjóð,
hinnlandi, Noregi og nú í Danmörku.
Unnið er að samræmingu og auknu sam-
starfi þessara landa í kristniboðsmálum.
Gerð er grein fyrir stöðu kristniboðsstarfs
hvers lands um sig, og tcknar ákvarðanir
um ný skref.
A ráðstefnunni kom fram að hvitasunnu-
menn á norðurlöndum starfrækja kristni-
hoðsstarf í 150 þjóðlöndum, yfir 1500
kristniboðar eru að starfi i dag. Ef Guð
leyfir verður næsta kristniboðsráðstefna
norrænna hvitasunnumanna haldin i
Jönkoping vorið 1984.
KS4082
Argentiski vakningarpredikarinn Luis
l'alau, oft kallaður „Billy Graham
Suður-Ameríku“,erönnum kafinn ístarfi
sínu. Nýlega var hann í Ástralíu með
samkomur og þar leiluðu 1400 Ástralir
Krists. Þaðan fór Palau til Washington,
hafði skamnta viðdvöl og fór til Finn-
lands. Þar var haldin trúboðsvika krist-
■nna safnaða i fshöllinni. 8—10 þúsund
samkomugestir komu á hverju kvöldi í
vikutima. Yfir 900 gáfust Kristi.
DAGEN 7.5.82
Á sjö árunt hefur hvítasunnusöfnuður-
'nn í Bláhöj á Jótlandi, vaxið úr 70 með-
hmum í 250. í þorpinu búa aðcins 200
ihúar, en það liggur miðsvæðis milli þétt-
ari byggða. f söfnuðinum er ríkulegt
hænalif. Á hverjum morgni safnast fólk til
hæna í heimilum, laugardagsnætur eru
hænanætur og klukkustundar bæna- og
f°fgjörðarsamkoma er haldin á undan
opinberum sunnudagssamkomum.
Uamla safnaðarhúsið er orðið allt of lítið
°g næsta ár er ætlunin að vígja nýja 500
sæta kirkju.
DAGEN 4/5
Odd Bondevik, aðalritari norska
kristniboðssambandsins, hvetur Norð-
menn til föstuhalds. Þetta föstuhald er
gagnvart sjónvarpinu. — Tilgangur föst-
unnar er að fá nieiri tíma til Guðsdýrk-
unar og skapa einbeilni í bænalífi, segir
hann. Og það er ekki neitt sem rænir jafn
miklum tima og athygli frá kristnum
Norðmönnum. og sjónvarpsglápið.
EH 1982
f október 1978 köstuðu nokkrir hvíta-
sunnuntenn í Californíu flöskuskeytum í
Kyrrahafið. Flöskurnar innihéldu eintök
af Lúkasar-guðspjalli og annað kristilegt
lesmál. Eina flöskuna rak á land 19 mán-
uðum síðar a lítilli eyju i Filippseyjaklas-
anum. Finnandinn las guðspjallið og
frelsaðist. Hann miðlaði boðskapnum
með vinum sínurn og margir þeirra snér-
ust til trúar. Um sama leyti kom kristm-
boði til eyjarinnar og hitti fyrir áhuga-
sama áheyrendur, sem vildu fræðast um
Jesúm. Eftir tvo og hálfan mánuð höfðu
um 70 snúist til trúar. Þá skrifaði hann til
þeirra, sem sjósettu flöskuskeytin og ósk-
aði eftir 240 Nýja testamentum og 96
bréfanámskeiðunt fyrir nýfrelsaða.
KS 3582
Ron Jones, fyrrum aðalrilari Elim--
hvítasunnusafnaðanna i Englandi, heim-
sótti Pólland áður en herlög voru sett.
Hann sagði að Hvitasunnuhreyfingin
væri i örum vexti. Nú eru um 60 kirkjur
með 60 þúsund meðlimi í hreyfingunni.
Hvítasunnumenn starfrækja og Biblíu-
skóla með 19 ncmendum.
ÍPPA 482
Lily Osmer, er líklega elst allra ritsljóra,
sem stýra blöðunt Hvítasunnumanna
viða um heint. 21. ágúst n.k. verður frú
Osmer, ritstjóri The Star of Hope i Cali-
forníu, níutíu og finim ára gömul.
IPPA 482
Mótmælendur í Portúgal óttast skerð-
ingu á trúfrelsi, sem nýrri stjórnarskrá var
ætlað að tryggja óskorðað. 98% portúgala
eru rómversk — kaþólskir. Söfnuðir
mótmælenda fást ekki skráðir sem trúar-
samfélög, heldur sem almenningssamtök.
Prestar mótmælenda eru ekki viður-
kenndir scm slíkir, heldur sagðir á sjálfs
síns mála. Þeir njóta ekki sömu skatta-
fríðinda og kaþólskir kollegar þeirra.
CAW 482
^ÉTTttl - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR
- ERLENDAR FRÉTTIR
Kvikntyndin „Jesús,“ sem byggð er á
Lúkasarguðspjalli. hefur nú verið þýdd á
fleiri tungumál en nokkur önnur kvik-
mynd. Hún er notuð með mjög góðum
árangri við trúboð í löndum þriðja
heimsins. 80% íbúa þessara landa eru
ólæsir og geta þvi ekki lesið Biblíuna, sent
iðulega er á svo háfleygu máli að al-
ntenningur skilur tæpast.
CAW 482
Indverski trúboðinn Akbar Abdul —
Hagg, sem hefur verið mikilvirkur trú-
boði í landi sínu í 25 ár, hélt stórsam-
komur í fjórum bæjum i febrúar siðast-
liðinn. 250.000 áheyrendur komu á sam-
komur þessar, 3.160 gerðust lærisvcinar
Krists. Það var einkum í bænum Rajah-
mundry i Andrha Ptradesh að fólk vildi
gefast Kristi, eða um 2.200 manns. Á síð-
ustu samkomuna kontu yfir 30.000 gestir.
KS4282
Frá 28. september til 16. mai sl. sátu 20
Grænlendingar í biblíuskóla Hvítasunnu-
manna, sem haldinn var í Egedesmindc.
Aðalkennari var Arvin Glandon, sent
vcrið hefur kristniboði meðal eskimóa i
Alaska í 18 ár. Sá bakgrunnur gerði að
verkunt að kennsla Glanons féll nem-
endum vel i geð. Norski kristniboðinn
Torbjöm Baatvik var túlkur skólans. Allir
ljúka upp einum rómi um ágæti þessa
skóla og vænta ávaxta af starfi hans i ná-
inni framtíð.
KS4582
Biskup lúthersku kirkjunnar í A-
Þýskalandi. Dr. Werner Krusche, segirað
ungt fólk leiti Guðsog komi til kirkjunnar
í auknum mæli. Prestur i Magdeburg
segir að unga fólkið noti orðið „inni-
haldslaus" til að lýsa áróðrinum fyrir
sósíalisma. það segir að sósíalisminn gefi
ekki fullnægjandi svör við spumingum
lífsins.
CAW 682
Menntamálaráðherra Bresku Colont-
bíu í Canada gefur líffræðikennurum
leyfi lil að kenna biblíulega sköpunar-
kenningu samhliða þróunarkcnningu
Darwins. Viðbrögð almennings við þess-
ari ákvörðun eru í langflestum tilfellum
jákvæð.
CAW 582
- ERLENDAR FRÉTTIR