Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Síða 11

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Síða 11
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 11 Sigurður Guðnason skipstjóri: Sögur of sjónum Sigurður Guðnason er fæddur i Keflavík 4. janúar 1887. Hann fór ungur að stunda sjó og gerði það í mörg ár. Hann var á árabátum, seglskútum, vélbát- um og togurum og auk þess í millilandasiglingum. Hann lauk farmannaprófi í stýrimannaskólanum í Reykjavík vorið 1909 og var lengi skipstjóri á ýmsum skipum, farsæll í hvívetna. Hann hefur átt heima í Hafnarfirði siðan 1913. Sigurður er greindur maður og athugull og kann frá mörgu að segja. Hafa frásagnir eftir hann áður birzt í hafnfirzkum blöðum. Frásagnarkaflar þeir, sem hér fara á eftir, eru á þann veg til komnir, að rit- stjóri þessa blaðs bað mig að eiga tal við Sigurð og skrifa eftir honum ein- hverjar sögur, sent gætu orðið lesendunum til fróðleiks og gamans. Varð Jjað ráð okkar Sigurðar, að við völdum að þessu sinni nokkra sundurlausa frá- sögukafla og gerðum enga tilraun að tengja Jrá saman, enda er hver Jteirra sjálfstæð saga. Eg lief reynt að fylgja orðalagi Sigurðar eins og mér hefur verið unnt. — Olafur Þ. Kristjánsson. Sigurður Guðnason, skipstjóri. Nissinn. Kei'lavík hét skúta, sem Duus- verzlun í Keilavík átti. Var hún keypt irá Hull í Englandi og hafði verið skírð upp, er hún kom hing- að. Hún var löngu seinna seld til Færeyja. Ég var háseti á Keflavíkinni í tvö eða þrjú ár. Þorvaldur Jónsson var þá með liana, en ég var vinnu- maður hjá honum. Þorvaldur átti seinna lengi lieima í Reykjavík. hegar það atvik kom fyrir, sem hér verður sagt frá, var Jón Bergsveins- son stýrimaður hjá Þorvaldi. Við lágunt á höfninni í Keflavík í bezta veðri, hægum austankalda. Rétt fyrir utan okkur lá dönsk skonnorta, sem hét Ásta. Skipstjór- inn á henni hafði boðið yfirmönn- unum á Keflavíkinni að heimsækja sig urn kvöldið. Fóru þeir á skips- bátnum, en höfðu band í honum, og átti ég að draga hann að okkar skipi aftur og festa hann þar, en síðan átti ég að vaka og gæta skips, en þegar þeir væru ferðbúnir lieim aftur, átti ég að losa bátinn, og ætluðu þeir þá að draga hann til sín að hliðinni á Ástu. Ætluðu þeir að kalla til mín, þegar þeir væru tilbúnir. Nú leið alllangur tími, svo að ekkert bar til tíðinda. Mig fór að sækja sveln, en ég vissi, að ég mátti ekki sofna. Þó varð það úr, að ég fór ofan í lúkar og liallaði mér þversum upp í eina kojuna, en nafði fæturna á gólfinu, og ekki lór ég úr stígvélunum. Ekki veit ég, hvað ég sat svona lengi, eða livort ég sofnaði, en líklegast hef ég þó gleymt mér. Allt í einu hrökk ég UPP °g sá stúlku í bláum, einföld- um kjól standa í stiganum. Hún hvarf jafnskjótt, en ég hljóp upp og heyrði þá köll til yfirmanna minna handan af Ástu. Ég losaði bátinn í skyndi, en þeir drógu hann til sín og komu um borð. Þorvaldur spurði mig, hvort ég hefði sofnað, en ég sagði eins og satt var, að ég vissi það ekki, en vel gæti verið, að ég liefði gleymt mér um stund. Síðan sagði ég þeim frá stúlkunni, sem ég hefði séð. Þá sagði Þorvaldur: „Hún hefur ekki viljað láta þig sofa lengi,“ og var eins og honum kæmi þetta ekki allsendis á óvart. Sú saga gekk, að Keflavíkinni fylgdi nissi. Það var stúlka, dótt- ir mannsins, sem átti hana í Hull. Hafði stúlkan fallið niður milli skips og bryggju og beðið bana af. Var sagt, að hún gerði helzt vart við sig undan vondum veðrum. Aldrei varð ég hennar var nema í þetta eina sinn, en svo var að heyra á Þorvaldi, að honum kæmi ekki ókunnuglega fyrir, þótt hún gerði vart við sig, enda var sagt, að hún héldi sig einkum aftur á skip- inu, þar sem káeta skipstjórans Þær vildu fá mig til að dansa. Vivid hét vélbátur, sem gerður var út frá Hafnarfirði í nokkur ár. Ólafur Davíðsson átti hann í félagi við Hoff nokkurn, en Hoff þessi var enskur maður og tengda- sonur Helga Zoéga í Reykjavík. Það var hann, sem var að halda brúð- kaupsveizlu sína í Hótel Reykjavík laugardgaskvöldið 25. apríl 1915, þegar eldur kom þar upp um nótt- ina með þeim afleiðingum, að hótelið brann til kaldra kola og 11 hús önnur. Ég var með Vivid í }n jú ár alls og átti hann síðari hluta þess tírna- bils ásamt Ólafi. Síðan seldum við bátinn til Ólafsvíkur. Seinast strandaði hann á Hornvík, en mannbjörg varð. Það var laugardaginn fyrir páska vorið 1922, að mig minnir, að við vorum á Vivid út af Krýsuvíkur- bergi. Við vorum að koma austan af Selvogsbanka. Það var laust eftir hádegi, að við vorum undir berg- inu. Við renndum þar og- urðum töluvert varir við fisk. Veður var svo blítt og gott, að við stóðum á skyrtunni við færin. Ekki höfðum við þar langa viðdvöl, þvi að við ætluðum að ná inn til Hafnarfjarð- ar á páskadaginn, enda höfðum við aflað í skipið. Þegar við vorum komnir inn á móts við Garðskaga, sótti mig svefn, svo að ég gat ekki haldið mér uppi, heldur fór niður í og lagði ,mig og sval' í góðan klukkutíma. Þá dreymir mig, að til mín koma sjö stúlkur, allar eins búnar, á snjóhvítum kjólum. Ég þóttist kannast við eina þeirra, dóttur Bergs heitins Jónssonar skipstjóra í Hafnarfirði. Og erindið, sem þessar stúlkur áttu við mig, er þá að fá mig til þess að dansa við sig. Ég var treg- ur til og skoraðist undan og bar því við, að ég væri illa klæddur til þess að dansa við þær, auk þess sem ég væri staddur um borð í skipi mínu, því að ég þóttist vita í draumnum, hvar ég var. Varð það úr, að þær fengu mig ekki í dans- inn, og vaknaði ég þá. Vorum við þá komnir skannnt inn fyrir Skaga. Hafði stýrimaðurinn, Aðalbjörn Bjarnason á Hvaleyri, orðið var við íuglager á sjónum og lialdið þangað og látið renna færum. Eitt- hvað urðu menn varir, en innan skamms var haldið áfram. Veðrið var eins og áður, svo mikil blíða, að kalla mátti að væri bæði sól og sumar. Komum við til Hafnar- fjarðar eins og ætlað hafði verið. Nóttina eltir rauk hann upp með fárviðri. Stóð það veður í sjö daga, jafnmarga og stúlkurnar voru í draumnum. Lágum við í höfn þann tíma allan, enda hafði ég aldrei látið stúlkurnar hafa mig í að dansa. Síld og jólakaka. Það bar við þetta sama sumar, að við vorum á Vivid fyrir norðan Horn á Húnaflóa. Þetta var í byrj- un síldveiðitímans, en ekki vor- um við á síldveiðum, heldur þorsk- veiðum. Virtist vera þar nokkuð um fisk, en hann gaf sig ekki til, og töldum við, að úr því mundi bætast, ef við næðum í síld í beitu. Sáum við síldartorfu ekki langt frá okkur. Látum við þegar síldarnet í skipsbátinn, því að við ætluðum ekki að láta okkur þetta happ úr greipum ganga. Vaktina áður hafði ég sofið. Dreymdi mig þá, að ég væri kom- inn heint til móður minnar í Kefla- vík. Þótti mér hún gefa mér hálfa jólaköku, en svo rnikið af rúsín- um var í kökunni, að varla sást í annað en rúsínurnar. Nú skipti það engum togum, að jafnskjótt og ég kem út úr bæjardyrunum, kem- ur brúnn hestur móti mér og leit- ast við að ná af mér kökunni. Hef ég ekki nokkurn frið fyrir lionum, og síðast verður það mitt ráð, að ég fleygi frá mér kökubútnum upp á bæjarvegginn. Við það hrökk ég upp og sá ekki, að neitt gæti verið að marka þennan draum. Nú er að segja frá síldveiðinni. Þegar ég er búinn að hringa netið utan um torl'una, sem var heldur lítil, og ekki annað sjáanlegt en hún væri vís í hendi, þá kernur þar síldarhnífill askvaðandi og stingur sér í torfuna, tvístrar henni allri og rífur fyrir okkur endann á netinu. Höfðum við ekkert af síldinni, — ekki lrekar en ég jólakökuna í draumnum. Úr íeið. Það er skrýtið, hvernig lítilfjör- leg atvik geta stundum haft mik- ilvægar afleiðingar, eins og til dæmis að taka, þegar marklaust mas í stráklingi verður til þess að l'orða skipi lrá strandi. Ég var háseti á togaranum Víði hjá Magnúsi heitnum Kjærnested, þegar þetta gerðist. Við komum út frá Hafnarfirði og ætluðum austur á Hvalbak. Við fórum eins og leið liggur, og segir ekki af okkar ferð fyrr en við vorum komn- ir austur fyrir Vestmannaeyjar. Var það seinni hluta dags, sem við fór- um fram hjá Súlnaskeri. Annar togari, Egill Skallagríms- son, varð samferða okkur austur, þó nokkuð á undan og aðeins grynnra. Klukkan tólf um nóttina kom ég á vakt, en ég var vaktarformaður. Suðaustankaldi var á, sjólítið, en dálítil súldbræla. Þegar ég er nýkominn á vaktina, segi ég við Svein Jónsson, sem lengi

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.