Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Síða 34

Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1958, Síða 34
34 ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR 60 ára hjúskaparafmæli eiga hjónin Pétur Jóakimsson og Agnes Felixdóttir hinn 18. desember n. k. Pétur fæddist að Auðnum á Vatnsleysuströnd 9. sept. árið 1874, en Agnes kona hans er f. 12. júní 1872 að Tungu í Út-Landeyjum. Þau hjónin fluttust til Hafnarfjarðar árið 1921, og hefur Pétur stundað alla algenga vinnu hér í bænum síðan, einkuni vegavinnu, og hefur hann sem verka- maður átt sinn þátt í lagningu fjölmargra gatna í bænum. I>au lijón eignuð- ust 8 mannvænleg börn, og eru 7 á lífi, búsett í Hafnarfirði, Reykjavík og Kefla- vík. Þau Pétur og Agnes búa nú hjá syni sínum Jóakimi að Krosseyrarvegi 5 B. Munu margir Hafnfirðingar verða til þess að heimsækja þessi lieiðurs- hjón á fimmtudaginn kenmr. Alþýðublaðið sendir þeim sínar beztu kveðjur, í tilefni dagsins. •o»o*o*o«o«o*> •o*c*o*o*o*o#o*o*o*o»o*o«o*o*o*o»o«o«o*o«o*o#o«o»o*oi - ....... ... ..... ......... Krossááta Lárétt: 2. Hvað. — 4. Ræktað land. — 8. Á höfði. — 9. Trassi. — 10. Arvakur. Lóðrétt: 1. Línu. — 2. Stóra. — 3. Vöntun (þf.). — 4. Und. — 5. Bókstaf. — 6. Vega salt. — 7. ... a Hækka í tign. — 8. Bók- staf. Þrautir. Sýslumaður, prestur, læknir og skólastjóri áttu heima í sama þorpi. Þeir hétu (nöfnin ekki í sömu röð): Guðmundur, Jón, Sigurður og Magnús. 1. Guðmundur og presturinn voru í litlu vinfengi við Sig- urð. 2. Hlýtt var með Jóni og skóla- stjóranum. 3. Sigurður var frændi læknisins. 4. Sýslumaðurinn var virktavin- ur Magnúsar og skólastjór- ans. Hvað hét hver þessara heiðurs- manna? Reikningsþraut. Kaupmaður nokkur lét járnsmið járna íyrir sig hest, skipaði hon- um að gera það vel og sagðist borga það vel á eftir. Smiðurinn setti upn 1 evri fvrir fyrstu fjöðrina, 2 fyrir hina næstu og svo alltaf tvöfalt fyrir hverja ljiiður; þær voru 24. Kaupmaður- inn hló að hve lítið þetta væri og sagði bókhaldara sínum að borga. En hann hætti brátt að hlæja, þeg- ar hann sá hver upphæðin var. Hver var upphæðin? Eldspýtnaþraut. Geturðu fundið hvorum megin hausarnir á eldspýtunum eru í full- um eldspýtnastokk, án þess að opna hann? Talnagáta. 1 — 13. Heimili margra manna. 9, 10. Fornt vopn. 4, 2, 7, 5, 6. Smíðaáhald. 8, 9, 13, 11. Þurrlendi. 12, 10, 11. Grjót. Ó. Þ. K. EFJVír Bls. Örn Arnarson: Jól............................................ 3 Magnús Jónsson kennari: íbúar Hafnarfjarðar 1902 4 Gísli Sigurðsso?! lögregluþjónn: Gerðin i bœnum........ 7 Jón Einarsson verkstjóri: Fyrstu lögregluþjónarnir..... 9 Sigurður Guðnason skiþstjóri: Sögur af sjónum ......... 11 Sigurjón Amlaugsson verkstjóri: Litið til baka.............. 13 Friðfinnur V. Stefánsson múraram.: Kindumar minar .... 15 Buxnahvarfið (barnasaga) ................................... 17 Þór. Guðmundsson frá Sa7idi: Hafnarfjörður og umhverfi 19 Oskar Jónsso7i framkvœmdastjóri: Sagnir að vestan .......... 21 Hver er sjómaðwm^i? ........................................ 22 Verðlamiaþrautir ........................................... 23 Ha^ines JÓ7isso7i: Stökur................................... 24 Atvinnufyrirtœkin í bcc7ium 11. Skiþas771 iðastöði71 Dröfn . . 25 Myndaoþ7ian ............................................. 26—27 Stefán Júlíusson rithöfundur: Söngvarinn (smásaga)..... 29 Barnagaman.........•................................... 32—33 Efnisyfirlit, fréttir og smcelki............................ 34 Bjarni Jónsson myndskreytti sögurnar: Söngvarinn og Buxnahvarf- ið. Hann teiknaði einnig mynd við jólakvæði Arnar Arnarssonar og nokkrar myndir við barnagaman. Gunnar Rúnar tók forsíðu- myndina og allar myndir frá Dröfn h. f. Magnús Jónsson kennari Gísli Sigurgeirsson og Sigríður Erlendsdóttir lánuðu gamlar mynd- ir. Ólafur Þ. Kristjánsson aðstoðaði við prófarkalestur. Vilbergur Júlíusson sá um útgáfu þessa jólablaðs, svo og jóla- blaðsins í fyrra. Smælki. Sonurinn: — Dæmið, sem Jrú reiknaðir fyrir mig í gær, pabbi, var skakkt hjá þér. Faðirinn: — Hvaða vantlræði! Sonurinn: — Það gerði ekkert til, því að feður flestra hinna strákanna höfðu líka reiknað Jrað vitlaust. Hún: „Þér Jrykir víst vænna um kjötbollurnar lieldur en mig! Hann: „Nei, elskan mín, mér Jaykir auðvitað vænna um J)ig, því að ])ú býrð til kjötbollurnar." „Ég hef eignazt son í nótt.“ „En ánægjulegt — til hamingju. Var J)að drengur?“ Skotasaga. Tveir Skotar sátu á brú og voru að veiða. Þeir veðjuðu um það, hvor yrði fyrri til að veiða fyrsta fiskinn. Skömmu síðar beit á hjá öðrum. Varð hann ])á svo glaður, að hann datt í ána af eintómri geðs- hræringu. Þá kallaði liinn Skotinn: — Þetta kalla ég nú að hafa rangt við, ef J)ú ætlar að kafa eftir fisk- inum. Dómarinn: „Þér eruð dæmdur í fimm ára hegningarhúsvinnu. Hvað haldið þér, að þér vilduð helzt gera? Fanginn: „Ef dómarinn liefði ekki neitt á móti J)ví, ])á vildi ég helzt vera til sjós.“

x

Alþýðublað Hafnarfjarðar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublað Hafnarfjarðar
https://timarit.is/publication/411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.