Good-Templar - 01.01.1897, Blaðsíða 5

Good-Templar - 01.01.1897, Blaðsíða 5
GOOD-TEMPLAIR. BLAÐ STÓRSTÚKU ÍSLANDS. 1. blað. Janúar 1897. I. ár. Til allra Inndindismanna og bindhidisvina á fslandi, þeirra, er þetta sjá eður heyra. Framkvæmdarnefnd stórstúku Islands sendir yður öllum innilega kveðju, þegar hún nú í annað sinn ræðst i að gefa út bindindisblað á kostnað Reglunnar hér á landi. — Yður treystum vér, frernur öllum öðrum, til að styðja og styrkja þetta fyrirtæki. Þér þekkið bindindis- málið og vitið hve brýna nauðsyn ber til þess, að hér sé haldið úti bindindisblaði; sambandið milli hinna ein- stöku flokka bindindisliðsins er lítið eða alls ekkert, flokk- arnir eru tvístraðir viðsvegar um allt landið, vita lítið eða ekkert hver um annan og liafa lítinn sem engan stuðning hver af öðrum, en eiga þó allir að leggjast á eitt, allir að vinna að sama takmarki. Vjer verðum því . að gjöra vort itrasta til þess að sameina kraptana, þar sem því verður við komið, efla að öðru leyti sem mesta samvinnu milli hinna ýmsu flokka, sem eru hingað og þangað á víð og dreif, og hafa sívakandi og sístarfandi samband i milli þeirra allra. En eptir því sem tilhagar hér hjá oss, verður þessu ekki við komið, svo að neitt verulegt gagn sé að, nema með bindindisblaði. Útgáfa. bindindisblaðs er því allra liluta vegna alveg ómissandi hér eins og annarsstaðar, þar sem nokkur bindindishreyf- ing á sjer stað. Auðvitað gjörir þó slíkt blað þvi að eins gagn, að það fái talsverða útbreiðslu, en útbreiðsla þess er aptur undir oss bindindismönnum sjálfum komin; því svo margir erum vér orðnir hér á landi bæði karlar og

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.