Good-Templar - 01.01.1900, Side 5
«fS9n» 'oso’
GOOD-TEMPLAR
BLAB STÓBSTÚKU ÍSLAKDS.
I. 0. Cr. T.
I’V. =L_
CT -A-HSTTJ' _A_!R.
1900.
©íeðilegi lilýái;!
Núverandi útg. „Good-Templars“ skorar á alla meðlimi
og vini Reglunnar að styðja blaðið með því að kaupa það og
útvega því kaupendur.
Starfsvið er nóg fyrir blaðið. Að svo fáir kaupa það, þrátt
fyrir þann mannfjölda, sem er í reglunni, hlýtur að stafa annað~
lwort af því, að fjöldi meðlima eru Templarar að nafnbót að
eins og að eins með hangandi hendi; eða þá af því að þeim
skilst ekki, hver styrkur þeim sjálfum og málefni voru er í
góðu málgagni; eða þá í þriðja lagi af því, að blaðið er ekki
svo úr garði gert, sem menn óska og vera þyrfti.
Pað verður viðleitni útgefanda þetta ár, að reyna að vanda
blaðið og sníða það sem bezt eftir því sem ætla má, að blaðið
þurfi að vera til að ná útbreiðslu og vinsældum, svo það geti
gagnað máli voru. Til þess þarf blaðið fyrst og fremst að
vera lœsilegt, ekki andlaust og þuit; ekki eilíf upptugga al-
gengra talshátta; með öðrum orðum: elcki enn ein ný útgáfa
af inni alþektu „stúku-mælsku“. — Ekki svo að skilja að
„Good-Templar“ ætli nú að fara að hafna inum gömlu og
góðu sannindum og frumreglum Reglu vorrar eða fliina upp
neitt nýtt púður. En tilgangurinn er að reyna að orða in
gömlu sannindi á nýjan hátt. Blaðið vill reyna að verða ekki
leiðinlegt, heldur á milli dálítið skemtilegt. Sannleikurinn
heflr engan skaða af fjöri og ganini. Þvert á móti. Beizkar
eða bragðleiðar lyfjakúlur eru oft þaktar sykurhúð að utan,
svo þær verði lystugri inntöku; þær verka ekki síður fyrir það.
Eins er með sannleikann. Var ekki ritgerð Guðmundar læknis
Björnssonar nógu skemtileg? Haldið þið áhrif hennar hafi
orðið minni fyrir það?