Good-Templar - 01.01.1900, Blaðsíða 10

Good-Templar - 01.01.1900, Blaðsíða 10
6 frá „Sigurvon" á Skagaströnd. Vinahandið vinnur með áhuga og fjöri að málefninu. Um hinar stúkurnar í Húnavatnssýsiu veit ég iítið. Stúkan HUðin nr. 37 í Fljótshlíð hélt afmæli sitt í Nó- vember 1899. Br. Sigurður Eiríksson var t>ar kominn og hélt fyrirlestur, og stúkan veitti viðtöku 16 nýjum félagsmönnum um kvöldið. Stúkan 'Perlan nr. 39 í Hvolhreppi hélt fund um sama leyti, og br. Sigurður Eiríksson var þar einnig og talaði. A fundinum gengu inn 7 nýir félagsmenn. Stúkan heldur uppi sjónleikum í vetur undir forustu héraðslæknis Ólafs Guðmunds- sonar og konu hans systur Margrétar Magnúsdóttur. Stúkan Brúin nr. 57 við Þjórsárbrú hefir orðið fyrir því óhappi, að þar komu upp málaferli innan stúku, sem hafa valdið missætti, um stund að minsta kosti. Þess háttar ætti aldrei að draga dilk á eftir sér lengi i neinni stúku, því Templ- arar verða að læra það, að beygja sig undir afl atkvæða, og sætta sig við það, þótt skoðanir þeirra verði í minni hluta. Ef atkvæðagreiðsla brýtur lög Reglunnar, getur sá sem hún gengur á móti skotið máli sínu til æðra dóms. Stúkan Díana nr. 30 á Vatnsleysuströnd hafði borið sig upp með það í vor, að hún þyrfti að fá Regluboða þangað með haustinu. Systir Ólavía Jóhannsdóttir hólt þar útbreiðslu- fund nokkru fyrir Jól. Útbreiðslufundurinn var fjölsóttur; og menn vænta ins bezta af honum. Rétt á eftir tók stúkan upp 5 nýja meðlimi. Stúkan Vonarstjarnan nr. 10 í Leiru hefir staðið í 10 ár oftast með rikum meðlimafjölda. Þar hélt systir Ólavía einnig útbreiðslufund, en afleiðingarnar af lioniim eru ekki kunnar. Stúkan varð rétt á eftir fyrir því stórslysi, að hús br. Þor- steins Gíslasonar í Melal>æ brann til kaldra kola rétt fyrir Nýárið. Hann og fólk hans komst nauðulega út úr eldinum, sumt nakið, að sagt er; eitt barnið (af 8) brann til skemda, svo ekki verður sagt, hvort það lifir það af. Br. Þoisteinn Gíslason brendi sig til skemdar sömuleiðis, og kól jafnframt við að taka á móti fólki sínu út um glugga á húsinu; hann var hættulega veikur þegar síðast fi-éttist, en þó á batavegi. Hann misti aleigu sína í brunanúm, jafnvel kýrnar brunnu inni. Húsið var vátrygt. Templarar syðra og líklega í Reykja-

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.