Good-Templar - 01.01.1900, Blaðsíða 9

Good-Templar - 01.01.1900, Blaðsíða 9
5 BÁLKUR STÓR-TEMPLARS Eftir samþykt á síðasta Stórstúku-þingi var gert ráð fyrir því, að Stór-Templar skrifaði við og við í blaðið, og skýrði frá ýmsu, sem Regluna varðar hér á landi, sérstaklega ýmsu, sem sem bæri við hingað og þangað. Af því að þetta er í fyrsta sinni sem skýrsla er gefin, ná þessar línur yfir lengri tíma, en þær munu annars ná hér eftir. Regluboðun hefir verið helzt þessi í haust: Br. Sigurður Eiríksson hefir farið tvær ferðir um Árness og Rangárvalla sýslur. Systir Ólavía Jóhannsdóttir fór suður með sjó frá Reykjavik, fyrir Umdæmisstúkurnar nr. 1 og nr. 2, og hélt þar útbreiðslufundi víðsvegar. Stór-Templar fór milli Jóla og Nýárs austur á Eyrarbaklca og vígði ið nýja hús reglunnar þar. Br. Bjarni S. Lyngholt hefir haidið fundi í Múlasýslum, en um framkvæmdir hans hefir ekki frétst enn þá. Umdæm- isstúkan nr. 3 hefir fengið 50 kr. styrk fyrst um sinn til að útbreiða Regluna innan umdæmisins, og í Hiínavatnssýslu hefir br. Magnús Blöndal verið feng'inn til að útbreiða bindindi, og styrkja stúkurnar sem eru þar. Um framkvæmdir hans vita menn ekkert enn þá hór. Stúkurnar í Húnavatnssýslu eru fjórar: Stiikan Úndína nr. 46 í Vatnsdalnum stendur ljómandi vel; hún er svo vel liðuð að íurðu gengir, og er það sem hún helzt vill vera, fyrirmyndar-stúka. Hún hefir nú 60 meðlimi. Stúkan Vinabandið nr. 37 á Blönduósi, er einnig vel stödd og heldur vel saman liði sínu. Hrin hélt 2. afmælishátíð sína 27. Nóv. 1899. Æ. T. Hallgrímur Davíðsson bókhaldari setti liátíðina og talaði fyrir Reglunni. Realst. Páll Halldórsson (frá Úndínu) fyrir íslandi. Fyrir Undínu talaði Jón Egilsen bók- haldari á Blönduósi. Fyrir Vinabandinu Jón Hannesson Odd- viti i Þórormstungu. Fyrir gestum talaði Ólafur N. Möller, en br. Sigurður Oddleifsson mintist systranna í Reglunni. Allar- voru þessar ræður fjörugar og skemtilegar, segir maður, sem var þar við. Við afmælisfiátíðina voru staddir Templarar frá „Gleym mér ei“ á Sauðárkrók, frá „Undínu í “Vatnsdal, og

x

Good-Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.