Good-Templar - 01.03.1899, Qupperneq 9
41
þeim andmælum, að útlendir ferðamenn muni fælast landið, ef hór
fáist ekkert áfengi keypt. Þau andmæli falla þegar um sjálf sig,
af þeirri ástæðu, að útlendingar geta haft áfengi með sór, ef þeir
ekki þykjast geta áti þess verið, og í annan stað hrósa þeir marg-
ir landinu einmitt fyrir það, live hór só hljótt og rólegt, ekkert
svall né drykkjuslark, engin háreysti nó skarkali, og hór só því
sönn unun að hviía sig eftir alla þreytuna við glautninn og skrölt-
ið í borgnntim erlendis.
Fleiri andmælum álítum vér eigi þörf að svara að sinni.
Stórstúka Islands ai I. 0. G. T.
Reykjavík 8. marz 1899.
Til
allra Good-1 emplara á Inlandi.
Það er orðið all-langt siðan eg skritaði síðast í all-
ar stúkur hér á landi, svo að naumast má lengur kyrt
vera. Nauðsynin til þess að láta stúkur og meðlimi til
sín heyra er þess meiri, sem Reglan hefir tekið upp nýja
stefnu, sem nauðsyn er til að hver félagsmaður þekki og
styðji, hvort sem hann er karl eða kona, og sem nú um
lengri tlma munu taka alla krafta, sem fengist geta, í
sina þjónustu. Það verður talað um það mál siðast í
linum þessum, þvi fyrst verð ég að gef'a stutt yfirlit yfir
útbreiðslu Reglunnar, eins og hún hefir gengið siðan
síðast var skýrt frá henni.
Útbreiðsla Reglunnar
hefir eins og áður gengiö framúrskarandi vel. í umburð-
arbréfi 8. júní 18Í)8 var skýrt frá því, að írá 8. júní 1897
og- til sama dags 1898 hefðu verið stofnaðar 12 stúkur,
og tva^r gamlar lífgaðar við aftur. Frá 8. júní 1898 og
til ársloka voru stofnaðar 10 nýjar stúkur, sem allar eru
taldar I »Good-Templar« III. nr. 1 1899 á bls. 4, svo
ekki sýnist þörf' að geta þeirra hér sérstaklega, en eftir
það hafu þessar stúkur komist upp og fengið stofnskrá: