Good-Templar - 01.03.1899, Page 11

Good-Templar - 01.03.1899, Page 11
43 af hinum nýju félagsmönnum, sem við hafa bætzt, hafi þyrpst í nýju stúkurnar. Hver nýr félagsmaður, eða fé- lagssystir, dregur á eftir sér kunningja sina, og svo sýn- ist, sem gamlir og nafnkunnir félagsmenn, sem ávalt laða fjölda manna að, hafi líka á hinn bóginn oft haldið mörgutn nýjum mönnum úti; náttúrlega alveg óviljandi. Þeir sem berjast hraustlegast fyrir hreyflngunni, fá oft flesta óvildarmenn. Elding af heiðum himni mátti segja að fyrirlestur Guðmundar Björnssonar héraðs- læknis væri fyrir Regluna, og aðra hér í bæ; svo mun hafa verið viðar. Enginn vissi fyrirfram hvað læknirinn mundi segja, og húsið var troðfult, en þegar menn fóru að skilja hvert hann fór, leituðu einstöku menn dyra, og vildu ekki heyra meira af svo góðu. Ymsar kviksögur heyrðust á eftir, og ekki siður getgátur um það, hvað lækninum hefði gengið til að segja þetta — sem næstum alt hafði verið tekið (margsinnis fram 1 bindindisræðum Giood-Templara, síðasta getgátan held ég hafl verið, að Good-Templarar hafi keypt hann til að halda fyrirlestur- inn, sem er alveg tilhæfulaus. En þegar vér vissum hvað i fyrirlestrinum var, svo keypti stórstúkan hann á eftir. Hún gaf hann út í mörg þúsund eintökum, og ætlar að koma konum inn á hvert einasta heimili á land- inu, því Reglan álítur, að fyrirlesturinn sé eitthvert rök- studdasta »innleggið«: sem komið hefir fram í málinu. Þar setn Guðmundur Rjörnsson er jafntramt einn af lærð- ustu læknum landsins, eru mótmæli frá lærðum mönnum og leikmönnum gegn því, sem* í fyrirlestrinum stendur, alveg þýðingarlaus. Ein króna tuttugu og fímm aurar Stórstúkan selur fyrirlesturinn á 2^/2 eyri þegar stúk- urnar panta nokkuð mörg eintök, en ætlast til að ein- takið sé selt á 5 aura. Húti vildi ekki útbýta honum gefins, þvi að það sem fólk fær fyrir alls ekkert, álítur það oftast vera einskis virði, og fleygir því án þess að lesa það. Daginn sem fyrii’lesturinn kom út, útvegaði lítill drengur sér tillmörg eintök, fór með þau svo viða

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.