Good-Templar - 01.08.1901, Page 1

Good-Templar - 01.08.1901, Page 1
GGGÐ-TEMPLAB BLAÐ STOR-STÚKU ÍSLANDS AP I. 0. G. T. Y. ÁRG. REYKJAYÍK, ÁGÚST 1901. 8. BLAÐ. Hví er eigi bundið um sár þjóðar minnar? Bíndíndisræða eftir Haeald Níelsson, íiutt í dómkirkjunni 7. júní 1901, á 9. þingi Stór-Stúku íslands. Jerem. 8, 21.—23: Sár þjóðar minnar eru mín sár; eg lclœðist sorgarbúningi, ofboð grípur mig. Eru engin snvyrsl í Gíleað? er ]>ar enginn lcelcnir? Hví er eigi bundið um sár þjóð- ar minnar? Æ, að liöfuð mitt vceri vatn og augu mín táralind, ]>á slcyldi eg gráta nœtur og daga ])á er fallið liafa af þjóð minni. Ættjarðarástin hefir jafnan verið talin ein af hinum feg- urstu dygðum; menn hafa sungið henni lof, ort um hana kvæði, bæði í heiðni og meðal kristinna manna. Lofstír þeirra manna, er skarað hafa fram úr öðrum í því að verja föður- land sitt gegn útlendum fjandmönnum, hefir verið haldið á lofti kynslóð eftir kynsióð og minning þeirra stundum orðið ódauðleg. Eg ætla mér eigi, kæru tilheyrendur, að faia að kasta neinni rýrð á ættjarðarástina nó heldur gera lítið úr minning þeirra manna, er þjóðirnar hafa sett í öndvegissæti hjarta síns vegna þess, að þeir létu lif sitt fyrir fósturjörð sina eða sýndu á annan hátt í lífi sínu, að þeir elskuðu ættland sitt og vildu leggja mikið í sftlurnar fyrir sjálfstæði þess og verja það gegn útlendri kúgun og ofríki. En hitt vil og benda á, að í insta eðli sínu er það engin dygð, enginn siðferðilegur fullkomléiki, þótt mönnum þyki vænt um ættjörð sína. Ætt- jarðarástin er í insta eðli sínu manninum meðfædd, honum ó- sjálfráð tilfinning. Vér könnumst allir við það, þekkjum það

x

Good-Templar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.