Good-Templar - 01.08.1901, Síða 10

Good-Templar - 01.08.1901, Síða 10
98 man effcir því, hvílík ró og hvílíkur ánægjusvipur færðist yfir andlitin, er búið var að bjarga manninum. Og þefcta var ó- breyttur almúgamaður, sem að likindum enginn hinna við- stöddu vissi nokkur deili á. Svona viðkvæmt er þá manns- hjartað, þegar það fær að njóta sín, svo sárt tekur það þá til þess að mannslífið farist. — Eg man það enn að eg var að velta því fyrir mér, er eg gekk burfcu, hvernig á því stæði, að ekki fleiri fyndu til þess, hve grátlegt böl það er, þegar mannslífin farast af völdum áfengisnautnarinnar. Á þá eyðing manns- hfanna horfa flestir með spekt og ró, af því að hún verður hægt og hægt og tekur iangan tíma. En væri kærieikurinn nógur í mannshjörtunum, þá létu menn ekki venju og tizku villa sér svo sjónir. Ef vór eldum hina fullkomnu föðurlands- ást í brjósti voru, þá tækjum vér undir orð spámannsins og segðum: „Æ, að höfuð mitt væri vatn og augu mín táralind, þá skyldi eg gráta nætur og daga þá er farist hafa af þjóð minni,“ — farist af völdum áfengisnautnarinnar eða vínsins. Og eigi dregur það úr alvörunni, er vér hugsum um það, að vér erum menn kristnir; vitum það, að oss ber öllum að mæta fyrir dómstóli Guðs á efsta degi og að vér þá verðum dæmdir eftir því, hvernig vér höfum lifað hér í heimi. Hver af oss mun nú finna til þess í samvizku sinni, að vér höfum breytt illa, að líf vort ailra er margflekkað af synd, og að það vantar mikið á það, að vér daglega lifum svo sem vér ættum að lifa — en getur nokkur yðar hugsað sér nokkuð skeifilegra en að eyða lífi sínu, mestum eða miklum hluta þess i drykkju- skap og deyja svo dauða drykkjumannsins, hverfa yfir i eilífð- ina með þá meðvitund, að iífsæfin hafi farið að miklu leyti í glasaglaum og fánýtt drykkjumannatal — eru ekki ósköp til þess að hugsa, að aidarháttur og venja skuli stuðia að því, að sh'kt skuli henda nokkurn mann, að hann verði að hverfa inn í eilífðina með þá játningu á vörunum: hfi mínu hefi eg glat- að i drykkjuskap? — Giatað líf — hversu hræðilegt orð. Guð miskunni öllum þeim, sem svo skelfilega fara með hf sitt. „Eru engin smyrsl í Gíleað? er þar enginn læknir? Hví er eigi bundið um sár þjóðar minnar?" Þannig spurði hinn mikli spámaður forðum. Og oss verður á að spyrja á sömu leið: er engin lækning til við þessu þjóðarmeini? Er ekkert

x

Good-Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Good-Templar
https://timarit.is/publication/428

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.